Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 110
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
www.hi.is
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
Skráðu þig í skemmtilegt og krefjandi nám sem er jafnframt góður undirbúningur fyrir vinnumarkaðinn.
Inntökuskilyrði í Háskóla Íslands: Umsækjendur sem hefja nám í Háskólanum skulu hafa lokið
stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla.
Umsóknarfrestur um diplómanám á meistarastigi er einnig til 5. júní 2014.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og hefur jafnframt ríkum skyldum að gegna við íslenskt
samfélag. Engin skólagjöld eru í Háskóla Íslands en árlegt skráningargjald er 75.000 kr. Inntökupróf eru
við Lagadeild og Hagfræðideild. Skráning á www.hi.is
Umsóknarfrestur um grunnnám er til 5. júní 2014 á www.hi.is
Félags- og mannvísindadeild
• BA Félagsfræði
• BA Mannfræði
• BA Þjóðfræði
Aukagreinar:
• Atvinnulífsfræði
• Fjölmiðlafræði
• Safnafræði
Félagsráðgjafardeild
• BA Félagsráðgjöf
Hagfræðideild
• BS Hagfræði
• BA Hagfræði
Lagadeild
• BA Lögfræði
Stjórnmálafræðideild
• BA Stjórnmálafræði
Aukagrein:
• Kynjafræði
Viðskiptafræðideild
• BS Viðskiptafræði
Námsleiðir:
• Fjármál
• Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
• Reikningshald
• Stjórnun
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Umsóknarfrestur til 5. júní
Fjölbreyttar námsleiðir á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands samanstendur af sex deildum og býður upp á
metnaðarfullt, fjölbreytt og framsækið nám.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Sýningar
14.30 Gestalistamennirnir Katrín Agnes
Klar og Lukas Kindermann sýna verk sem
fjalla um hreyfingu í myndfleti. Þau skoða
hreyfingu innan myndarinnar, hreyfingu
listamannsins í myndinni eða myndina
sem áhrifavald hreyfingar hjá áhorfand-
anum. Viðburðurinn fer fram í Bókabúð-
inni– verkefnarými á Seyðisfirði.
15.00 Ljósmyndasýning 1. árs nemenda
Ljósmyndaskólans hefst í dag klukkan
15 að Hólmaslóð 6. Sýningin stendur til
8. júní og er opin mánudag til föstudag
klukkan 14 til 20, og laugardag og sunnu-
dag klukkan 12 til 18.
15.00 Tvær sýningar verða opnaðar í
sýningarsölum Norræna hússins í dag
klukkan 15. Á sýningunni varpar listakon-
an fram spurningunni um stöðu mann-
eskjunnar í landslaginu. Áhorfandinn sér
ljósmyndir þar sem börn hafa raðað sér
upp meðfram strandlengju og stendur
frammi fyrir spurningunni um tengslin
milli manneskju og umhverfis. Ljós-
myndasýningin Mapping Europe eftir
sænsku listakonuna Katerina Mistal er í
innri sýningarsal. Töltsýning til heiðurs
íslenska hestinum er í ytri sýningarsal.
Íslenski hesturinn ber á baki sér ríkulega
menningararfleifð og er stór hluti þess
hvernig Íslendingar skilgreina sig sem
þjóð. Hesturinn er gegnheilt einkenni
þjóðararfsins hvort sem hann er í
lausagöngu á hálendinu, taminn til að
vinna verkin og bera okkur á bakinu eða
fluttur á nýjan stað þar sem hann skeiðar
í ókunnu umhverfi.
16.00 Opnun í Listasafni ASÍ í dag. I M
A Ê N O W tengir saman fjóra listamenn
sem hafa starfað við ólík svið listarinnar
frá unga aldri; Koho Mori-Newton frá
Japan, Lauren Newton frá Bandaríkj-
unum, Elínu Eddu Árnadóttur og Sverri
Guðjónsson. Koho Mori-Newton vinnur á
pappír og skapar jafnframt innsetningar
úr japönsku silki. Elín Edda kynntist kallí-
grafískri list í Japan og hefur einbeitt sér
að pappírsverkum þar sem unnið er með
bursta og blek. Í Listasafni ASÍ verður
sköpuð innsetning og umgjörð sem
gefur gestum tækifæri til íhugunar. Fyrir
sýninguna hafa raddlistamennirnir Lauren
Newton og Sverrir Guðjónsson skapað
og sett saman hljóðheim I M A Ê N O
W sem byggir á raddskúlptúrum, kyrjun,
yfirtónum, söngdróni og náttúruhljóðum
í mismunandi hljóðrýmum, sölum og
svölum Listasafns ASÍ. Hljóðgjörningur fer
fram við opnun sýningarinnar.
19.00 Gjörningur verður framinn við
opnun á Sýningu sem Hulda Rós opnar
á Listahátíð í Reykjavík í dag. Sýningin
opnar klukkan 19.00 og verður gerningur-
inn fluttur klukkan 19.30. Sýningin fer
fram í Gallerýi Þoku.
Hátíðir
11.00 Í dag verður líf og fjör í nytja-
jurtagarði Grasagarðsins. Þá kynna garð-
yrkjufræðingar garðsins ræktun mat- og
kryddjurta. Spurt og spjallað um sáningu,
forræktun, útplöntun, umhirðu og annað
sem viðkemur ræktuninni. Garðyrkjufélag
Íslands kynnir starfsemi sína. Café Flóra
verður með heitt piparmintute á könn-
unni. Allir velkomnir.
12.00 Hátíð hafsins verður fagnað í
Hörpu um helgina 31. maí til 1. júní. Sjó-
mannadagurinn 1. júní verður viðburða-
ríkur í Hörpu. Það verður skrúðganga
meðfram höfninni líkt og farin var í fyrra
við miklar vinsældir. Skoppa og Skrítla
munu taka á móti börnum í anddyri
Hörpu og Maxímús Músíkús mun gefa
börnunum hátíðarfána. Skólahljómsveit
Austurbæjar mun marsera gönguleiðina
frá Hörpu út að Granda með skátana í
fararbroddi. Tónlist tengd hafinu mun
hljóma í Munnhörpunni og ómur harm-
onikunnar berast út á torg. Til að ramma
daginn inn verður boðið upp í dans í Flóa
með útsýni til hafnarinnar sem hæfir til-
efninu vel. Danshljómsveitin Klassík mun
leika fyrir dansi. Allir velkomnir. Frítt inn.
Kvikmyndir
15.00 Bræðslan, heimildarmynd eftir
Aldísi Fjólu Borgfjörð Ásgeirsdóttur,
verður frumsýnd í Bíói Paradís í dag
klukkan 15.00. Aðgangseyrir er 1.000 kr.,
selt verður við dyrnar og enginn posi.
Heimildarmyndin er hluti af lokaverkefni
Aldísar Fjólu í hagnýtri menningarmiðlun
við Háskóla Íslands. Myndin segir sögu
tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á
Borgarfirði eystra, rifjar upp góðar sögur
með viðtölum við heimafólk, listamenn,
Bræðslustjóra og gesti Bræðslunnar og
veltir fyrir sér framtíðarsýn Bræðslunnar.
Tónlist
21.00 Hljómsveitin Ojba Rasta heldur
tónleika á Gamla Gauknum í kvöld.
Tónleikarnir fara fram á glænýjum og
endurbættum Gauk. Húsið verður opnað
klukkan 21.00.
21.00 Á þessum fyrri tónleikum Arto
Lindsay mun hann flytja eigið efni sem er
nokkurs konar blanda af tilraunakenndum
gítarspuna í sambland við viðkvæmari og
munaðarfulla tóna ættaða frá Brasilíu.
Tónleikarnir fara fram í Mengi, Óðins-
götu 2.
22.00 Söngkonan Þórunn Antonía Magn-
úsdóttir og Bjarni M. Sigurðarson, félagi
í hljómsveitunum Mínus, Esju, Stóns o.fl.
leiða saman hesta sína á nýrri plötu sem
er væntanleg á þessu ári. Sunny Side of
the Road er fyrsta lagið sem Þórunn Ant-
onía og Bjarni M. Sigurðarson senda frá
sér og er í útvarpsspilun þessa dagana.
Tónleikarnir fara fram á Dillon.
22.00 Spilakvöld Ljótu hálfvitanna á Café
Rosenberg 31. maí kl. 22. Aðgangseyrir
kr. 3.000. Matargestir geta pantað borð í
síma 551 2442.
23.00 Bandaríski tónlistarmaðurinn
Roland Hartwell leikur og syngur á Ob-La-
Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8, í kvöld klukkan
23.00. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Sýningar
14.00 Gestalistamennirnir Katrín Agnes
Klar og Lukas Kindermann sýna verk
sem fjalla um hreyfingu í myndfleti. Þau
skoða hreyfingu innan myndarinnar,
hreyfingu listamannsins í myndinni eða
myndina sem áhrifavald hreyfingar hjá
áhorfandanum. Viðburðurinn fer fram í
Bókabúðinni - verkefnarými á Seyðisfirði.
15.00 Í dag klukkan 15 opnar sýning á
Flugdrekabók Guy Stewart í aðalsafni,
Tryggvagötu 15. Yfirskrift sýningarinnar
er Sjáumk eg meir um Munin og er til-
gangur hennar m.a. að beina sjónum að
þeim áhrifum, sem nýir miðlar, eins og
internetið, hafa á hugsanagang okkar.
Hátíðir
11.30 Sjómannadagurinn verður
haldinn hátíðlegur frá kl. 11.30-15.30
í Viðey. Sigling frá Gömlu höfninni
um Sundin og út í Viðey er afar við-
eigandi skemmtun þegar hafinu og
sjómennsku er fagnað. Slegið verður
upp veislu með harmónikkuleik þar
sem gestir geta lært að flaka fisk og
keypt sér ljúffengt „fish and chips“
af veitingafólkinu í Viðeyjarstofu.
Skemmtilegir sjómannadagsleikir
verða í boði eins og reiptog og poka-
hlaup sem skátarnir í Landnemum
munu stýra. Allir krakkar hafa gaman
af því að leita að gersemum í fjörunni
og við verðum með háfa, fötur og bala
undir það sem upp úr krafsinu hefst
en það er ekki verra að koma með
eigið fjörudót.
Tónlist
16.00 Á fyrstu tónleikum sumarsins, í
dag klukkan eru það Laufey Sigurðar-
dóttir fiðluleikari og Aladár Rácz
píanóleikari sem koma fram í stof-
unni á Gljúfrasteini. Þau munu leika
ýmiss konar klassíska tónlist, meðal
annars Sónötu eftir Beethoven fyrir
píanó og fiðlu, Opus 12 nr 2. Tónleik-
arnir eru öllum opnir og miðaverð er
1.500 krónur.
17.00 Í dag mun Andrea Jónsdóttir
leika og kynna lög af hljómplötum á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.
17.00 Útgáfutónleikar í Hallgríms-
kirkju í dag klukkan 17.00. Lára
Bryndís Eggertsdóttir leikur á Klais-
orgel Hallgrímskirkju. Þá frumflytur
Lára Bryndís sjö glæný orgelverk eftir
jafn mörg tónskáld. Sérstakur heiðurs-
gestur á tónleikunum verður frú Vigdís
Finnbogadóttir, og hún mun jafnframt
lesa ritningarvers sem tilheyra hverju
orgelverki. Miðasala er við innganginn.
Verkefnið er styrkt af Tónmenntasjóði
kirkjunnar, Statens Kunstfond í
Danmörku og danska organistafélag-
inu DOKS. Lára Bryndís orgelleikari
er búsett í Danmörku og er að ljúka
framhaldsnámi í kirkjutónlist við Tón-
listarháskólann í Árósum.
21.00 Á þessum seinni tónleikum
Lindsay í Mengi mun hann spinna
tónlist í félagi við íslenska spuna-
tónlistarmenn. Hver útkoman verður
er ómögulegt að segja til um en víst
er að það verður áhugavert enda ekki
á hverjum degi sem listamaður sem
haft jafn djúpstæð áhrif menningarlíf
heillar kynslóðar kemur fram á Íslandi.
Tónleikarnir fara fram í Mengi á Óðins-
götu 2.
Listamannaspjall
14.00 Í dag mun Dögg Guðmunds-
dóttir ganga um sýninguna
Heimar / Kosmos í Hönnunar-
safni Íslands og spjalla við
gesti um þær aðferðir
og hugmyndafræði sem
móta hönnun hennar.
Dögg er mikilvægur
fulltrúi sístækkandi
hóps íslenskra hönnuða
sem starfa með alþjóð-
legum framleiðendum.
Fjölbreytt hönnun
hennar endurspeglar
tilraunir með nýjan
efnivið úr íslensku hráefni. Með ríka
skapandi þörf að vopni og ásetning um
frumlega nálgun við efnið verður niður-
staðan oft og tíðum óvænt.
15.00 Í dag klukkan 15 taka myndlistar-
mennirnir Ólöf Nordal og Gunnar Karls-
son og tónskáldið Þuríður Jónsdóttir
þátt í listamannaspjalli í tengslum við
sýninguna Lusus naturae í Hafnarborg.
Lusus naturae er nýtt verk, afrakstur
samstarfs listamannanna þriggja þar
sem ólíkar listgreinar mætast á ein-
stakan hátt og skapa flæðandi upplifun
myndlistar og tónlistar.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
ANDREA JÓNSDÓTTIR