Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 10
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
NEYTENDAMÁL Nærri allt græn-
meti frá stærsta dreifingaraðila
grænmetis á Íslandi, Sölufélagi
garðyrkjumanna, er merkt með
vottuninni Vistvæn landbúnaðar-
afurð. Vottunin er byggð á reglu-
gerð sem gefin var út árið 1998 en
hefur ekki verið fylgt eftir með
eftirliti um langt árabil.
Nokkrir garðyrkjubændur, sem
nota merkinguna, hófu framleiðslu
eftir að hætt var að gefa vott-
unina út. „Menn hafa haldið það
að ef þeir færu eftir stöðlunum
þá mættu þeir nota merkið,“ segir
Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna. „Annaðhvort er
kominn tími á að hætta alveg með
þetta eða að fara að fylgja því eftir
að það sé í lagi með þá sem eru að
nota þetta.“
Á meðal framleiðenda sem hófu
ræktun eftir að hætt var að gefa
vottunina út eru Jarðarberjaland
sem hóf framleiðslu árið 2011 og
Sólbyrgi sem hóf framleiðslu árið
2008. Vörur frá þessum framleið-
endum eru merktar sem Vistvæn
landbúnaðarafurð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Magnúsi Ágústssyni, garðyrkju-
ráðunaut hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, eru þeir staðlar
sem settir voru upp í tengslum
við vottunina úreltir. Þá mátti
vistvænn bú-
skapur ekki nota
meira en 180 kg
af köfnunarefni
á hektara við
ræktun græn-
metis en nú er
almennt miðað
við 80 til 100 kg
á sama svæði.
„Þetta er góð
hugmyndafræði
en það verður
au ð v i t a ð a ð
vera eftirlits-
aðili sem stað-
festir að þetta
sé rétt,“ segir
Gunnlaugur.
Unnið er að því
að koma á fót
svokallaðri gæðahandbók í mat-
jurtaframleiðslu sem taka á við
eftirlitshlutverki. „Við erum að
reyna að sinna því gæðastarfi sem
við viljum halda sem staðli. Ef það
er ekki til staðar þá missir merkið
sitt upphaflega markmið,“ segir
Bjarni Jónsson, framkvæmda-
stjóri Félags garðyrkjubænda.
Guðrún Arndís Tryggvadóttir,
framkvæmdastjóri Náttúran.is,
segir að hugtakið vistvænn land-
búnaður sé merkingarlaust og í
raun sé verið að tala um hefðbund-
inn landbúnað.
„Í raun þýðir þetta ekki meira
en það að gæðastöðlum sé fylgt
og þá fylgjast bændur með
hvað þeir nota af efnum. Það
þýðir samt ekki að það sé bannað
að nota þau. Þetta er í raun bara
eins og venjulegur landbúnaður.“
Hún segir að merkingin hjálpi
til við ákveðna ímynd sem Ísland
hafi. „Þetta er kannski ekki gert
til að blekkja beint. Þetta er bara
ákveðin sannfæring um að Ísland
sé allt vistvænt og æðislegt.“
snaeros@frettabladid.is
Nærri allt grænmeti merkt
án þess að hafa hlotið vottun
Skilyrðum reglugerðar um vistvænan landbúnað hefur ekki verið fylgt um árabil. Þrátt fyrir það merkja flestir
grænmetisbændur vörur sínar. Framkvæmdastjóri dreifingaraðila segir að hér sé um misskilning sé að ræða.
VISTVÆN
FRAMLEIÐSLA
Nær allar vörur frá
Sölufélagi garðyrkju-
manna eru merktar
sem vistvænar land-
búnaðarafurðir þrátt
fyrir að lögbundna
vottun að baki
notkuninni skorti.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
BJARNI JÓNSSON
GUÐRÚN ARNDÍS
TRYGGVADÓTTIR
BANDARÍKIN Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hefur bannað lögreglu
að skoða gögn í farsímum nema
að fenginni leitarheimild. Lög-
reglumenn hafa til þessa hiklaust
skoðað gögn í farsímum hand-
tekinna, rétt eins og þegar skoðað
er í töskur, vasa og veski fólks.
Hæstiréttur komst á miðviku-
dag að þeirri niðurstöðu að pers-
ónuvernd eigi að gilda um gögn í
farsíma, með svipuðum hætti og
þegar lögregla óskar eftir að fá að
leita í íbúðum fólks eða tölvum.
Fréttaskýrendur hafa bent á að
úrskurðurinn kunni að hafa áhrif
á víðtækar gagnanjósnir banda-
rískra yfirvalda, bæði lögreglu
og leyniþjónustu, sem hafa notað
tölvu forrit til að hlaða niður upplýs-
ingum úr farsímum einstaklinga.
Í desember síðastliðnum skýrðu
bandarískir fjölmiðlar frá því að
lögreglan hefði notað tækni sem
nefnd er Stingray til að ná sér í
upplýsingar um farsímanotkun
þúsunda einstaklinga, jafnvel í
heilu hverfunum á einu bretti. - gb
Hæstiréttur Bandaríkjanna setur víðtækum gagnanjósnum skorður:
Bannað að skoða í farsímana
HÆSTIRÉTTUR BANDARÍKJANNA
Persónuverndarákvæði verja farsíma-
notendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ABU KATADA Barðist lengi gegn því
að verða framseldur frá Bretlandi til
Jórdaníu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÓRDANÍA, AP Róttæki múslima-
klerkurinn Abu Katada, sem
lengi barðist gegn því að vera
framseldur frá Bretlandi til Jórd-
aníu, var í gær sýknaður þar í
landi af ákæru um að hafa tekið
þátt í áformum um að ráðast á
bandarískan skóla í Amman.
Dómstóllinn frestaði hins
vegar að kveða upp úrskurð í
öðrum ákærum á hendur honum
tengdum hryðjuverkum, en hann
er sagður hafa verið í liði með
Osama bin Laden.
Nærri ár er nú liðið frá því
hann var framseldur frá Bret-
landi.
Katada hefur ekki farið dult
með stuðning sinn við baráttu
herskárra íslamista. Hann hefur
þó gagnrýnt ISIS-samtökin, sem
barist hafa blóðugri baráttu í
bæði Sýrlandi og Írak. - gb
Klerkurinn Abu Katada:
Sýknaður í
fyrstu lotu
ÁSTRALÍA, AP Leitin að Malasíu-
flugvélinni, sem hvarf snemma
í mars, beinist nú að öðru svæði
nokkru sunnar en það svæði sem
mest hefur verið leitað á undan-
farið. Ástæðan er sú að fræð-
ingar hafa farið betur yfir þau
merki sem bárust frá vélinni
stuttu áður en hún týndist.
Talið er að vélin hafi verið á
sjálfsstýringu þegar hún hvarf
og allt bendir til þess að hún hafi
verið að hrapa þegar síðustu
merkin bárust frá henni. - gb
Gögnin reiknuð upp á nýtt:
Leit að flugvél
færist sunnar
SAMGÖNGUR Stærsta flugvél
heims millilenti á Keflavíkur-
flugvelli í gær á leið sinni vestur
um haf. Hún hélt ferð sinni áfram
klukkan hálftvö nú í nótt.
Vélin er af gerðinni Antonov
225 og er sú eina sinnar tegundar
í heiminum. Hún er 84 metra löng
og vænghaf hennar er 88 metrar.
Á vellinum þurfti að bæta
miklu eldsneyti á geymana
því hún eyðir um 16 tonnum á
klukkustund á flugi.
- kmu
Heimsins stærsta flugvél:
Hafði viðkomu
hér á leið vestur