Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 31
Kynningarblað Hestar, mannlíf, verslun, skemmtiatriði, keppni og kynbótasýningar. LANDSMÓT FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 HESTAMANNA Sannkallað fjölskyldufjör á Hellu Rúmlega 800 hestar og yfir tíu þúsund gestir eru væntanlegir á Landsmót hestamanna sem haldið verður á á Hellu dagana 29. júní til 6. júlí. Þar skemmta sér saman ungir sem aldnir enda sönn fjölskylduhátíð fyrir hestafólk og aðra góða gesti. Íslenski hesturinn er hluti af ís-lenskri menningu og sam ofinn þjóðinni. Landsmót hesta- manna er kjörið tækifæri til að fagna íslenska hestinum og halda merki hans á lofti,“ segir Axel Ómars son, framk væmdastjóri Landsmóts hestamanna, en mótið er nú haldið í 21. sinn. Fjölskylduskemmtun Axel leggur áherslu á að mótið sé síður en svo aðeins ætlað hesta- fólki. „Þetta er fjölskylduvið burður á Suðurlandi og til dæmis tilvalið fyrir fólk í sumarbústöðum í ná- grenninu að renna á Hellu enda leggjum við mikið í hliðardag- skrána,“ segir Axel og bendir þar á heilmikla skemmtidagskrá sem er í gangi, sérstaklega um helgina. „Þá er margt í boði fyrir krakka, hús- dýragarður, hestvagn, bingó og barnagarður.“ Þá verður fjöldi veitingabása á svæðinu, ýmsar verslanir að ógleymdum fallegum hestum. Aldrei fleiri hestar Yfir átta hundruð hestar taka þátt í mótinu; 280 kynbótahross, 460 gæðingar, 30 sem keppa í tölti og kringum 50 í skeiði. „Vegna mikils fjölda þurftum við að lengja mótið um einn dag og hefst Landsmótið því á sunnudag- inn,“ útskýrir Axel og bendir á að mótið í ár sé líklega það sterkasta frá upphafi. „Allir sem voru efstir á styrkleikalistum ætla að koma.“ Frábær aðstaða Axel segir Gaddstaðaflatir henta afar vel til mótahalds. „Svo má segja að við komum með mótið með okkur. Við höfum sett upp tvö 1.200 fermetra tjöld. Annað verður markaðstjald og hitt veitingatjald með sviði. Þá verðum við með hátt í tíu gámahús og klósetthús.“ Erlendir og innlendir sjálfboðaliðar Undirbúning ur lands mótsins hefur staðið yfir í nærri tvö ár. Fjöldi fólks í hesta manna félögum um allt land hefur komið að undir- búningnum en á mótinu sjálfu þarf að sinna á annað hundrað störfum. Í því hlutverki verða bæði starfs- menn landsmóts en einnig sjálf- boðaliðar. „Til dæmis eigum við von á um fimmtíu erlendum sjálf- boðaliðum frá ýmsum löndum,“ upplýsir Axel. Tíu til fimmtán þúsund gestir Víst er að nóg verður að gera enda búist við miklum fjölda gesta. „Ekki er gott að áætla fjöldann enda hefur veðrið mikið að segja. Þó má ætla að gestir verði á bilinu tíu til fimmtán þúsund.“ Útlendingar eru ávallt áberandi á landsmóti en Axel telur líklegt að þeir verði milli eitt og tvö þús- und að venju. „Þó er ferðamönnum á Íslandi alltaf að fjölga og líklega má gera ráð fyrir að á Suðurlandi verði um 50 þúsund útlendingar á þessum tíma. Við getum því aldrei vitað hve margir þeirra slæðast inn um hliðið,“ segir hann glettinn. Nokkur áhersla var lögð á það fyrir mótið að markaðssetja það fyrir út- lendinga. „Við vorum með auglýs- ingaherferð á netinu þar sem við reyndum að ná til þeirra sem voru að bóka flug til Íslands. Margir skoðuðu auglýsingarnar en svo veit maður ekki hvort fólkið skilar sér á mótið.“ Landsmót á skjánum Í ár verður mun meira framboð fyrir þá sem vilja fylgjast með lands- mótinu á skjá. „Við munum streyma í sjónvarp Símans og því verður hægt að fylgjast með báðum völlum allt mótið. Þá verða valdir kaflar í beinni útsendingu á RÚV auk þess sem við streymum líka mótinu fyrir útlendinga,“ segir Axel en á mótinu sjálfu verður tæknin nýtt til hins ýtrasta með LED-skilti og risaskjá. Axel Ómarsson, framkvæmdastjóri Lands- móts hestamanna, segir mótið henta fólki á öllum aldri, jafnt hestafólki sem öðrum. Íslenski hesturinn er hluti af íslenskri menningu og samofinn þjóðinni. Landsmót hestamanna er kjörið tækifæri til að fagna íslenska hestinum og halda merki hans á lofti. MYNDIR/LANDSMÓT HESTAMANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.