Fréttablaðið - 27.06.2014, Síða 58
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38
FÓTBOLTI FH-ingar eru með tveggja marka
forystu á toppi Pepsi-deildar karla þegar níu
umferðir eru að baki og geta fyrst og fremst
þakkað það þéttum varnarleik liðsins en
markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson hefur
aðeins þurft að sækja boltann þrisvar sinnum
í netið á fyrstu 810 mínútum tímabilsins.
FH hefur enn ekki tapað leik í deildinni í
sumar en hefur gert jafntefli í öllum þremur
leikjum sínum þar sem Hafnfirðingar hafa
fengið á sig mark. FH hefur því unnið alla
sex leikina þar sem liðið hefur haldið hreinu,
þar af fjóra þeirra 1-0. FH-ingar eru því
á toppnum þrátt fyrir að hafa aðeins
skorað meira en eitt mark í tveimur af
níu leikjum sínum.
Það þarf að fara alla leið til ársins
1988 til að finna betri byrjun í varn-
arleik í efstu deild en Fram fékk
aðeins á sig tvö mörk í fyrstu níu
leikjunum 1988. FH hefur jafn-
að afrek ÍA frá 1995 en Skaga-
menn fengu þá líka aðeins þrjú
mörk á sig. Bæði Framliðið frá
1988 og ÍA-liðið frá 1995 urðu
Íslandsmeistarar með sann-
færandi hætti.
Fimm leikmenn
hafa oftast nær skipt
með sér leikstöð unum
fjórum í varnarlínu
FH-liðsins í sumar en Hafnarfjarðarliðið
missti fyrirliðann, Guðjón Árna Antoníus-
son, í meiðsli eftir aðeins tvo leiki. Banda-
ríkjamaðurinn Sean Michael Reynolds hefur
leyst af bæði sem bakvörður og miðvörður
en samkvæmt tölfræðinni er besta varnar-
lína FH í sumar þegar Jón Ragnar Jónsson
og Böðvar Böðvarsson spila í bakvörðunum
og þeir Pétur Viðarsson og Kassim Doumbia
eru miðverðir. Þessi varnarlína hefur spil-
að saman í 249 mínútur í Pepsi-deildinni í
sumar og ekki enn fengið á sig mark.
Mest munar um Malímanninn Kassim
Doumbia en það hafa liðið 349 mínútur milli
marka hjá mótherjum FH þann tíma sem
hann hefur verið inni á vellinum. Doumbia
kom til liðsins fyrir tímabilið og er mikill
happafengur fyrir Heimi Guðjónsson.
FH-ingar leika sinn tíunda leik
í kvöld þegar þeir fá Valsmenn í
heimsókn í Kaplakrika en á sama
tíma spila Fram og Stjarnan
í Laugardalnum. Lið ÍA frá
1995 og lið Fram frá 1988
héldu bæði hreinu í
tíunda leik sínum.
ooj@frettabladid.is
Ekki betri vörn í 26 ár
FH-ingar hafa aðeins fengið á sig þrjú mörk í fyrstu níu leikjunum í Pepsi-deild
karla en síðustu þrjá áratugi hafa aðeins tvö önnur lið náð slíkum árangri.
BÖÐVAR BÖÐVARS-
SON
19 ára bakvörður
2013: 1 leikur með FH í fyrra
2014: 8 leikir - 587 mínútur
2 mörk hjá mótherjum FH
294 mínútur milli marka
KASSIM DOUMBIA
24 ára malískur miðvörður
2013: Kom frá Belgíu
2014: 8 leikir - 698 mínútur
2 mörk hjá mótherjum FH
349 mínútur milli marka
PÉTUR VIÐARSSON
27 ára miðvörður
2013: 11 leikir með FH í fyrra
2014: 8 leikir - 810 mínútur
3 mörk hjá mótherjum FH
270 mínútur milli marka
SEAN REYNOLDS
24 ára bandarískur
bakvörður/miðvörður
2013: Kom frá Bandaríkjunum.
2014: 5 leikir - 377 mínútur
2 mörk hjá mótherjum FH
189 mínútur milli marka
JÓN RAGNAR JÓNS-
SON
29 ára bakvörður
2013: 16 leikir með FH í fyrra
2014: 8 leikir - 583 mínútur
2 mörk hjá mótherjum FH
292 mínútur milli marka
MÍNÚTUHÆSTU VARNARMENN FH Í PEPSI-DEILD KARLA Í SUMAR
Fæst mörk
á sig í fyrstu
níu leikjunum
1977-2014:
2 MÖRK Á SIG
Fram 1988
3 MÖRK Á SIG
FH 2014
ÍA 1995
4 MÖRK Á SIG
Valur 2011
ÍA 1994
KR 1991
Valur 1989
Valur 1986
KR 1982
Breiðablik 1981
KR 1979
FH-metið:
3 MÖRK Á SIG
2014
5 MÖRK Á SIG
1994, 2005 og 2006
6 MÖRK Á SIG
2001 og 2009
Aron Jóhannsson kom
ekkert við sögu þegar
Bandaríkin töpuðu fyrir
Þýskalandi, 1-0, í lokaumferð
G-riðils á HM í gær. Þetta er
annar leikurinn í röð sem
Aron er negldur við tréverkið
allar 90 mínúturnar, en hann
hefur ekki fengið traustið
síðan hann kom snemma inn
á fyrir Jozy Altidore í fyrsta
leik Bandaríkjanna. Þrátt
fyrir tapið komust Bandaríkin
áfram í 16 liða úrslitin.Allt um HM á Vísi
Aron hefur ekki fengið tækifæri
í síðustu tveimur leikjum
Thomas Müller skoraði
sigurmark Þjóðverja á móti
Bandaríkjamönnum á HM í
gær og er markahæstur á HM
2014 með fjögur mörk ásamt
Neymar frá Brasilíu og Lionel
Messi frá Argentínu. Müller
er nú kominn með níu HM-
mörk og er hann fjórði yngsti
leikmaðurinn til að skora níu
HM-mörk á eftir þeim Eusebio
frá Portúgal, Gerd Müller frá
Þýskalandi og Sandor Kocsis
frá Ungverjalandi.
STJARNA
GÆRDAGSINS
Thomas Müller
Þýskalandi.
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi flugþjónustu-
svæðis á Keflavíkurflugvelli
/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar auglýsir hér með
í samræmi við 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010
tillögu að breytingu deiliskipulags á flugþjónustusvæði
Keflavíkurflugvallar. „Keflavíkurflugvöllur – Flugstöðvar-
svæði, svæði F og H“.
Breytingin tekur til lóðar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Svæði F og H eru sameinuð, byggingarreitur flugstöðvar
er stækkaður og nýtingarhlutfall hækkað. Bílastæðum
er fjölgað og gatnakerfi er breytt. Í skilmálahefti eru gerðar
leiðréttingar á stærðum er varða svæði F.
Breytingartillaga þessi verður til sýnis á skrifstofu
skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar
(http://www.kefairport.is/Flytileidir/Um-felagid/
Skipulagsmal/) frá og með 27. júní 2014 .
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur
á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur
til að gera athugasemdir rennur út 8. ágúst 2014. Skila
skal skriflegum athugasemdum til: Skipulagsfulltrúi
Keflavíkurflugvallar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235
Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is.
Keflavíkurflugvelli, 20. júní 2014.
F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar
Sveinn Valdimarsson,
skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar.
HREINT MARK Í SEX LEIKJUM Róbert
Örn Óskarsson, markvörður FH.
MANNVIRKI S. Björn Blöndal, for-
maður borgarráðs, segir að það
eigi sér eðlilegar skýringar að
framkvæmdir við uppbyggingu
íþróttaaðstöðu í Úlfarsárdal hafi
tekið lengri tíma en áætlað var í
upphafi. Ólafur Arnarson, for-
maður Fram, sagði við Frétta-
blaðið í vikunni að samkvæmt upp-
haflegum samningi félagsins við
Reykjavíkurborg hefði staðið til að
félagið væri alflutt úr Safamýri í
Úlfarsárdal í lok þessa árs.
„Sá samningur var gerður árið
2008 og í október það ár gerast
atburðir sem allir þekkja,“ sagði
Björn og átti þar vitaskuld við
efnahagshrunið. „Til þessa dags
erum við enn að glíma við afleið-
ingarnar en
meðal þess er
að það varð
fullkominn for-
sendubrestur
fyrir uppbygg-
ingu byggðar í
Úlfarsárdal.“
Á rið 2012
var ákveðið að
setja áætlanir
borgarinnar
og Fram um
uppbyggingu
íþróttaaðstöðu í Úlfarsárdal til
hliðar og hún sameinuð byggingu
nýs grunnskóla, bókasafns, sund-
laugar og menningarmiðstöðvar.
Nú stendur yfir hönnunarsam-
keppni um framkvæmdina sem
áætlað er að ljúki í haust.
„Það er alveg ljóst að það ferli
tekur tíma en niðurstaðan verður
vonandi betri en hún hefði annars
orðið,“ segir Björn en hann seg-
ist hafa skilning á því að það hafi
reynt á biðlund íbúa Úlfarsárdals
og Grafarholts.
„Það var ekki hægt að drífa í
framkvæmdum og var alltaf ljóst
að verkefnið þyrfti að fara í fag-
legt ferli – enda stærsta fram-
kvæmd Reykjavíkur á næstu
árum,“ segir Björn.
Áætlað er að framkvæmdin
kosti 4-5 milljarða króna en Björn
vonast til að fyrsta áfanga hennar
verði lokið árið 2017. - esá
Fullkominn forsendubrestur
Ekki var hægt að drífa í framkvæmdum fyrir uppbyggingu Fram í Úlfarsárdal.
S. BJÖRN
BLÖNDAL
Riðlakeppninni á HM lauk í gær og nú er ljóst
hvaða þjóðir mætast í sextán liða úrslitunum
sem hefjast á morgun. Cristiano Ronaldo og
félagar í Portúgal urðu í gær þriðja Evrópuliðið
til að vera á heimleið eftir riðlakeppnina á HM í
Brasilíu þrátt fyrir að hafa komist í undanúrslit á
EM fyrir tveimur árum. Evrópumeistarar Spánar og
silfurlið Ítalíu sátu einnig eftir í sínum riðlum.
Fjórar aðrar Evrópuþjóðir eru líka á heimleið
(Króatía, England, Bosnía og Rússland) sem þýðir að
aðeins sex af þrettán Evrópuþjóðum komust í sextán
liða úrslitin sem hefjast með leik Brasilíu og Síle.
FÓTBOLTI Úrúgvæska landsliðið
og Liverpool verða án síns besta
leikmanns, Luis Suárez, um langt
skeið. Hann var úrskurðaður í
fjögurra mánaða bann frá fótbolta
í gær af alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, FIFA. Bannið er vita-
skuld til komið vegna þess að
Úrúgvæinn beit Giorgio Chiellini,
varnarmann Ítalíu, í öxlina í leik
liðanna á HM.
Suárez verður ekki bara í banni
með landsliðinu heldur úrskurð-
aði FIFA hann í algjört bann frá
æfingum og keppni með félagsliði
sínu Liverpool.
Hann missir af fyrstu níu
umferðum ensku úrvalsdeildar-
innar, fyrstu þremur umferðum
riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu og fyrstu tveimur umferðum
enska deildabikarsins. Í heildina
er bannið með Liverpool 14 leikir,
komist liðið í gegnum fyrstu
umferð deildabikarsins.
Samtals er bann Suárez 23 leikir
ef landsleikir eru teknir með en
þátttöku hans á HM er augljóslega
lokið. „Okkur líður eins og sé verið
að sparka okkur út úr heimsmeist-
arakeppninni,“ sagði Wilm ar Val-
déz, forseti knatt spyrnu sam bands
Úrúgvæs í gær, en sambandið er
búið að áfrýja dómnum.
- tom
Bannið bítur Liverpool
Luis Suárez mætir aft ur á völlinn í lok október.
BANN Luis Suárez verður lengi frá
keppni vegna bannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SPORT