Fréttablaðið - 28.06.2014, Síða 68
FÓLK|HELGIN
BRUSCHETTA MEÐ GEITAOSTI,
BASILÍKU OG TÓMÖTUM
1 snittubrauð
50 g mjúkur geitaostur
3-4 fersk basilíkublöð
2 stórir tómatar
1 1/2 msk. extra virgin ólífuolía
1 hvítlauksrif
1 msk. ítalskt, grænt pestó
salt og nýmalaður pipar
Skerið brauðið í þunnar sneiðar og
skellið stutta stund á heitt grillið á
báðum hliðum. Nuddið aðra hliðina
með hvítlauksrifinu og penslið með
ólífuolíu. Skerið tómatana í litla bita
eða sneiðar eftir smekk.
Smyrjið brauðið með smá
pestói, setjið tómatana yfir og því
næst litla bita af geitaostinum.
Skreytið með basilíkublöðum.
Bragðbætið með salti og pipar.
GRILLAÐUR LAX MEÐ
PLÓMU- OG ENGIFERSÓSU
Uppskriftin miðast við sex
500 g þroskaðar plómur, stein-
lausar og smátt skornar
1 msk. hunang
1 1/2 msk. ferskt engifer, afhýtt og
saxað
1 msk. vatn
2 msk. hrísgrjónaedik
2 hvítlauksrif,
pressuð
1 msk. saxaður
laukur
1/2 tsk. rautt chili-paste
2 msk. sojasósa
Marinering
1/4 bolli sojasósa
2 msk. púðursykur
2 msk. hunang
2 msk. sítrónusafi
2 msk. vatn
1/4 bolli grænmetisolía
1,8 kg ný laxaflök
Salt og pipar
Setjið plómur, hunang, engifer,
vatn, edik, hvítlauk, lauk og chili-
paste í pott og látið suðuna koma
upp. Látið malla í 15 mínútur eða
þar til plómurnar mýkjast. Takið af
hitanum og hrærið 2 msk. af soja-
sósu saman við. Sett í matvinnslu-
vél og maukað.
Í annan pott er settur 1/4 bolli soja-
sósa, púðursykur, hunang, sítrónu-
safi, vatn og grænmetisolía. Hitið
upp og látið sykurinn bráðna. Kælið.
Hreinsið laxaflökin og saltið og
piprið. Skerið í sneiðar og raðið á
disk. Setjið sojablönduna yfir fisk-
inn og látið marinerast
í ísskáp í tvo tíma.
Leggið laxinn á
heitt grillið og
eldið í um það
bil 6 mínútur á
hvorri hlið, fer
eftir þykkt. Gætið
að því að ofelda
ekki laxinn.
Berið fram með góðu salati, hrís-
grjónum eða kartöflum eftir smekk
með volgri plómu- og engifersósu.
GRILLAÐIR BANANAR MEÐ
KARAMELLUSÓSU
Grillaður bananar eru frábær
eftirréttur, enda sætir og góðir.
Ekki spillir að hafa karamellusósu
og ís með. Þessi uppskrift er gerð
fyrir sex.
1 bolli sykur
1/3 bolli vatn
1/2 msk. sítrónusafi
2/3 bolli rjómi
6 miðlungsþroskaðir bananar
Setjið sykur, vatn og sítrónusafa í
pott og hitið á miðlungshita, hrærið
á meðan sykurinn er að bráðna.
Hækkið aðeins hitann og hrærið
stöðugt í á meðan sykurlögurinn
tekur lit eða í 3-4 mínútur. Takið
af hitanum og bætið rjómanum
varlega saman við. Hitið aftur á
lágum hita og látið malla þar til allt
er orðið fallega brúnt og mátulega
þykkt. Hrærið af og til á meðan.
Skerið banana til helminga
langsum án þess að taka hýðið.
Leggið bananabátana á heitt grillið,
lokið grillinu og látið eldast í um
það bil 8-10 mínútur. Berið banan-
ana fram með eða án hýðis. Dreifið
karamellusósunni yfir og hafið van-
illuís með. ■ elin@365.is
ÞRIGGJA RÉTTA
GRILLVEISLA
VEISLA Hvernig væri að bjóða gestum í heimsókn og grilla góðan mat í
kvöld? Hér er hugmynd að góðum þriggja rétti matseðli sem flestum fellur
vel í geð. Forrétturinn er einfaldur en ákaflega góður. Best er að baka sitt
eigið brauð en vitaskuld má notast við snittubrauð úr búðinni. Aðalrétturinn
er grillaður lax sem er afar ljúffengur og loks er eftirréttur fyrir alla sælkera,
grillaðir bananar með karamellusósu og vanilluís.
GRILLAÐIR BANANAR Það er auðvelt
að grilla banana og þeir eru einstaklega
góðir með karamellusósu og ís.
GRILLAÐUR LAX
Ljúffengur lax með
plómu- og engifersósu.
BRUSCHETTA
Forréttur sem kætir.
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. aprílNæs a námskeið hefst 12. júníNæsta námskeið hefst 2. a ríl 2014sta sk fst .j li 2014
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU