Fréttablaðið - 12.07.2014, Qupperneq 60
12. júlí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 36
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
15.00 Opinberun Melangells eftir
Hanne Tofte Jespersen– Music for the
Mysteries, Kammerkór Suðurlands og
María Ellingsen á Sumartónleikum í
Skálholti.
16.00 Hafdís Huld tónlistarkona og
gítarleikarinn Alisdair Wright koma
fram á næstu stofutónleikum Gljúfra-
steins. Þau munu flytja efni af nýjustu
sólóplötu Hafdísar sem nefnist Home í
bland við efni af eldri plötum Hafdísar.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Sumartónleikar við Mývatn í
Skútustaðakirkju. Flytjendur eru Hlín
Péturdóttir Behrens, Pamela de Sensi,
og Páll Eyjólfsson. Þau flytja þekkt
meistaraverk fyrir sópran, flautu og
gítar frá Ítalíu, Frakklandi, Puerto Rico,
Brasilíu og Argentínu. Listrænn stjórn-
andi er Margrét Bóasdóttir.
Sýningar
14.00 Ástríður Magnúsdóttir verður
með leiðsögn um sýninguna Ertu
tilbúin, frú forseti? Ástríður, dóttir Vig-
dísar Finnbogadóttur, var sjö ára gömul
þegar móðir hennar var kosin forseti
þjóðarinnar. Ókeypis aðgangur í safnið.
14.00 Ný sýning verður opnuð í Lista-
safni Árnesinga.
Hátíðir
13.00 Hin árlega Harmóníkuhátíð
Reykjavíkur haldin venju samkvæmt í
Árbæjarsafni. Einstakt tækifæri til að
kynnast og njóta í návígi margra okkar
bestu og þekktustu harmóníkuleikara í
mögnuðu umhverfi safnsins.
Söfn
11.00 Leiðsögn í Grasagarðinum. Grasa-
garðurinn er lifandi safn undir berum
himni og í garðinum eru varðveittar
um 5.600 plöntur í níu safndeildum.
Mæting við aðalinngang garðsins, þátt-
taka er ókeypis.
12.00 Fjölskylduleiðsögn og listsmiðja
fyrir börn og foreldra í Hafnarborg.
Einnig verður farið í leiðangur um
Hafnarborg þar sem saga safnsins og
hússins verður skoðuð.
12.00 Í Ásmundarsafni er sýningin
Meistarahendur þar sem ferli Ásmund-
ar Sveinssonar er gerð góð skil. Þar er
t.d. hægt að sjá útskorinn stól frá árinu
1919 sem var sveinstykki Ásmundar
í námi hjá Ríkarði Jónssyni og högg-
myndir sem hann gerði sem nemandi
við sænska ríkisakademíið. Ókeypis
aðgangur í Listasafn Reykjavíkur í til-
efni af Íslenska safnadeginum.
12.00 Á Kjarvalsstöðum eru tvær
sýningar, Reykjavík, bær, bygging og
sýningin Hliðstæður. Á sýningunni
Reykjavík, bær, bygging má sjá hvernig
borgin kom íslenskum listmálurum fyrir
sjónir á hundrað og tveggja ára tíma-
bili, allt frá 1891 til 1993. Hliðstæðum
er verkum ólíkra listamanna spilað
saman, tveimur eða þremur í senn, til
að draga fram líkindi þeirra á milli.
12.00 Í Hafnarhúsinu gefur að líta
sýninguna Þín samsetta sjón með
úrvalsverkum úr safneign Listasafnsins
frá árunum 1973-2010 eftir marga af
þekktustu listamönnum landsins eins
og Ólaf Elíasson, Ragnar Kjartansson,
Gabríelu Friðriksdóttur og Gjörninga-
klúbbinn. Ókeypis aðgangur í Listasafn
Reykjavíkur í tilefni af íslenska safna-
deginum.
14.00 Leiðsögn um Urtagarðinn við
Nesstofu og boðið upp á verkefni fyrir
alla fjölskylduna sem leiðir hugann að
lífinu í húsinu á 18. öld. Aðgangur er
ókeypis inn í safnið.
14.00 Boðið upp á leiðsögn um grunn-
sýningu Þjóðminjasafnsins. Ókeypis inn
á safnið í tilefni Íslenska safnadagsins.
14.00 Helgi M. Sigurðsson leiðir gesti
um Sjóminjasafnið í Reykjavík. Einnig
verða til sýnis ljósmyndir eftir Karl
Christian Nielsen í sérsýningunni
Reykvíkingar– Myndbrot úr safni verka-
manns. Varðskipið Óðinn verður einnig
opið fyrir gestum og gangandi.
14.00 Leiðsögn með Halldóri B. Run-
ólfssyni, safnstjóra um yfirlitssýninguna
Spor í sandi eftir Sigurjón Ólafsson í
Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
15.00 Leiðsögn með Eyrúnu Óskars-
dóttur listfræðingi um sýninguna
Forynjur og Húsafell Ásgríms þar sem
skoðuð eru verk Ásgríms Jónssonar
í Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
14.00 Tónlistarhátíðan Englar og menn í
Strandarkirkju í Selvogi. Chrissie Thelma
Guðmundsdóttir fiðluleikari og Glódís
Margrét Guðmundsdóttir píanóleikari
flytja Romanza. Aðgangseyrir er 1.500
krónur.
14.00 Ragnheiður Gröndal kemur fram
á Pikknikk tónleikaröð við gróðurhús
Norræna hússins. Hægt er að kaupa
veitingar á Aalto bistro.
15.00 Tónlistarmennirnir Skúli Jóns-
son og Einar Lövdahl koma fram á
Eymundsson á Akureyri. Tónlist Einars
hefur oft verið skilgreind sem létt
indípopp með alþýðutónlistarkeim,
vegna skýrra íslenskra texta. Aðgangur
er ókeypis og geisladiskar til sölu.
15.00 Kvintett trompetleikarans Ara
Braga Kárasonar kemur fram á Jóm-
frúnni við Lækjargötu. Tveir góðir gestir
frá Frakklandi eru með í för, söngkonan
Cyrille Aimeé og gítarleikarinn Michael
Valenau. Þau munu flytja valda sígræna
jazzstandarda. Aðgangur er ókeypis.
15.00 Opinberun Melangells eftir Hanne
Tofte Jespersen - Music for the Myst-
eries, Kammerkór Suðurlands og María
Ellingsen á Sumartónleikum í Skálholti.
17.00 Nýbylgjan– Kammerhópurinn
Nordic Affect á Sumartónleikum í
Skálholti.
21.00 Tónlistarmennirnir Skúli Jónsson
og Einar Lövdahl koma fram á Akur-
eyri Backpackers. Tónlist Einars hefur
oft verið skilgreind sem létt indípopp
með alþýðutónlistarkeim, vegna skýrra
íslenskra texta. Aðgangur er ókeypis og
geisladiskar til sölu.
21.00 Sumartónleikar við Mývatn í
Reykjahlíðarkirkju. Flytjendur eru Hlín
Pétursdóttir Behrens, Pamela de Sensi,
og Páll Eyjólfsson. Þau flytja þekkt
meistaraverk fyrir sópran, flautu og
gítar frá Ítalíu, Frakklandi, Puerto Rico,
Brasilíu og Argentínu. Listrænn stjórn-
andi er Margrét Bóasdóttir.
22.00 KK og Maggi spila á Café Rosen-
berg. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
23.00 Ingvar Grétarsson leikur og
syngur á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangur er ókeypis.
Sýningar
13.00 Þingeysku fingurbjargirnar eru
hópur kvenna sem hafa það að mark-
miði að hanna og framleiða vörur
sem hafa skírskotun til safnmuna á
Byggðasafni N-Þingeyinga á Kópaskeri.
Handverkskonurnar verða í Gljúfra-
stofu og kynna og bjóða handverk sitt
til sölu.
14.00 Sýningin Rúllandi snjóbolti 5,
Djúpivogur er alþjóðleg myndlistarsýn-
ing sem opnar í dag í Bræðslunni sem
breytt hefur verið í sýningarsal. Alls taka
33 listamenn frá Kína, Evrópu og Íslandi
þátt í sýningunni.
15.00 Reitir 2014 er alþjóðlegt skap-
andi samstarfsverkefni sem opnað
verður í dag á Siglufirði. Almenningur
getur séð og upplifað fjölbreytt verkefni
víðs vegar um bæinn.
Uppákomur
13.00 Torfæruklúbbur Suðurlands
heldur sína árlegu torfærukeppni í
Jósepsdal. 13 keppendur eru skráðir til
leiks og keyrðar verða 6 brautir.
Auglýsing Um prestskosningu í
Seljaprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra, framlagningu kjörskrár og
utankjörstaðaatkvæðagreiðslu
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur samkvæmt lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997,
með síðari breytingum, og starfsreglum um val og veitingu prestsembætta nr. 1109/2011, ákveðið að kosning
sóknarprests í Seljaprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra fari fram kl. 09:00 - 17:00,
laugardaginn 16. ágúst 2014 í safnaðarheimili Seljakirkju.
Kjörskrá liggur frammi til sýnis á biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík á skrifstofutíma og hjá prófasti
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, í Breiðholtskirkju, skv. samkomulagi frá 25. júlí 2014.
Kjörskráin verður einnig birt á vef þjóðkirkjunnar www.kirkjan.is/kjorskra/seljaprestakall .
Kærur til breytinga á kjörskrá þurfa að hafa borist kjörstjórn að biskupsstofu, Laugavegi 31, 101 Reykjavík
fyrir miðnætti föstudaginn 1. ágúst 2014. Kærur má senda á netfangið hanna.sampsted@kirkjan.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram frá 5. ágúst til og með 15. ágúst 2014 á biskupsstofu,
frá kl. 09:00 til 16:00.
Reykjavík, 12. júlí 2014
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður.