Fréttablaðið - 10.10.2014, Síða 10

Fréttablaðið - 10.10.2014, Síða 10
10. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 AKUREYRI Sundlaugarsvæðið á Akureyri mun taka stakkaskiptum nái hugmyndir fram- kvæmdaráðs Akureyrar fram að ganga. Fyr- irhugað er að fjölga heitum laugum, laga allt yfirborð sundlaugarsvæðisins og fjárfesta í nýrri rennibraut fyrir sundlaugargesti. Fram- kvæmdum við svæðið mun ekki ljúka fyrr en á árinu 2017. Gerður hefur verið samningur við fyrir- tækið Altis um kaup á rennibraut. Akureyrar- bær er nú í samningaviðræðum við fyrirtæk- ið um að fresta þeim kaupum. Að sögn Dags Fannars Dagssonar, formanns framkvæmda- ráðs Akureyrarkaupstaðar, er það stefnan að hefjast fyrst handa við að laga svæðið áður en rennibraut verður sett þar upp. „Við höfum falið Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra að semja við Altis um frestun samningsins. Það er okkar mat að meiri þörf sé á því í augnablikinu að gera endurbætur á sundlaugarsvæðinu, bæta við heitum pottum og stækka aðeins sundlaugarsvæðið sjálft til vesturs. Þannig myndum við fresta uppsetn- ingu rennibrautar. Þetta er allt gert til þess að gera endurbætur á sundlaugarsvæðinu öllu. Svæðið þarfnast viðhalds og teljum við þetta vera farsælustu lausnina á þeim málum,“ segir Dagur Fannar. - sa Fyrirhugaðar eru framkvæmdir við Sundlaug Akureyrar sem munu gerbreyta sundlaugarsvæðinu: Hundruð milljóna í Sundlaug Akureyrar AKUREYRI Sundlaugin mun fá andlitslyftingu á næstu árum. DÓMSMÁL Íslenska ríkið er skaða- bótaskylt gagnvart konu sem vistuð var á geðdeild án hennar vilja í fimmtán daga. Hæstiréttur segir þó að að tilefni hafi verið til að halda konunni nauðugri á geð- deild í ellefu af þessum fimmtán dögum. Þá var fallist á að tilefni hafi verið fyrir lögreglu til að ótt- ast um andlega heilsu konunnar og því verið heimilt að fara inn á heimili hennar og flytja hana nauðuga á geðdeild. - ka Hæstiréttur sneri við dómi: Bætur fyrir nauðungavist HONG KONG, AP Ekkert verður úr fundi stjórnvalda í Hong Kong með leiðtogum mótmælenda, sem halda átti í dag. Carrie Lam, tals- maður stjórnarinnar, segir að ummæli mótmælenda síðustu daga hafi grafið undan viðræð- unum. Engin von sé þar með til þess að neitt komi út úr þeim. Nokkrum stundum fyrr höfðu leiðtogar námsmanna, sem eru í forystu í mótmælendunum, hvatt stuðningsmenn sína til þess að efla svo um munar mótmæli sín á „regnhlífartorginu“, sem svo hefur verið nefnt. Torgið er hraðbraut fyrir fram- an höfuðstöðvar stjórnvalda, en þar hafa mótmælendur hafst við dögum saman. Flestir fóru reyndar um síðustu helgi eftir að stjórnvöld höfðu lofað viðræðum, en fámennari hópur fólks hefur hvergi hvikað. Regnhlífartorg fékk þetta nafn vegna þess að mótmælendurnir hafa notað regnhlífar til þess að verjast táragasi og piparúða lög- reglunnar. Mótmælendur saka stjórnvöld um óheiðarleika, en stjórnvöld saka mótmælendur um slíkt hið sama. Námsmenn í Hong Kong hafa verið að krefjast viðræðna við stjórnvöld allar götur frá því þeir gengu út úr tímum þann 22. sept- ember. Alex Chow, fulltrúi einn- ar af þremur helstu mótmælenda- hreyfingum námsmanna, segir að þeir vilji enn ólmir ræða við stjórnina. „Þessa daga sem liðnir eru höfum við gefið svita okkar og blóð, staðið frammi fyrir tára- gasi og sumir okkar voru hand- teknir og við megum eiga von á fangelsisdómum í framtíðinni,“ segir hann. „Enn erum við samt opin fyrir viðræðum við stjórn- völd hvenær sem er. Þau hafa ekki komið heiðarlega fram og ættu að axla ábyrgð sína gagnvart áhyggjuefnum íbúa Hong Kong. Mótmælin snúast um lýðræði í Hong Kong, sem fór undir kín- versk yfirráð á ný árið 1997 eftir að hafa verið undir stjórn Breta í meira en 150 ár. Kínverjar sömdu þó við Breta um að tryggja lýðræði í Hong Kong, og rennur sá samningur ekki út fyrr en 2047. Kínastjórn hefur fallist á að leyfa kosningar í Hong Kong árið 2017, en vill þó ekki heimila nein- um að bjóða sig fram nema með samþykki Kína. Á þetta hafa mót- mælendur ekki viljað fallast. gudsteinn@frettabladid.is Austurver Domus Medica Eiðistorg Fjörður Hamraborg JL-húsið Kringlan Glerártorg Akureyri Hrísalundur Akureyri Dalvík Hella Hveragerði Hvolsvöllur Keflavík Selfoss Vestmannaeyjar Þorlákshöfn 20% AFSLÁTT UR Gildir í október Lyfjaauglýsing www.hi.is Valitor er stuðningsaðili Ferðafélags Íslands. Allar nánari upplýsingar á hi.is Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um göngu- og hjólreiðaferðir sem hófust á aldarafmæli skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuð- borgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. PIPA R \TBW A SÍA 143492 Landnámsganga um miðborg Reykjavíkur laugardaginn 11. október kl. 11 Steinunn J. Kristjánsdóttir og Orri Vésteinsson, prófessorar við Sagnfræði- og heimspekideild, leiða göngu um miðborgina þar sem fjallað verður um upphaf landnáms í Reykjavík. Lagt verður af stað frá Aðalstræti 16 kl. 11 og gengið um miðborgina, Alþingisreitinn, Tjarnarsvæðið og hafnarsvæðið með útsýni til Viðeyjar. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil tvær klukkustundir. Með fróðleik í fararnesti Viðræður við mótmælendur blásnar af Stjórnin í Hong Kong hættir við fundahöld með leiðtogum mótmælenda, og segir að þær muni hvort eð er engu skila. Mótmælendur halda þó sínu striki. ÞRAUTSEIGIR Hópur mótmælenda hefur hafst við á „regnhlífartorginu“, sem svo hefur verið nefnt, vegna þess að regnhlífar hafa verið notaðar til þess að verjast táragasi og piparúða lögreglunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Enn erum við samt opin fyrir viðræðum við stjórnvöld hvenær sem er. Alex Chow, fulltrúi námsmanna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.