Fréttablaðið - 10.10.2014, Síða 22
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
LISTI YFIR TROMMARA SEM KOMA FRAM
Arnar Geir Ómarsson (HAM), Arnar Gíslason (Dr. Spock, Mugison), Birgir Jónsson (Dimma), Björn Stef-
ánsson (Mínus), Egill Rafnsson (Sign, Grafík), Hallur Ingólfsson (XIII, HAM), Halldór Lárusson (Júpi-
ters, Bubbi & MX-21), Hrafnkell Örn Guðjónsson (Agent Fresco), Kristinn Snær Agnarsson (John Grant),
Kristján B. Heiðarsson (Nykur, Skurk), Jón Geir Jóhannsson (Skálmöld) og Þorvaldur Þór Þorvaldsson
(Jónsi, Bloodgroup).
Einn fremsti rokktrommuleikari sögunnar, John Bonham úr Led Zeppelin, verður heiðraður í Hörpu
á sunnudaginn. Um sérstaka styrktar-
tónleika er að ræða en allur ágóði þeirra
rennur til MND félagsins á Íslandi sem
vinnur að velferð þeirra sem haldnir
eru MND hreyfitaugahrörnun og öðrum
vöðva- og taugasjúkdómum. Stór hluti
þekktustu trommara landsins mætir í
Hörpu að sögn Birgis Jónssonar, trommu-
leikara Dimmu og annars skipuleggjenda
tónleikanna ásamt Kristni Snæ Agnars-
syni, sem meðal annars hefur leikið með
John Grant og Jónasi Sig og Ritvélum
framtíðarinnar. Birgir segir Bonham, sem
lést árið 1980, hafa haft gríðarlega mikil
áhrif á kynslóðir trommuleikara og ekki
síður á rokktónlist á sínum tíma. „Bon-
ham tók mikið pláss í tónlist Led Zeppelin
án þess þó að vera með einhver læti.
Hann hafði mjög kraftmikinn trommustíl
og lagði grunninn undir tón-
list sveitarinnar þótt hann
væri ekki með fyrirferðarmikil
trommusóló. Hann var með
stórar trommur og lamdi
fast og keyrði raunar
bandið áfram eins og
lest. Þannig var hann festan og kletturinn
í þessari frægu og einni áhrifamestu rokk-
sveit tónlistarsögunnar. Sannarlega guð-
faðir rokktrommuleiks og tilfinningalegs
trommuleiks.“
Hugmyndin að tónleikunum kviknaði
á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi í Nes-
kaupstað í sumar þar sem þeir Birgir og
Kristinn tóku tal saman yfir bjórglasi. „Ég
sagði honum frá skemmtilegum tónleik-
um sem ég fór á fyrr á árinu í Los Angeles
þar sem frægir trommuleikarar komu
saman og spiluðu tónlist Led Zeppelin.
Okkur fannst upplagt að gera það sama
hér á landi og ræddum hugmyndina við
fleiri. Áður en við vissum af vildu allir
vera með.“
Fljótlega kom upp sú hugmynd að gera
úr þessu styrktartónleika og að sögn Birg-
is lá beinast við að styrkja MND félagið en
trommuleikarinn góðkunni, Rafn Jóns-
son, var einn stofnenda félagsins og var
auk þess góður vinur og kunningi eldri
trommara í hópnum.
Tónleikarnir sjálfir verða með
óhefðbundnu sniði að sögn Birgis
og alls ekki hefðbundnir heið-
urstónleikar. „Allt í allt
eru þetta ellefu trommu-
leikarar og fjölmargir þekktir hljóðfæra-
leikarar ásamt stórskotaliði söngvara.
Það verður þó ekki sama hljómsveitin
á sviði allan tímann, hljóðfæraleikarar
koma og fara og taka yfirleitt 1-2 lög.
Trommusettið verður auðvitað fremst á
sviðinu og fær mestu athyglina.“ Hann
segir hópinn ekki hafa æft mikið saman.
„Þetta verður meira veisla og djamm og
vonandi bara gaman fyrir áhorfendur.
Það má alveg byrja lögin upp á nýtt og
menn eru ekki endilega að spila þau ná-
kvæmlega eins og á plötunum heldur
taka eigin túlkun á þeim. Við flytjum ekki
endilega frægustu lög Led Zeppelin, til
dæmis munu tónleikagestir ekki heyra
frægasta lag þeirra Stairway to Heaven.
Trommararnir völdu frekar þau lög sem
þeir vildu tromma og höfðu sérstaka þýð-
ingu fyrir þá.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Hörpu á
sunnudag. Aðgangseyrir er 3.000 kr. en
allur ágóði tónleikanna rennur til MND
félagsins eins og fyrr segir. ■ starri@365.is
KEYRÐI LESTINA
ÁFRAM ÁN LÁTA
STYRKTARTÓNLEIKAR Flestir höggþyngstu trommuleikarar landsins mæta í
Hörpu á sunnudag þegar styrktartónleikar til heiðurs trommuleikaranum John
Bonham verða haldnir. Allur ágóði tónleikanna rennur til MND félagsins.
VINSÆLIR Led
Zeppelin er ein sölu-
hæsta hljómsveit
tónlistarsögunnar.
John Bonham er annar
frá hægri.
GÓÐUR HÁVAÐI „Trommusettið verður auðvitað fremst á sviðinu og fær mestu athyglina,“ segja þeir Birgir Jónsson og Kristinn
Snær Agnarsson, skipuleggjendur tónleikanna. MYND/VILHELM