Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 35
7 | 29. október 2014 | miðvikudagur
tíu starfsmenn. Verksmiðjan verð-
ur fl utt til Boxmeer og sameina
undir einu setri kjötiðnaðardeild,
kjúklingadeild og áframvinnslu.
Árni Oddur segir að lokið hafi
verið við fl utning á laxaverksmiðj-
unni og fl utningurinn frá Oss til
Boxmeer sé samkvæmt plani. „Við
erum hálfnuð og klárum það fyrir
árslok. Beinn sparnaður af því að
fl ytja Oss til Boxmeer eru fjórar
milljónir evra á ári. Til viðbótar
við beinan sparnað er megintil-
gangurinn að ná saman nýsköpun-
arsetrum í kjötiðnaðarsetri, kjúk-
lingaiðnaðarsetri og áframvinnslu
til að sinna þörfum viðskiptavina
enn betur á hagkvæman máta og
tryggja stöðugt fl æði á framúr-
skarandi lausnum í eina heild til
að tryggja enn frekar fl æði á fram-
úrskarandi vörum,“ segir hann.
Bein hagræðing
Snúast þessar aðgerðir bæði
um tilfærslur á kostnaði og bein-
ar hagræðingaraðgerðir? „Þetta er
beinn sparnaður. Þegar þú ert að
reka verksmiðjur þá ertu með yfi r-
stjórn, tölvudeild, starfsmanna-
hald og fl eira. Að auki erum við að
nýta mannskapinn betur en ekki
síður að nýta húsin og tækjakost-
inn betur. Marel réðst í mjög erfi ð-
ar aðgerðir þegar lokað var á Ísa-
fi rði fyrir fi mmtán árum. Þar var
verið að framleiða sjóvogir, kost-
urinn var að hafa sérhæft vinnuafl
sem gat einbeitt sér að þessu. Gall-
inn var að þegar það var umfram-
eftirspurn þá þurfti að vinna yfi r-
vinnu, svo datt eftirspurn eftir
þessari vöru niður og þá lá allt í
ládeyðu. Eftir fl utninginn hing-
að og eftir að þessi framleiðsla
varð partur af Garðabæjarteym-
inu, þá getum við fl utt vinnuafl á
milli eftir því hvar eftirspurn-
in er,“ segir Árni Oddur. Marel
sé með með átján verksmiðjur í
framleiðslukerfi nu en þeim verði
fækkað um helming. Hver verk-
smiðja sem eftir stendur muni geta
sinnt þremur eða fjórum mismun-
andi tegundum af iðnaði af þeim
fjórum tegundum sem fyrirtækið
sinnir núna í heild sem er fi skur,
kjúklingur, kjöt og áframvinnsla.
Sérstakt átak í hagræðingarferlinu
muni standa yfi r í ár og næsta ár.
Frekari hagræðing fram undan
Hve margir hafa sagt skilið við
fyrirtækið á einu ári? „Við sögð-
um upp 75 á fyrsta ársfjórðungi,
þar af 35 millistjórnendum,“ segir
Árni Oddur. Gamla skipulag fyrir-
tækisins hafi verið tekið úr gildi.
Fyrir þremur árum hafi svo verið
kynnt til sögunnar nýtt skipulag
þess efnis að félagið hygðist reiða
sig á fjóra iðnaðargeira. „En í raun
var gamla skipulagið ekki tekið úr
sambandi þannig að við byrjuðum
þar. Við byrjuðum á þeirri aðgerð
og síðan er fækkun í Oss um sex-
tíu,“ segir Árni Oddur en bætir við
að fram undan sé frekari samþætt-
ing á framleiðslukerfinu. Hann
telur að um fi mmtán manns hafi
látið af störfum hér á Íslandi.
Þannig að kostnaðurinn mun
dragast saman áfram? „Já, já, við
höfum sagt að við ætlum á þess-
um tveimur árum að ná sparnaði
sem nemur 25 milljónum evra eða
fjórum milljörðum íslenskra króna
á ári. Hins vegar er aðalatriðið
að auka sölutekjur og auka verð-
mætið í sölutekjum. Mikilvægt er
að allt fyrirtækið vinni sem ein
heild, til að mynda að hönnunar-
vinnan sé þvert á fyrirtækið og
vinni mjög náið með framleiðslu-
stýringunni og sölustýringunni,“
segir Árni Oddur. Síðustu árin hafi
fókus fyrir tækisins aukist meira
og meira úr sérhæfðum lausnum í
staðlaðar lausnir líkt og þær lausn-
ir sem fyrirtækið er nú að selja í
kjúklingaiðnaði til Afríku, Asíu og
Suður-Ameríku.
Aðspurður um framtíðarmark-
aði fyrirtækisins segir Árni Oddur
að Marel sé alþjóðlegt félag. Ein-
ungis eitt prósent af tekjunum sé
á Íslandi. „Fimmtíu prósent af
nýsölu hjá okkur eru utan Evrópu
og Bandaríkjanna. Þannig að við
erum algjörlega alþjóðlegt félag.
Það eru mikil tækifæri í Evrópu í
endurnýjun á verksmiðjum og það
eru mikil tækifæri í Bandaríkj-
unum í stækkun og endurnýjun
á verksmiðjum. Það gleymist oft
að Bandaríkin eru vaxtarmark-
aður. Bandaríkin eru að fara úr
350 milljónum í 400 milljónir
manns á næstu 20 til 30 árum á
meðan Evrópa er ekki stækkan-
legur markaður í sjálfu sér. Það
eru hins vegar tækifæri þar til að
endurnýja,“ segir Árni Oddur. Sé
hins vegar horft á stóru tækifærin
fram undan þá séu þau í Suður-
Ameríku og öðrum nýmörkuðum,
Brasilía sem dæmi, sem sé reynd-
ar ekki nýr markaður heldur einn
af kjarnamörkuðunum og Marel
hafi þjónustað kjúklingaframleið-
endur í 30 ár. „Þeir voru fyrir 30
árum á svipuðum stað og Afríka er
í dag,“ segir Árni Oddur. Þá nefnir
Árni Oddur Síle, Mexíkó, Úrúgvæ,
Asíu, Kína og Indland. „Við seld-
um fyrsta stóra kerfi ð í kjúklingi
á Indlandi á öðrum ársfjórðungi.
Við erum búnir að vera með end-
urtekna sölu í Kína, Víetnam og
Taívan,“ segir Árni Oddur. Marel
hafi einnig selt framleiðslu til Mið-
austurlanda í 15-20 ár. „Þau eru að
leggja mikla áherslu á eigin fram-
leiðslu, eins og nánast öll þessi
lönd í heiminum utan Evrópu og
Bandaríkjanna,“ segir Árni Oddur.
Fjörutíu prósent af veltu Marels
koma í gegnum þjónustu- og vara-
hlutatekjur. „Við sjáum meiri vöxt
í því. Við höfum fram að þessu
verið að sinna viðskiptavinum
þegar þeir panta varahluti eða
þjónustu,“ segir Árni Oddur. Marel
sé í auknum mæli að selja vörurn-
ar með ábyrgð. „Viðskiptavinur-
inn vill það, vegna þess að hann
vill vita hver kostnaður af við-
haldi er og hann vill vera öruggur
um að framleiðslan haldist gang-
andi og að varahlutir komi hratt
og örugglega. Þetta er kostur líka
því að ef við seljum þjónustuna
fyrirfram þá getum við skipulagt
okkur betur,“ segir Árni Oddur og
bendir á að hjá fyrirtækinu starfi
900 manns um allan heim í þjón-
ustu, átta hundruð manns starfi
einungis í sölu og tólf hundruð
í verksmiðjunni. Heildarstarfs-
mannafjöldi fyrirtækisins er fjög-
ur þúsund. Árni Oddur telur ekki
ólíklegt að þjónustutekjurnar muni
hækka upp í fi mmtíu prósent. „Á
kjarnamörkuðum okkar í Evrópu
og Bandaríkjunum eru þjónustu-
tekjur í kringum 50%. Á nýrri
kjarnamörkuðum, eins og Brasi-
líu, eru þær 30-40% en á nýjustu
mörkuðunum um 10%,“ segir Árni
Oddur.
Höfuðstöðvarnar munu ekki fara
Eitt prósent af tekjunum kemur
frá Íslandi og þið eruð alþjóðlegt
fyrirtæki. Hefur það þá þýðingu
að reka fyrirtækið héðan, í höft-
unum? Árni Oddur segir að það
hafi mikla þýðingu að hafa starf-
semi hér, óháð því hvar höfuð-
stöðvarnar eru. „Það er mikils
virði fyrir okkur að vinna með
þessum framúrskarandi sjávar-
útvegsfyrirtækjum, Samherja,
HB Granda, Vísi, Icelandic Group
og endalaust af framúrskarandi
sjávar útvegsfyrirtækjum hér sem
við vinnum mjög náið nýsköpun-
arstarf með. Þannig að það er
gríðarlega verðmætt fyrir okkur
að vera með starfsemi á Íslandi. Í
sjálfu sér er gott að vera með fyr-
irtæki á Íslandi. Hins vegar ef við
værum ekki undanþegin gjaldeyr-
ishöftum, sem meginþorri fyrir-
tækja er ekki undanþeginn, þá
myndi ég nú ekki bjóða í það að
vera á íslandi. Við gætum ekki
starfað án undanþágu frá gjald-
eyrishöftum,“ segir Árni Oddur.
Framúrskarandi nýsköpunarfyr-
irtæki geti orðið til á Íslandi en
á meðan höftin eru við lýði verða
þau ekki að stórfyrirtækjum.
En framhaldið, eruð þið að
fara? „Nei, í sjálfu sér, það sem
hefur gert það að verkum að
svona félög gátu vaxið og geta
verið staðsett hvar sem er, er
upplýsingatækni. Við getum
unnið þvert á lönd og erum með
þýðingarmikla starfsemi hér. Við
erum líka með mikla bakhjarla
í íslenskum eigendum sem hafa
fylgt okkur eftir. Við viljum hins
vegar að hlutabréfi n geti gengið
kaupum og sölum á alþjóðamörk-
uðum vegna þess að Marel vekur
athygli víða en fólk treystir sér
ekki inn í íslensku gjaldeyris-
höftin,“ segir Árni Oddur. Hann
segir það vera mjög óheppilegt að
gjaldeyrishöftin komi í veg fyrir
að erlendir fjárfestar keypti keypt
hlut í Marel.
Kemur til greina að skrá
félagið annars staðar? „Ég von-
ast frekar til þess að það leysist úr
gjaldeyrishöftunum fyrst,“ segir
Árni Oddur og bendir á að fyrir-
tækið sé skráð á Nasdaq-markað-
inn í gegnum Kauphöll Íslands.
Hann bendir á að það sé opin-
berlega á stefnuskrá Marels að
tvískrá félagið, en það muni ekki
gerast alveg í nánustu framtíð.
„Öll okkar augu eru á rekstrinum
og við erum ekki mjög upptekin af
skráningu á Íslandi eða skráningu
erlendis,“ segir Árni Oddur.
milljarða
m frá þeim tíma. Hann segir að ómögulegt væri
rahluta og þjónustu og sá þáttur muni aukast.
75
starfsmönnum
var sagt upp
á fyrsta árs-
fjórðungi þar
af 35 milli-
stjórnendum.
Til stendur að
draga úr kostn-
aði sem nemur
25 milljónum
evra eða fjórum
milljörðum
íslenskra króna
á ári.
4000
manns starfa
hjá Marel um
allan heim.
40%
af tekjum Marel
eru vegna sölu
á þjónustu
og varahlutum.
Linda Jónsdóttir var ráðin nýr fjármálastjóri
Marels á mánudag og tekur sæti í fram-
kvæmdastjórn félagsins, samkvæmt tilkynn-
ingu til Kauphallarinnar. Linda hefur verið
yfirmaður fjárstýringar og fjárfestatengsla frá
árinu 2009. Erik Kaman, sem hefur verið fjár-
málastjóri Marels síðan 2008, verður félaginu
til ráðgjafar til 1. mars 2015.
Í kjölfar þessara breytinga varð Auðbjörg
Ólafsdóttir yfirmaður fjárfestatengsla og sam-
skipta hjá Marel og Bjarki Björnson yfirmaður
fjárstýringar og fjármögnunar.
NÝR FJÁRMÁLASTJÓRI RÁÐINN
Velta með hlutabréf í Marel nam rúmlega 2,3 milljörðum
króna í gærmorgun og lækkaði gengi bréfa um 2,72
prósent. Ekki hefur fengist staðfest hverjir seldu eða
keyptu bréfin.
Þrátt fyrir það hefur gengi bréfa í Marel hækkað töluvert
dagana frá uppgjöri á miðvikudag í síðustu viku, eða um
20 prósent.
GENGI BRÉFA HÆKKAR EFTIR UPPGJÖR
GENGI BRÉFA MARELS
Á miðvikudag Í gær
104 125