Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 44

Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 44
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 20 ➜ Allir eru vel- komnir í Gunnars- hús meðan stólar leyfa, aðgangur kostar 500 krónur. LEIKLIST ★★★★ ★ Lífið 10 fingur SÝNT Í TJARNARBÍÓI Í tóminu, á mörkum leikhúss og myndlistar, mætast tvær verur í ljósaskiptunum. Hvaðan komu þær? Hvernig urðu þær til? Getur eitthvað orðið til úr engu? Leikhúsið 10 fingur stendur að sýningunni Lífið sem leikstýrt er af Charlotte Böving og sýnd um þessar mundir í Tjarnarbíói. Söguþráðurinn er af afskaplega skornum skammti en það kemur alls ekki að sök. Þess í stað er áhorfendum, á öllum aldri, boðið að fylla inn í eyðurnar af sinni eigin list og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Í tilverunni eru engin svör bara fleiri spurningar sem spretta fram eins og blóm á moldarhaug. Það er okkar að skapa heiminn. Í fyrstu kviknar lífið rólega á sviðinu og skuggar, sem enn eiga eftir að finna sitt endanlega form, læðast fram á sjónarsviðið. En innan skamms birtast verurnar, Getur eitthvað orðið til úr engu? LÍFIÐ „Verurnar banka hvor í aðra, prufa raddböndin og smakka á heiminum til að skoða hvernig þetta virkar nú allt saman.“ MYND/JÓHANNA ÞORKELSDÓTTIR leiknar af Sólveigu Guðmundsdótt- ur og Sveini Ólafi Gunnarssyni, ljóslifandi á sviðinu stórkostlega hissa á því að hreinlega vera til. Verurnar banka hvor í aðra, prufa raddböndin og smakka á heiminum til að skoða hvernig þetta virkar nú allt saman. Helga Arnalds stendur að hinni myndrænu hlið verksins og gerir það gríðarlega vel. Sviðsetningin er með einfaldasta móti; einung- is hvítt lak í bakgrunni, svartur dúkur á gólfi og til hliðar nokkr- ir pokar af mold og grænar garð- könnur. Leikmyndin er flæðandi, tilfæranleg og tilvalin í tilraunir. Þeir fáu leikmunir sem koma við sögu eru nýttir til hins ýtrasta og sviðsmyndin umbreytist í bókstaf- legt drullusvað þegar líða tekur á. Einnig er radd- og líkamsbeiting leikaranna tveggja hugvitsamleg og leikgleðin allsráðandi. Lýsingin, sem ég býst við að Helga hafi líka umsjón með, er ein- föld en einstaklega lipur. Lítið um prjál en mikið um skemmtilegar útfærslur þar sem verurnar tvær leika sér að ljóstírum og skugg- um. Tónlist Margrétar Kristín- ar Blöndal er að sama skapi ljúf og er hápunkturinn sunginn lag- stúfur sem spilaður er í lok sýn- ingarinnar. Eini gallinn á verkinu kemur ein- mitt beint í kjölfar hápunktsins en það er lengd sýningarinnar. Hún spannar einungis tæpan klukku- tíma og er klippt á framvinduna frekar snögglega. Hugmyndaauðg- in í hópnum er slík að þau hljóta að eiga fleiri töfrabrögð í pokahorn- inu, allavega til að loka sýningunni á örlítið smellnari hátt. Lífið er uppgötvun, tilraunir og mistök þar sem fátt er um endan- leg svör. Leikhúsið 10 fingur og sýningin Lífið nær að fanga þess- ar hugmyndir á fallegan og frum- legan hátt þar sem áhorfendur geta speglað sjálfa sig í tilburð- um veranna tveggja. Þrátt fyrir að sýningin sé stíluð inn á yngstu kynslóðina þá eiga hin eldri fullt erindi á sýninguna. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Frumleg, skemmtileg og myndræn sýning fyrir fólk á öllum aldri. Bland í poka á miðvikudegi nefnast hádegistónleikarnir í Bústaðakirkju í dag. Þar flytja Jóhann Friðgeir Valdimars- son tenór og Jónas Þórir, kantor kirkjunnar, valdar perlur sem fluttar eru við íslenskar kirkju- legar athafnir, allt frá háklass- ískum verkum til frægra dæg- urslagara. Jóhann Friðgeir hefur sungið með Bústaðakirkjukór og verið formaður hans til margra ára. Um þessar mundir syngur hann líka titilhlutverkið í óperunni Don Carlo í Hörpunni á vegum Íslensku óperunnar. Þetta eru fjórðu og síðustu hádegistónleikarnir í listamán- uði Bústaðakirkju sem er lýst upp í bleiku í október til að minna á átak Krabbameinsfélagsins. Frítt er inn á tónleikana sem hefjast klukkan 12.10. Súpa og brauð eru í boði á eftir. - gun Háklassík og slagarar Jóhann Friðgeir tenór og Jónas Þórir píanóleikari halda hádegistónleika í Bústaðakirkju í dag. TVEIR GÓÐIR Jónas og Jóhann Friðgeir flytja valdar perlur í hádeginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Hugmynd mín er sú að við eigum öll hina stóru veraldarsögu sem við lærum um en svo eigi hver einstaklingur sína veraldarsögu. Ég bregð ljósi á mína í nýju bók- inni,“ segir Pétur Gunnarsson rit- höfundur. Pétur verður í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, annað kvöld klukk- an 20, ásamt Orra Harðarsyni, rithöfundi og tónlistarmanni. Þeir ætla að svara spurningum Hall- gríms Helgasonar um nýútkomn- ar bækur sínar. Orri er með bók- ina Stundarfró sem hefur fengið lofsamlega dóma þeirra sem lesið hafa og bók Péturs er glóðvolg úr prentsmiðjunni. Hún heitir Veraldar saga mín og eins og nafn- ið bendir til er hún sjálfsævisögu- leg. Þó er ekki öll ævin undir. „Sum tímabil móta mann til framtíðar og eru örlagaríkari en önnur,“ segir Pétur. „Í þessari bók fjalla ég um tímabilið frá tvítugu til 26 ára. Þá fer ég til Frakklands og dvel þar við nám og skriftir. Það var mikil lenska á þessum árum að ferðast á puttanum og ég og kærastan fórum í langt putta- ferðalag um Ítalíu og Grikkland, það kemur líka við sögu.“ - gun Sum tímabil eru örlagaríkari en önnur Pétur Gunnarsson kemur fram á höfundakvöldi Gunnarshúss annað kvöld ásamt Orra Harðarsyni. RITHÖFUNDUR Pétur er af hinni frægu 68-kynslóð, sem ferðaðist á puttanum um lönd og álfur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.