Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 54
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
Í byrjun næsta mánaðar opnar
Hagkaup nýja fataverslun á ann-
arri hæð Kringlunnar þar sem sér-
vöruverslun þeirra er nú.
Þar verða vörur frá alþjóðlegri
tískukeðju, F&F, sem er í eigu
Tesco en þar er seldur fatnaður
og aukahlutir fyrir fjölskylduna.
„Við munum bjóða besta mögu-
lega verðið á Íslandi. Markmiðið er
að bjóða flottan fatnað á frábæru
verði, allt frá samfellum upp í síð-
kjóla,“ segir Gunnar Ingi Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Hagkaups,
aðspurður.
Áætlað er að opna flaggskips-
verslunina 8. nóvember og í fram-
haldi af því mun Hagkaup hætta
með núverandi fatadeildir sínar
og breyta þeim í F&F. „Við höfum
lengi leitað að samstarfsaðila, sem
er með allan pakkann, til þess að
endurnýja fataverslanirnar okkar.
Íslendingar eru meðvitaðir um
hvað er í tísku, við erum mjög
„trendy“ eyja og með þessu von-
umst við til þess að færa fatasölu
í aðra vídd.“
F&F var stofnuð árið 2001 og er
að sögn Gunnars eitt mest vax-
andi merki í heimi í þessum flokki.
„Þetta er búið að vera langt ferli
en undirbúningur hófst snemma í
vor. Nú er bara að færa Hagkaup
upp á næsta stig.“ - asi
Frá samfellum upp í síðkjóla
Hagkaup opnar nýja fataverslun með vörum frá alþjóðlegu tískukeðjunni F&F.
SPENNT FYRIR NÝRRI VERSLUN
Gunnar Ingi Sigurðsson ásamt Emmu
Goodman, rekstrarstjóra F&F í Evrópu,
og Olgu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra
F&F á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við höfum lengi
leitað að samstarfsaðila,
sem er með allan pakk-
ann, til þess að endur-
nýja fataverslan-
irnar okkar.
Gunnar Ingi Sigurðsson.
G e r v i g r e i n d a r s e t u r H R
Þann 2. október sl. voru 50 ár liðin frá því að Tækniskóli Íslands, síðar
Tækniháskóli Íslands, var settur í fyrsta sinn en hann var sameinaður
Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Hluti af hátíðarhöldunum er opin fyrirlestraröð í HR þar sem
fræðimenn fjalla um rannsóknir á kjarnasviðum háskólans: tækni, viðskiptum og lögum.
14:00 Dr. Kristinn R. Þórisson býður gesti velkomna
14:05 Dr. Claes Strannegard
- Artificial Intelligence Beyond One-Trick Programs
14:40 Dr. Stephan Schiffel - Playing to Win:
Success of CADIA’s General Game Playing Machine
14:55 Kaffihlé
15:10 Dr. Julian Togelius - The Challenges of General Video Game Playing
15:40 Dr. Kristinn R. Þórisson
- Towards True AI: Artificial General Intelligence
16:00 Dr. Ari K. Jónsson - Rannsóknir, nýsköpun og menntun í gervigreind
16:05 Dr. Hannes H. Vilhjálmsson kynnir Hátæknisprota og -rannsóknir
16:10 Sýning í Sólinni í HR: Hátækni og gervigreind á Íslandi
16:30-17:00
Hátæknihraðbraut Vitvélastofnunar Íslands og Gervigreindarseturs HR.
Sérstakur fundur um möguleika á hátækniráðgjöf og samstarfi ungsprota við
Gervigreindarsetur HR og Vitvélastofnun Íslands.
Skráning á hradbraut2014@iiim.is með nafni fyrirtækis og titli þeirra sem mæta.
Á hátíðinni, sem haldin er í Háskólanum í Reykjavík, verður fjallað
um undraheima vitvéla, framtíðarmöguleika sjálfvirkrar hátækni
og áskoranir sem rannsakendur í fremstu röð á þessu sviði eru að
fást við um þessar mundir.
Hátíðin er ætluð almenningi jafnt sem sérfræðingum og er opin
öllum. Fyrirlestrar fara fram á ensku og er aðgangur ókeypis.
Gervigreindarsetur HR (cadia.ru.is) og Vitvélastofnun Íslands
(iiim.is) standa að hátíðinni sem jafnframt er hluti af
afmælishátíð Háskólans í Reykjavík 2014.
Gervigreindarhátíð 2014
31. október 2014 kl. 14:00 -18:00 í stofu V101
Dagskrá:
„Þetta var erfiðasta partíið til
að komast inn í borginni, aðeins
gestalisti. Þetta var sannkallað
„who’s who“,“ segir rokkarinn
Smutty Smiff, sem hélt allsherjar
pönkveislu á Ace-hótelinu í London
á dögunum. „Guð minn góður hvað
þetta var brjálað.“
Partíið var eftir ljósmyndasýn-
ingu Bob Gruens, félaga Smuttys,
sem tekið hefur einhverjar fræg-
ustu ljósmyndir rokksögunnar.
Smutty spilaði síðan með All Star
pönksveit sinni með Walter Lure
úr The Heartbreakers, Bill Pole-
cat á bassa, Dave Ruffy úr Dexys
Midnight Runners og sjálfum
Marc Almond úr Soft Cell. Það
voru rokkararnir í Kaleo sem
hituðu upp og að sögn Smuttys
slógu rækilega í gegn. „Fólk fílaði
þá virkilega vel. Þeir stigu út úr
flugvélinni og fóru beint að spila,
alvöru rokk og ról.“
Margir frægir pönkarar voru
á svæðinu svo sem Paul Cook,
trommari Sex Pistols, og síðast
en ekki síst ofurfyrirsætan Kate
Moss. „Kate var í baksviðsher-
bergi Kaleo í klukkutíma og fannst
þeir frábærir. Ég spurði hana
hvort hún vildi ekki láta mynda
sig með Jökli, söngvara Kaleo, og
hún sagði: Nei, hann er of myndar-
legur.“
Jökull var sjálfur sáttur við
fögnuðinn. „Kate var virkilega
hress, svo sem ekkert meira
um það að segja. Þetta var mjög
skemmtilegt og svolítið öðruvísi að
spila í þessu partíi. Það voru marg-
ir skemmtilegir karakterar þarna
og allir hressir á því.“
torduringi@frettablaidid.is
Jökull var of myndar-
legur fyrir Kate Moss
Smutty Smiff og Kaleo tróðu upp í London á dögunum. Héngu með Kate Moss.
MARC ALMOND OG KATE MOSS
Stjörn urnar voru flottar saman.
Í GÓÐUMFÉLAGSSKAP Jökull Júlíusson, Marc Almond úr
Soft Cell og Smutty Smiff ferskir að vanda.
ALMOND Gerði garðinn frægan með laginu „Tainted Love“,
tróð upp og Smutty var ekki langt frá á bassanum.
Kate var í baksviðs-
herbergi Kaleo í klukku-
tíma og fannst þeir
frábærir.
Smutty Smiff.
„Kebab á The Best Turkish Kebab í
Hackney, London. Á staðnum hangir
árituð mynd af leikaranum David
Schwimmer uppi á vegg.“
Halldór Armand Ásgeirsson, rithöfundur
BESTI SKYNDIBITINN
„Hugmyndin kom eiginlega á einni
nóttu,“ segir Hrefna Hörn Leifs-
dóttir. Hún er búsett í Berlín og
stundar myndlistarnám við Kunst-
hochschule Berlin-Weißensee.
Í lok ágúst opnaði hún vefsíðuna
Projectscreenshots.tumblr.com en
á henni eru tölvuskjáir einstak-
linga „heimsóttir“, skjáskot tekið
af þeim og því sem einstakling-
arnir eru að vinna í og með uppi á
skjánum þá stundina.
Viðmælendur Hrefnu geta verið
staddir hvar sem er í heiminum
þar sem viðtölin fara fram í gegn-
um netið og viðmælandinn sér um
að taka skjáskotið.
Síðastliðna menningarnótt tók
Hrefna þátt í fjöllistasýningunni
„Mucho Grandi“ þar sem hún sýndi
skjáskot af eigin tölvuskjá. Í kjöl-
farið varð hugmyndin að Project
Screen Shot til og Hrefna opnaði
vefsíðuna stuttu seinna. „Það eru
svo oft teknar myndir af heimilum
eða vinnuaðstöðu skapandi fólks en
mig langaði til þess að fá að skoða
tölvuskjáinn hjá því. Skjárinn er
glugginn út í heim en á sama tíma
mjög persónulegur,“ segir Hrefna.
Í dag er algengt að fólk sem
vinnur í skapandi greinum vinni
mikið af sínum verkefnum í tölv-
unni. Project Screen Shots hefur
meðal annars birt skjáskot af tölv-
um myndlistarmanna, grafískra
hönnuða og tónlistarmanna.
„Mér fannst tölvuskjárinn
skemmtilegt form og langaði að
birta skjáskot frá fólki sem væri
að vinna að einhverju verkefni og
gæti þá sagt frá því ásamt öðru,
til dæmis hvaða tónlist það er að
hlusta á eða ef það er að skoða eitt-
hvað sérstakt á netinu.“ - gló
Birtir skjáskot af tölvuskjáum skapandi fólks
Hrefna Hörn Leifsdóttir byrjaði með Project Screen Shots í ágúst en hugmyndin fæddist á einni nóttu.
HREFNA HÖRN LEIFSDÓTTIR Síðan
var opnuð síðsumars og hefur fengið
fengið góðar viðtökur.
MYND/HREFNA HÖRN LEIFSDÓTTIR