Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 8
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTAVIÐTAL | 8
Frumvörp um breytingar á hús-
næðiskerfinu hafa verið í vinnslu
nokkuð lengi í félags- og húsnæð-
ismálaráðuneytinu. Spurð að því
hvort umfangið við frumvarps-
gerðina og biðin eftir því að vinn-
an kláraðist hefði komið ráðherr-
anum á óvart segir hún: „Þegar
ég var þingmaður áttaði ég mig
kannski ekki nógu vel á því hvað
frumvörp sem koma frá ráðuneyt-
um eru miklu flóknari, enda eru
talsvert meiri líkur á því að slík
frumvörp verði að lögum og að í
þeim séu reglur sem við ætlum að
starfa eftir. Þingmenn geta fengið
hugmynd að morgni og nánast verið
komnir með frumvarp síðar um
daginn, sem er svo dreift tveimur
dögum síðar.“
Í maí á síðasta ári skilaði verk-
efnastjórn um framtíðarskipan
húsnæðismála tillögum til Eyglóar
Harðardóttur, félags- og hús næðis-
málaráðherra. Frumvörp byggð á
tillögum verkefnastjórnarinnar eru
nú í vinnslu hjá fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu og væntir ráð-
herra þess að þau verði lögð fram
á þingi í lok mars.
Lausn í kjarasamningum
Það stefnir í hörð átök á vinnu-
markaði, telur þú að útspil í kjara-
samningum varðandi húsnæðismál
geti orðið til þess að liðka fyrir að
aðilar nái saman?
„Ég held að menn geri sér betur
grein fyrir því hvað húsnæðis-
vandi er orðinn stór hjá mörgum
félagsmönnum þeirra, ekki síst hjá
þeim sem lægstar hafa tekjurn-
ar, því sá hópur greiðir hlutfalls-
lega mest af sínum ráðstöfunar-
tekjum í húsnæði. Ég hef verið að
benda á að með auknum stuðningi í
gegnum húsnæðisbætur getum við
stýrt mjög vel hvert þeir fjármunir
eru að fara með tekju- og eignar-
mörkum. Það að við tökum höndum
saman um að fjármagna húsnæð-
isbætur og uppbyggingu húsnæð-
is, hið opinbera, lífeyrissjóðir,
atvinnurekendur, verkalýðsfélög og
sveitarfélög, myndi það gera það að
verkum að fólk gæti búið við meira
öryggi í húsnæðismálum.“
Orlofshús ákveðin fyrirmynd
„Við höfum séð ákveðnar fyrir-
myndir í því hvernig atvinnu-
rekendur hafa komið að því að
byggja upp sjóði hjá verkalýðs-
hreyfingunni, til dæmis orlofs-
sjóði. Verkalýðshreyfingin hefur
þannig margra áratuga reynslu af
því að tryggja fólki húsnæði í sum-
arfríum, af hverju ætti hún ekki að
tryggja því húsnæði þegar það er
í vinnu?“
Eygló segist vilja leggja áherslu
á hugmyndafræðina að baki því
hverjir koma að því að leysa mjög
erfiða stöðu á vinnumarkaði og
líka þrönga stöðu á húsnæðis-
markaði, sem endurspeglast í óróa
á vinnumarkaði. „Hin svokölluðu
„milljónaverkefni í Svíþjóð eru góð
fyrirmynd að uppbyggingu á hús-
næðiskerfi. Þar komu lífeyrissjóð-
ir, verkalýðshreyfingin, atvinnu-
rekendur, sveitarfélög og ríkið að.
Allir lögðu eitthvað fram og ég
held að það sé sannarlega tækifæri
núna vegna þess að tillögurnar
sem við erum með á borðinu núna
þær kosta umtalsverða peninga.“
Hún bendir á að lífeyrissjóðirn-
ir hér hafa verið þeir helstu sem
hafa fjármagnað Íbúðalánasjóð,
„þannig að þeir hafa verið stærst-
ir í að fjármagna íbúðarkaup og
það er ekki langt síðan við veitt-
um lagaheimild fyrir því að þeir
geta átt húsnæði beint, þar er svo
sannarlega eigið fé og þeir eru með
ákveðna lágmarksávöxtunarkröfu
og ég held að það sé alveg öruggt
að fólk getur staðið undir þeirri
ávöxtunarkröfu og jafnvel ein-
hverju til viðbótar, ekki síst ef fólk
þarf ekki að vera að endurgreiða
höfuðstólinn líka, eigið fé hjá líf-
eyrissjóðunum, sem er ekki krafa
sem lífeyrissjóðirnir gera gagn-
vart öðrum fjárfestingum hjá sér.“
Er samstaða um málið
Heldur þú að samstarfsflokkur
þinn í ríkisstjórn sé jafn hrifinn
af þessari aðferðafræði og þú?
„Báðum flokkunum er mjög annt
um að tryggja stöðugleika, og öfl-
ugt húsnæðiskerfi er undirstaða
þess að við náum því fram. Það er
enginn ágreiningur um það milli
okkar.“
Hversu hratt telur þú að þetta
gæti komið til framkvæmda?
„ Við höfum ítrekað sýnt það að
þegar við náum saman getum við
unnið mjög hratt, en ef við gerum
það ekki þá gerast hlutirnir mjög
hægt.“
Vinnum hratt ef allir ná saman
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, leggur brátt fram frumvörp um breytingar á húsnæðiskerfinu og kallar eftir aðkomu
lífeyrissjóða, atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar, sveitarfélaga og ríkis til að tryggja fólki fjölbreyttari möguleika og meira öryggi.
EYGLÓ HARÐARDÓTTIR Í máli Eyglóar kemur fram að stjórnarflokkarnir séu báðir
meðvitaðir um að öflugt húsnæðiskerfi sé undistaða stöðugleika. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Húsnæðissparnaður verði festur í sessi.
Heimild til nýtingar séreignarsparnaðar til öflunar íbúðarhúsnæðis verði
varanleg.
Fjárhagslegur stuðningur við leigufélög sem rekin eru án hagnaðar-
sjónarmiða verði í formi stofnframlaga.
Vaxtabætur og húsaleigubætur verði sameinaðar í eitt húsnæðisbóta-
kerfi og stuðningurinn miðist við efnahag en ekki búsetuform.
Fjármagnstekjuskattur á tekjur af útleigu íbúðarhúsnæðis verði lækk-
aður úr 20% í 10%.
TILLÖGUR VERKEFNASTJÓRNAR
UM FRAMTÍÐ HÚSNÆÐISMÁLA
Besti bíllinn.
Audi A3 var valinn besti bíll ársins 2014*
af blaðamönnum frá 22 löndum.
*World Car Awards 2014, New York: www.wcoty.com
Verð frá kr. 4.890.000,-
Eyðsla: 4,7l í blönduðum akstri, 109 CO
2
. Vél: 1,4 TFSI COD, 150 hö.
OPIÐ
Í DAG
Heiða Kristín
Helgadóttir
heidakristin@frettabladid.is
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-E
D
2
4
1
3
C
F
-E
B
E
8
1
3
C
F
-E
A
A
C
1
3
C
F
-E
9
7
0
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K