Fréttablaðið - 14.02.2015, Side 52
Lögreglumaður
– Lögreglustjórinn Norðurlandi vestra
Við embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra
eru lausar til umsóknar tvær stöður lögreglumanna.
Annarsvegar er tímabundin staða lögreglumanns, til eins
árs, í almennri löggæslu með starfsstöð á Sauðárkróki.
Sett verður í stöðuna frá og með 01. mars 2015, til eins árs.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttis-
áætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til
þess að sækja um.
Hinsvegar er um að ræða tímabundna stöðu, til eins árs,
lögreglumanns með starfsstöð á Blönduósi. Sett verður
í stöðuna frá og með 01. mars 2015, til eins árs. Í ljósi
ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar
lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að
sækja um.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla
ríkisins og vera sjálfstæðir í vinnubrögðum þar sem
umsækjandi þarf að vera undir það búinn að vinna að
einhverju leyti einn. Leitað er að einstaklingi með góða
samskipta- og samstarfshæfni, vandvirkni, þjónustulund
og frumkvæði í starfi. Æskilegt er að umsækjendur hafi
góða almenna tölvukunnáttu.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2015.
Umsóknum skal skila til Lögreglustjórans á Norðurlandi
vestra Suðurgötu 1, 550 Sauðárkróki. Nánari upplýsingar
um stöðurnar veitir Kristján Þorbjörnsson yfirlögregluþjónn
í s. 8921713 eða í tölvupósti kristjan@tmd.is og Stefán Vagn
Stefánsson yfirlögregluþjónn í s. 8477437 eða í tölvupósti
9806@tmd.is .
Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlut-
fall er 100%. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðu-
blöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt
að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir
liðnum: Eyðublöð.
Lögreglustjórinn Norðurlandi vestra.
Starfsmaður
óskast í afgreiðslu
Gleraugnaverslun auglýsir eftir starfskrafti í afgreiðslu
frá 12-18 á virkum dögum og er um 75% starf að ræða.
Hæfniskröfur: Þjónustulund, jákvæðni og stundvísi.
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsóknir berist
á gleraugnasalan@simnet.is fyrir þriðjudaginn 17. feb.
Lífsglaður og jafnréttissinnaður leikskólakennari
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd auglýsir eftir skólastjóra,
leikskólakennara til að stýra leikskólanum.
Leikskólinn Barnaból er hluti af Hjallastefnufjölskyldunni og við
leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að tileinka sér
starfshætti Hjallastefnunnar að metnaði, gleði og kærleika.
Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa
brennandi áhuga á jafnrétti og lýðræði í leikskólastarfi.
Skólar Hjallastefnunnar starfa að sameiginlegum markmiðum
eftir sömu hugmyndafræði en sjálfstæði hvers skóla er mikið.
Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og
einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við
teljum að geti skipt sköpum í
þroska komandi kynslóða.
Við hvetjum karla jafnt sem konur
til að sækja um, áhugasamir hafi
samband við Þorgerði Önnu
leikskólastýru á netfangið
thaa@hjalli.is eða í síma 8240604.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar
2015.
United Silicon hefur hafið byggingu kísilvers í Helguvík á Reykjanesi og framleiðsla mun hefjast
á vordögum 2016. Áætlanir gera ráð fyrir að um 60 starfsmenn muni starfa hjá verksmiðjunni á
rekstrartíma en 200 starfsmenn meðan á uppbyggingu og uppsetningu búnaðar stendur.
Við leitum að öflugum rafmagnstæknifræðingi eða rafmagnsverkfræðingi sem mun bera ábyrgð
á rekstri og viðhaldi á umfangsmiklum rafbúnaði verksmiðjunnar. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf fljótlega.
Viðkomandi þarf að uppfylla skilyrði Mannvirkjastofnunar um ábyrgðarmann raforkuvirkis stóriðju.
Nánari upplýsingar veitir Rut Ragnarsdóttir í síma 669 6003.
Umsóknum ásamt ferilsskrá skal skilað til rut@silicon.is fyrir þriðjudaginn 24. febrúar.
Starfssvið:
• Ábyrgð á viðhaldi og rekstri raforkuvirkis og rafbúnaðar
• Móttaka, skráning og prófun á búnaði meðan á
byggingu stendur
• Uppbygging fyrirbyggjandi viðhaldskerfis
• Innkaup á vörum og aðkeyptri þjónustu sem tengist
viðhaldi búnaðar
Menntunar og hæfniskröfur:
• Rafmagnstæknifræði/verkfræði
• Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla
• Reynsla og/eða menntun innan skipulagðs fyrirbyggjandi
viðhalds er kostur
• Jákvætt viðhorf, frumkvæði og dugnaður
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
United Silicon leitar að stjórnanda raforkuvirkis og fyrirbyggjandi viðhalds
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
0
-2
D
5
4
1
3
D
0
-2
C
1
8
1
3
D
0
-2
A
D
C
1
3
D
0
-2
9
A
0
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K