Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 12
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
VÍSINDI Almennt er talið að allt
sem fer út á internetið, svo sem
ljósmyndir, tölvupóstur og blogg-
færslur, verði þar til eilífðarnóns.
Aldeilis ekki, segir Vinton G. Cerf
sem státar af því að vera meðal
upphafsmanna internetsins.
„Við hendum í kæruleysi öllum
okkar gögnum inn í það sem gæti
orðið upplýsingasvarthol án þess að
gera okkur grein fyrir því,“ segir
Cerf í viðtali við breska dagblað-
ið The Guardian. Þegar fram líða
tímar verða nefnilega forritin sem
þarf til þess að lesa þessar upplýs-
ingar úrelt. Og búnaðurinn sem nú
er notaður til að keyra þessi fornu
forrit verður ekki lengur til.
„Við viljum ekki sjá stafrænt líf
okkar hverfa. Ef við viljum varð-
veita það, þá þurfum við að sjá til
þess að í framtíðinni verði enn hægt
að birta þessa tölvugerðu hluti sem
við búum til í dag,“ segir Cerf.
Hann ræddi þessi mál á árs-
fundi bandarísku vísindasamtak-
anna AAAS þar sem hann sagðist
óttast að kynslóðir framtíðar-
innar yrðu í vandræðum með að
finna upplýsingar um þann tíma
sem við lifum á. Hin mikla upplýs-
ingaöld internetsins muni hverfa
í myrkur upplýsingatóms, hina
myrku tækniöld.
Lausnin á þessum vanda segir
hann, samkvæmt frásögn BBC,
geta falist í því að taka eins konar
„röntgen-skyndimyndir“ af gögn-
unum, þar sem sæist í smáatrið-
um hvers konar forrit og stýri-
kerfi hafi verið notuð ásamt
lýsingum á þeim búnaði sem not-
aður var til að keyra þessi forrit.
Enn sem komið er sé slík tækni
þó ekki í sjónmáli, þannig að
menn þurfi að varðveita persónu-
leg gögn og hvaðeina sem þeim
finnst mikilvægt með öðrum
hætti en að setja það á netið eða
geyma það í tölvum okkar.
„Ef þér þykir virkilega vænt
um einhverjar ljósmyndir, þá
skaltu prenta þær,“ hefur The
Guardian eftir honum.
Cerf er orðinn 71 árs og er nú
varaforseti Google, en átti á átt-
unda áratug síðustu aldar, ásamt
félaga sínum Bob Kahn, stærst-
an þátt í því að gera internetið
að veruleika. Þeir störfuðu þá
báðir við rannsóknir hjá banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu,
þar sem þeir unnu að þróun sam-
skiptanets sem síðar varð að
inter netinu. gudsteinn@frettabladid.is
Tölvumyrkur vofir yfir heiminum
Hin mikla upplýsingaöld internetsins mun hverfa inn í myrkur upplýsingatóms, segir Vinton G. Cerf, annar tveggja helstu forkólfa inter-
netsins í viðtali við The Guardian. Forritin til að lesa upplýsingarnar verða úrelt og búnaðurinn til að keyra þau verður ekki til.
VINT CERF
Varaforseti
Google ráð-
leggur okkur
að prenta
allar ljós-
myndir sem
okkur þykir
vænt um.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ef þér þykir virkilega
vænt um einhverjar
ljósmyndir, þá skaltu
prenta þær.“
Vinton G. Cerf
NÝSKÖPUN Tæknifyrirtækið Thor-
Ice hefur fengið 20 milljóna króna
styrk ásamt Iðntæknistofnun Dan-
merkur til að gera forkönnun á
markaðstækifærum í Danmörku
og möguleikum á notkun tækni
fyrirtækisins til orkusparnaðar
í danskri matvælaframleiðslu.
Gangi verkefnið vel er möguleiki
á stækkun þess í framtíðinni.
Þorsteinn Ingi Víglundsson,
ásamt samstarfsfólki sínu, hefur
í rúman áratug þróað og framleitt
sérhæfðan kælibúnað fyrir sjáv-
arútveg. Sama kjarnatækni hefur
svo verið aðlöguð fyrir kælingu
á kjúklingi og við vatnshreinsun
í matvælaiðnaði og öðrum iðn-
aði. Tæknin er nú þegar í notkun
í landbúnaði í Hollandi og lyfja-
iðnaði þar sem hún er notuð til að
hreinsa spilliefni úr vatni.
Tækni ThorIce er nefnd sem
gott dæmi um hvernig tækniþró-
un fyrir sjávarútveg getur opnað
ýmis tækifæri í sölu á tækni og
þekkingu til annars konar mat-
vælavinnslu og í aðra geira eins
og lyfjageirann. ThorIce er eitt
þeirra fyrirtækja sem verið hafa í
Húsi sjávarklasans frá því það var
opnað árið 2012. - shá
Kanna markaði fyrir orkusparandi tækni:
ThorIce fær styrk til
að kanna markaði
SAMSTARFSMENN Þorsteinn Ingi Víglundsson er hér til vinstri, ásamt Hauki
Hilmarssyni og Birgi Jósafatssyni, samstarfsmönnum sínum. MYND/THORICE
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-D
4
7
4
1
3
C
F
-D
3
3
8
1
3
C
F
-D
1
F
C
1
3
C
F
-D
0
C
0
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K