Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 10
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Jarðeldur á söndum
norðan jökla
www.hi.is
Um fyrirlestraröðina
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.hi.is/visindi_a_mannamali
VÍSINDI Á MANNAMÁLI
OPINN FYRIRLESTUR Í HÁTÍÐASAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur og vísindamaður við Jarðvísinda-
stofnun Háskólans, fjallar um eldgosið í Nornahrauni og framgang þess
frá upphafi til dagsins í dag í fyrirlestraröðinni Vísindi á mannamáli.
Fyrirlesturinn verður 17. febrúar nk. kl. 12.10 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Ármann, sem er í hópi þekktustu jarðvísindamanna landsins, hefur ásamt
hópi vísindamanna við Jarðvísindastofnun Háskólans og Veðurstofu Íslands
staðið í ströngu frá því að gosið í Nornahrauni hófst í lok ágústmánaðar á
síðasta ári. Fram hafa farið ítarlegar rannsóknir, m.a. á aðdraganda gossins
og útbreiðslu þess og jarðskorpuhreyfingum í tengslum við eldsumbrotin.
Gosið er nú þegar orðið stærsta hraungos sem runnið hefur á Íslandi síðan
í Skaftáreldum. Í erindi sínu mun Ármann fara yfir framgang þess og þá
nýju þekkingu sem vísindamenn við háskólann hafa aflað með rannsóknum
sínum.
Vísindi á mannamáli er fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem hófst haustið 2014 að frumkvæði
Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands. Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig
vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu
vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks.
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
•
15
0732
SKAFTÁRHREPPUR Eygló Kristjáns-
dóttir, fráfarandi sveitarstjóri
Skaftárhrepps, greiddi sér hærri
laun en greint var frá í ráðningar-
samningi við hana.
Eygló greiddi sér sömu upp-
hæð og aðrir starfsmenn fá fyrir
kaffitíma en sú upphæð var ekki
tilgreind í ráðningarsamningi við
hana.
Þetta var meðal þeirra atriða
sem ollu því að trúnaðarbrestur
varð milli hennar og meirihluta
hreppsnefndar Skaftárhrepps. Að
endingu var Eygló látin fara sem
sveitarstjóri og mun hún hætta
störfum í lok mánaðarins.
Eva Björk Harðardóttir, odd-
viti hreppsnefndar Skaftárhrepps,
segir málið hafa farið í ákveðinn
farveg upp á síðkastið.
„Við fórum, öll hreppsnefnd-
in, inn í þetta kjörtímabil saman
og ætluðum að
vinna saman.
Hins vegar er
ekki meirihluti
lengur í hrepps-
nefndinni og
því ekki sam-
starfsgrundvöll-
ur lengur. Við
viljum þó ekki
greina frá því
nákvæmlega hvað veldur þessum
trúnaðarbresti og ætlum okkur
ekki að fara þá leið í málinu,“ segir
hún.
Á síðasta ári kom upp nokkur
óánægja meðal starfsmanna sveit-
arfélagsins með kaffiaðstöðu.
Stéttarfélag starfsmanna krafðist
þess að starfsmenn fengju greitt
fyrir kaffitímann vegna aðstöðu-
leysis og á endanum var ákveðið
að fara þá leið innan sveitarfélags-
ins. Sveitarstjóri greiddi sér einnig
fyrir kaffitíma eins og aðrir starfs-
menn, í óþökk meirihluta hrepps-
nefndar.
Eva Björk vill ekki ræða þetta
tiltekna mál en segir það vissu-
lega hafa verið einn hluta af þeim
trúnaðarbresti sem átti sér stað
milli hreppsnefndarmeirihlutans
og sveitarstjóra. „Það eru nokk-
ur atriði sem við ætlum ekkert að
telja upp, það er ákvörðun okkar
sem stöndum að þessu. Það held ég
að gagnist engum að fara þá leið
og við værum engu bættari eftir
svoleiðis málflutning,“ segir Eva
Björk. „Það er bara ekki lengur
meirihluti innan hreppsnefndar
með hana og þar við situr.“
Samstarf þeirra Evu Bjarkar
og Eyglóar hefur ekki verið gott
síðustu mánuði og hafa samskipti
þeirra ekki verið mikil. „Tíminn
líður og þetta er niðurstaðan. Ég
sagði sveitarstjóra að ég væri þess
fullviss að hún gæti unnið með
öðrum aðilum þó að okkar sam-
starf hafi ekki gengið sem skyldi.
Við vonum bara að allir gangi sátt-
ir frá þessu. Ég mun allavega ekki
fara að tína neitt á hana,“ segir Eva
Björk.
Ekki náðist í Eygló Kristjáns-
dóttur, fráfarandi sveitarstjóra.
sveinn@frettabladid.is
Launin hærri
en samningur
sagði til um
Stirt hafði verið milli oddvita og sveitarstjóra í Skaftár-
hreppi áður en kom að starfslokum sveitarstjórans.
Trúnaðarbrestur varð milli sveitarstjóra og meirihluta
hreppsnefndar þegar ljóst var að sveitarstjórinn hafði
notið launagreiðslna utan skilmála ráðningarsamnings.
EYGLÓ KRIST-
JÁNSDÓTTIR
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Auglýst verður eftir nýjum oddvita Skaftárhrepps í næstu
viku. Að sögn oddvita sveitarstjórnar þurfti samvinna þeirra að enda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við
vonum bara
að allir gangi
sáttir frá
þessu. Ég
mun allavega
ekki fara að
týna neitt á hana.
Eva Björk Harðardóttir,
oddviti Skaftárhrepps.
VIÐSKIPTI Greiningardeild Arion banka spáir 0,7 prósenta hækkun á
vísitölu neysluverðs í febrúar og Greining Íslandsbanka 0,8 prósenta
hækkun.
Gangi spár bankanna eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 0,8 prósent-
um í 0,9 prósent. „Og er lægsta gildi ársverðbólgunnar þar með að
baki í bili,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka í gær. Verðbólga verði
þó áfram undir neðri þolmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans,
þriðja mánuðinn í röð.
Greiningardeild Arion banka segir þyngst vega að útsöluáhrif gangi
til baka í mánuðinum. Þá hafi eldsneytisverð hækkað frá síðustu mæl-
ingu og gert sé ráð fyrir að húsnæðisverð hækki einnig lítillega í mán-
uðinum. - ngy
Greiningardeildir spá smávægilegri aukningu á verðbólgu:
Útsöluáhrif sögð ganga til baka
KJARAMÁL Kaupmáttur launa var 4,2
prósentum meiri í lok síðasta árs
en hann var árið 2006, samkvæmt
nýrri skýrslu stóru bandalaganna
í verkalýðshreyfingunni, Samtaka
atvinnulífsins, ríkis og sveitarfé-
laga.
Nú þegar risavaxin samningalota
er að hefjast á vinnumarkaðnum er
lögð fram skýrsla sem sýnir hvern-
ig launaþróun hefur verið frá 2006
og hvernig efnahagsumhverfið hér
er í samanburði við nágrannalönd-
in. Um 30 prósent vinnumarkaðar-
ins falla utan við skýrsluna, svo sem
eins og læknar, flugmenn og aðrar
stéttir sem ekki eru hluti stóru
bandalaganna.
Rannsóknin leiðir í ljós að
launaþróun einstakra hópa frá árinu
2006 til síðasta árs er með svipuðum
hætti á tímabilinu, þótt misjafnt sé
á hverjum tíma hverjir hækka mest.
Þá hefur kaupmáttur nokkurn
veginn fylgt þróun launavísitölu.
Hann hrundi á árunum 2008 og
2009, en hefur að jafnaði aukist um
4,2 prósent frá 2006.
Oddur Jakobsson, hagfræðing-
ur og fulltrúi Kennarasambands
Íslands í vinnuhópi sem sá um
skýrslugerðina, segir einstaka hópa
innan verkalýðshreyfingarinnar fá
svipaðar launahækkanir þegar til
lengri tíma er litið. „Já, frá 2006 má
kannski segja það. En auðvitað er
staðan ekki hnífjöfn og menn deila
um muninn,“ segir Oddur.
Vinnumarkaðurinn á Íslandi er
um margt ólíkur vinnumarkaði í
helstu viðskiptalöndum þar sem
stöðugleikinn er meiri. Meginmun-
urinn er vegna mikillar verðbólgu
hér, óstöðugs gjaldmiðils og mik-
illa sveiflna í efnahagslífinu. Þá
eru skammtímavextir um fjórum
prósentum og langtímavextir um
sex prósentum hærri hér en í við-
skiptalöndunum.
Hannes G. Sigurðsson, hagfræð-
ingur og fulltrúi Samtaka atvinnu-
lífsins í vinnuhópnum, segir að ef
vextir væru þeir sömu hér og í við-
skiptalöndum Íslendinga, mætti
hækka laun um 10 prósent. Enda
hafi vextir áhrif á framleiðni. - hmp
Einstakir hópar fá svipaða hækkun þegar til lengri tíma er litið:
Hækkunin 57 til 74% frá 2006
VR krefst þess að lægstu laun félagsmanna hækki um 40 þúsund krónur á
mánuði og lágmarkslaun verði 254 þúsund krónur, í samningi sem gerður verði
til eins árs. Félagið kynnti Samtökum atvinnulífsins kröfugerð
sína í gær. Laun hækki að meðaltali um 24 þúsund auk leiðrétt-
ingar vegna launaþróunar. Kostnaður atvinnurekenda af þessu
er sagður verða tæpir sjö milljarðar króna.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir kröfurnar raunhæf-
ar. „Að okkar mati eru þær það. Við lögðum fram mjög góðar
og ítarlegar skýringar og útreikninga með okkar kröfugerð og
byggjum á þeim,“ segir hún. Farið sé fram á samning til aðeins
eins árs því mat félagsins sé að staðan í dag sé ekki nægjanlega
traust. „Við höfum áhyggjur af hvernig við förum inn í afnám gjaldeyrishaftanna
og svo er traustið til stjórnvalda einfaldlega ekki gott.“
VR vill 254 þúsund króna lágmarkslaun
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
F
-E
8
3
4
1
3
C
F
-E
6
F
8
1
3
C
F
-E
5
B
C
1
3
C
F
-E
4
8
0
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K