Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 80
| HELGIN KRAKKAR | 44
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Ljóðið
Brandarar
Í hvaða skóla ertu, Unnur Hlíf,
og hvað þykir þér skemmti-
legast að læra? „Vatnsenda-
skóli er minn skóli og tungumál
eru algjörlega mín sterka hlið,
mér finnst langskemmtilegast í
öllum tungumálatímunum.“
Er langt síðan þú byrjaðir að
yrkja? „Ég hef ort svo lengi
sem ég man eftir mér. Ég fann
mjög skemmtilegt ljóð um dag-
inn eftir mig sem ég orti um
himininn þegar ég var fimm
ára, mamma sagði mér reynd-
ar að það væri nokkurs konar
afbrigði af texta við lag sem
ég lærði þá í leikskólanum.“
Sestu niður með blað og blý-
ant þegar þú yrkir eða koma
ljóðin til þín hvar sem er?
„Ljóðin eru mjög gjörn á að
koma til mín þegar ég er alveg
að sofna. Stundum fer ég út í
göngutúra með bókina mína
og skrifa niður það sem ég
sé. Sum ljóð sem ég yrki eru
tengd verkefnum í skólanum
og mörg eru sprottin af pers-
ónulegri reynslu. Þannig að
það má segja að ég skrifi eigin-
lega hvar sem er og á hvaða
tíma sem er. Síðan skrifa ég
líka sögur og lagatexta og sem
jafnvel lög.“
Veltir þú fyrir þér bragar-
háttum? „Ég prófaði einhvern
tímann að skrifa ljóð með
stuðlum og höfuðstöfum sem
átti að vera fjórar línur en ég
komst ekki lengra en í þriðju,
þá var ég stopp. Ég legg aftur
á móti upp úr hrynjandinni
í ljóðunum, að textinn flæði
vel.“
Lestu mikið og þá hvern-
ig bækur? „Ég elska að lesa
og mér finnst það ótrúlega
gaman en ég var miklu dug-
legri að lesa þegar ég var
yngri. Mér finnst skemmtileg-
ast að lesa um skáldaðan raun-
veruleika, ef svo má komast að
orði, sem sagt skáldsögur sem
gætu átt sér stað í raunveru-
leikanum. Í augnablikinu er ég
að lesa Töfradísina, sem er að
vísu ævintýrabók og síðasta
bókin í röðinni um gullgerðar-
manninn Nicholas Flamel.“
Hver eru helstu áhugamálin?
„Listir, tónlist, píanó, að lesa
og skrifa, mér finnst líka mjög
gaman að dansa heima í stofu
og syngja hástöfum í sturt-
unni.“
Hefurðu farið í eftirminnilegt
ferðalag? „Ég fór til Noregs
og Danmerkur í sömu ferðinni
fyrir nokkrum árum og ákvað
að fara ekkert í tölvuna á
meðan ég var þar. Það er ansi
eftirminnilegt þar sem ég naut
ferðarinnar miklu betur.“
Hvað dreymir þig helst um að
verða? „Ég ætla mér að verða
leikkona, rithöfundur og skáld.
Ég stefni á leiklistarsvið í fram-
haldsskóla en gæti líka hugsað
mér að læra leikstjórn í fram-
tíðinni.“
Ákvað að opna ekki
tölvuna í ferðalagi
Hin 15 ára Unnur Hlíf Rúnarsdóttir hlaut 1. verðlaun í ljóðasamkeppni
grunnskóla Kópavogs, fyrir tvö ljóð. Hún elskar að lesa og hefur ort svo lengi
sem hún man, dansar líka heima í stofu og syngur hástöfum í sturtunni.
LJÓÐSKÁLDIÐ „Stundum fer ég í göngutúra með bókina mína og skrifa niður það
sem ég sé,“ segir Unnur Hlíf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tveir meingallaðir túnfiskar
sem koma hvor úr sinni dós
sameinast á miðri leið
og verða sem eitt
að undurfallegri rós
Ljóð eft ir Unni Hlíf
Auðlindir
alheimsins
Kennari: „Af hverju lærir þú ekki
neitt, Hlynur minn?“
Svenni: „Af því að ég er alltaf að
hlusta á þig.“
Kennarinn: „Jæja, nú skuluð þið
skrifa stíl um hvað þið munduð gera
ef þið eignuðust allt í einu hundrað
milljónir.“
Lati Geiri var fljótastur með sinn
stíl, aldrei þessu vant. Þegar kenn-
arinn tók við stílnum stóð þar bara
eitt orð: Ekkert.
Kennari er að kenna Ingu litlu að
skrifa stafi. „Hvar er nú punkturinn
yfir i-ið, Inga mín?“ spurði hann.
„Hann er í blýantinum enn þá,“ svar-
aði sú stutta.
Sigga var í fyrsta bekk. Einn daginn
þegar hún kom heim spurði pabbi:
„Jæja, lærðirðu eitthvað í skólanum
í dag, Sigga mín?“
„Nei, ekki ég, bara kennarinn. Ég
sýndi honum hvernig ætti að skrifa
nafnið hennar kisu.“
Bragi Halldórsson
135
„Ekki eru þetta frýnilegir fiskar,“ sagði Róbert og hryllti sig. „Þeir éta örugglega hvern
annan.“ „Það er líka þrautin,“ sagði Lísaloppa og spenningur leyndi sér ekki í röddinni.
„Getum við dregið þrjú bein strik á milli þeirra svo að hver fiskur verði í sér hólfi og þá
geta þeir ekki étið hvern annan.“ „Hm,“ sagði Kata. „Bara þrjú strik?“ Hún efaðist um
að það yrði nóg. Konráð horfði á fiskabúrið nokkra stund og sagði svo. „Ég held að ég
sé komin með þetta.“
Getur þú teiknað þrjú bein strik á milli fiskanna svo að hver þeirra verði í sér hólfi og
geti ekki étið hvern annan?
Sum ljóð sem ég
yrki eru tengd verkefn-
um í skólanum og mörg
eru sprottin af persónu-
legri reynslu. Þannig að
það má segja að ég skrifi
eiginlega hvar sem er og
á hvaða tíma sem er.
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
F
-F
B
F
4
1
3
C
F
-F
A
B
8
1
3
C
F
-F
9
7
C
1
3
C
F
-F
8
4
0
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K