Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 78
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Þessi frétt er frá Búlgar-íu. Ungur hermaður, varla orðinn tvítugur, var nýlega handtekinn í herbúðum sínum í þorpinu Negush evo skammt frá höfuðborginni Sófíu og grunaður um aðild að bar- áttusamtökum íslamista. Slík sam- tök hafa verið að skjóta upp kollin- um í Búlgaríu, eins og allvíða annars staðar í Evrópu, enda töluvert um múslima þar í landi vegna nálægðar- innar við Tyrkland, Kosovo og Alban- íu þar sem múslimar ráða ríkjum. Ungi maðurinn var yfirheyrður og fór lítt eða ekki í felur með samúð sína með öfgamönnum. Tími kristin- dómsins væri liðinn en tími hins herskáa íslams væri runninn upp. Mun hann hafa fimbulfambað um þetta af töluverðri mælsku frammi fyrir dómurunum við þann herdóm- stól sem hann var leiddur fyrir. En sjálfur kvaðst hann þó ekki hafa neitt illt haft í hyggju. Hinir háttsettu her- foringjar dómstólsins létu hann að lokum lausan og kváðust mundu gefa honum „tíma til að hugsa sinn gang“ en áfram yrði fylgst með honum. Píslarvottur Allah En foringjunum hefndist fyrir lin- kind sína. Ungi maðurinn hugsaði vissulega sinn gang, en niðurstaða hans var bersýnilega ekki sú sem yfirboðarar hans höfðu vonast eftir. Rétt eftir að unga hermanninum var sleppt birtist hann við kirkju eina í Vazrazhdane-hverfi í Sófíu og lagði formálalaust eld að henni. Hún brann til grunna og áttu kristnir menn sem voru við messu í kirkjunni fótum fjör að launa. Ungi maðurinn var nú hand- tekinn að nýju og sökum þess að hann taldist vera ótíndur hryðjuverkamað- ur og hafa lagt líf fjölda fólks í mikla og yfirvofandi hættu var hann ekki tekinn neinum vettlingatökum í þetta sinn. Eftir hraðsoðin réttarhöld var hann dæmdur til dauða, en aftökur tíðkast sem kunnugt er enn í Búlgar- íu þegar um herdómstóla er að ræða, þótt afar sjaldgæfar séu orðnar. Mun ungi hermaðurinn hafa brugðist hortuglega við dauðadómnum, lýsti engri iðrun og kvaðst ganga glaður til píslarvættis fyrir Allah. Var hann svo tekinn af lífi af aftökusveit her- manna. Getur ekki staðist En öfgamenn íslams láta ekki að sér hæða. Ekki leið á löngu áður en yfir- völd veittu því athygli að gröf brennu- vargsins í smábænum Boboshevo, þar sem hann fæddist, var orðin að helgi- stað þar sem sanntrúaðir öfgamenn vottuðu „píslarvottinum“ virðingu sína. Og um alla Búlgaríu og Balkan- skagann og víðar í Evrópu furðuðu menn sig á því ofstæki og miskunnar- leysi sem gripið hefði suma múslima, að ungi maðurinn skyldi ekkert læra af þeirri miskunnsemi sem fyrri her- rétturinn sýndi honum, heldur halda fast við að réttast væri bæði að deyja og drepa fyrir trú sína. Þeir lesendur sem best eru að sér um sögu dauðarefsinga í Búlgaríu munu fyrstir hafa áttað sig á því að þessi „frétt“ getur náttúrlega ekki staðist. Dauðarefsingar voru form- lega afnumdar í Búlgaríu árið 1999 í framhaldi af umsókn landsins um aðild að Evrópusambandinu, en þá hafði enginn verið tekinn af lífi í landinu í áratug, eða síðan komm- únistastjórnin þar hrundi. Og aðrir lesendur vel að sér um landafræði og sögu Búlgaríu munu hafa rekið upp stór augu þegar hinn múslimski hermdarverkamaður var sagður fæddur í Boboshevo, en í þeim bæ búa áreiðanlega ekki múslimar. Svo föstum fótum stendur kristindóm- urinn í Boboshevo að bærinn fékk þegar á miðöldum auknefnið „búlg- arska Jerúsalem“ – og þar og í næsta nágrenni er aragrúi af kirkjum og klaustrum, og frægust af öllum er kirkja heilags Dímítars sem er að vísu lítil en prýdd stórmerkilegum freskum og þjóðargersemi í Búlg- aríu. Og ekki nóg með þetta: Skammt frá bænum Boboshevo er hellir sá þar sem heilagur Ívan Rilskí bjó á 10du öld, einn helsti þjóðardýrlingur Búlgara, talinn helgur maður jafn- vel meðan hann lifði og vann krafta- verk. Múslimar búa – trúi ég – engir í þessum sannkristna 1.500 manna bæ sem Boboshevo er, og undir engum kringumstæðum yrði þar látið líðast að leiði hryðjuverkamanns íslamista yrði að helgistað. Og er þá ótalið það sem allra helst mælir á móti því að frásögnin um búlgarska hermanninn geti verið rétt, sum sé að þótt múslimar séu vissu- lega um 7,8 prósent íbúa í Búlgaríu hefur þar ekkert borið á uppgangi öfgamanna sem beita trúnni fyrir sig. Enda er öll frásögnin um hermann- inn hreinn tilbúningur. Ekki minnsti fótur fyrir henni! Eða þannig. Hún er reyndar dag- sönn. Nema hvað hún gerðist í öðru landi og á öðrum tíma. Og snerist um allt önnur trúar- brögð en íslam. Kristindómur í Rómaveldi Það var í byrjun fjórðu aldar eftir Krist. Rómaveldi var enn með býsna hýrri há þótt einmitt um þær mund- ir væri það plagað af innanlands- ófriði er kappsamir hershöfðingjar börðust um keisaratignina, og voru þeir helstir Konstantínus og Maxen- tíus. Í norðurhluta Tyrklands, sem nú heitir, var héraðið Amasea og þar hafði herflokkur aðsetur og meðal óbreyttu dátanna var kornungur maður að nafni Theódór frá nálægu þorpi sem kallað var Euch aita. Kristindómur var þá orðinn nokkuð útbreiddur um Rómaveldi og meðal þeirra sem aðhylltust trú þessa var fyrrnefndur Theódór. Félagar hans í hernum voru hins vegar flestir Míþra-trúar en þau trúarbrögð háðu um þær mundir harða keppni við kristindóm um hylli almennings. Hin hefðbundnu rómversku trúar- brögð með Júpíter í broddi fylk- ingar voru þá orðin lítið annað en formið eitt, en öflug sólartrú var einna öflugust í ríkinu. Míþra-trú og kristindómur sóttu hins vegar fast á. Theódór neitaði að taka þátt í helgiathöfnum félaga sinna, sem fól- ust ekki síst í viðhafnarkvöldverði og launhelgum þar sem blóð guðs- ins var meðal annars borið fram – og hefði það þó ekki átt að koma kristnum pilti mjög spánskt fyrir sjónir. Theódór var handtekinn og skammaður fyrir að vilja ekki vera með félögum sínum við trúariðk- anir þeirra eða annarra „heiðinna“ manna, en svo var honum sleppt. Þótt kristni væri þá bönnuð og kristnir menn hefðu iðulega sætt ofsóknum vildu menn sýna þessum unga ákafa pilti umburðarlyndi. AF HRYÐJUVERKAMÖNNUM OG DÝRLINGUM FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson Rakst á frásögn um ungan her- mann sem vann ill- virki, sem sumir vilja þó telja guð- dómlegt. En öfgamenn íslams láta ekki að sér hæða. Ekki leið á löngu áður en yfirvöld veittu því athygli að gröf brennu- vargsins í smábænum Boboshevo, þar sem hann fæddist, var orðin að helgistað þar sem sann- trúaðir öfgamenn vottuðu „píslarvott- inum“ virð- ingu sína. Hryðjuverkamaður kristinista En umburðarlyndi var nokkuð sem ekki virtist ofarlega í huga þessa unga kristna pilts. Hann rauk þegar til í sínum eldlega trúarmóði og kveikti í guðahofi þar í nágrenninu og brann það til kaldra kola. Ekki veit ég hvort einhverj- ir saklausir dýrkendur hinna fornu guða létu þar lífið, það verður þó að teljast senni- legt því alltént sýndu yfirvöldin piltinum ófor- skammaða nú enga miskunn. Hann var tek- inn og pyntað- ur og síðan líf- látinn. Líklega hafa dómararnir kallað hann hryðjuverka- mann kristinista. Lík- lega hefur hann sjálfur látið svo um mælt þegar hann var leiddur á aftökustað að nú væri „hefnt Drottins“. Verndardýrlingur hermanna Þetta var árið 306. Nema hvað, eftir að Theódór hafði verið jarðsett- ur í Euchaita þótti fljótlega mikil helgi á legstað hans og þangað fóru að koma pílagrímar sem litu á hann sem sannan píslar- vott kristin- dómsins, enda hefði hann látið líf sitt fyrir ein- læga trú sína á Jesú Krist. Þótt í raun- inni hefði hann bara verið tekinn af lífi fyrir það hryðjuverk að brenna hof fólks sem hafði annan átrúnað en hann. En kristnir menn litu ekki þannig á málin, og þegar svo brá við að Konstantínus hershöfðingi tók upp málstað kristninnar í erjum sínum við Maxentíus og tryggði sér með því nægan stuðning til að verða keisari, þá stóðu hinir kristnu með pálmann í höndunum. Og hinn ungi Theódór varð æ heilagri í augum þeirra, hann var gerður að opinberum dýrlingi og fjöldi kirkna helgaður honum, meðal annars í borginni sem Konstantínus keisari stofnaði: Konstantínópel, og víðar. Hann varð sérstakur verndar- dýrlingur hermanna og krossfararnir hétu til dæmis mjög á heilagan Theó- dór þegar þeir hófu sitt jíhad, eða heilagt stríð, gegn múslimum seinna meir. Og í nafni hans brenndu þeir helgistaði múslima og stráfelldu alla sem ekki játuðu sömu trú og þeir. Og enn er Theódór frá Amaseu viður- kenndur og dáður dýrlingur kristinn- ar kirkju, aðallega í austurvegi en þó einnig í kaþólsku kirkjunni. Sá góði maður Frans páfi, hann er sem sé yfir kirkju sem tignar sérstaklega hinn unga hryðjuverkamann og telur hann búa í sérstakri náð guðs. Terroristar sem verða píslarvottar Og hvað meina ég svo með þessu? Er ég að reyna að afsaka hryðju- verkamenn nútímans sem kenndir eru við íslamista? Þeir séu á einhvern hátt skárri af því að fyrir 1.700 árum hafi verið til herskáir hryðjuverkamenn sem unnu sín illvirki í nafni kristindóms? Nei, alls ekki. Ekkert getur afsakað hryðjuverk, allra síst önnur hryðjuverk fyrir löngu. En menn mega samt hafa í huga að hin „kristna heimsmynd“ sem menn telja íslam- istum svo uppsigað við, hún felst ekki ævinlega í umburðar- lyndi og víðsýni og kær- leika. Stundum felst hún í þröngsýni og umburðarleysi og ofbeldi trúarviss- unnar. Stund- um felst hún í terror istum sem nú eru dýr- lingar, rétt eins og íslamistar vilja nú gera sína terrorista að píslarvottum. Gáum að því. Vegir liggja saman En svo að lokum enn ein sönnun þess hve lífið er skrýtið og skemmtilegt og þó að mannkynssagan sé garður gangstíga sem greinast í sífellu, þá liggja sumir þeirra saman að nýju. Dæmisagan um hinn „búlgarska hermann“ í upphafi greinarinnar var sem sé fullkominn tilbúningur minn, og heimaþorp hans Boboshevo valdi ég af algjöru handa- hófi af lista Wiki pedíu yfir smábæi í Búlgaríu. En hvað kemur í ljós? Jú, í þessum litla bæ eru ekki aðeins merk guðshús helguð heilögum Dímítar og heilögum Ívani Rilskí, sem ég nefndi í upphafi. Þar reynist líka vera stór- merkileg kirkja heilags Theódórs frá Amaseu, ósköp lítil og svo illa farin af aldurdómi að byggt hefur verið timb- urhús utan um hana svo hún hrynji ekki alveg, en þar eru líka snjáðar en þó svo fallegar og alveg ómetanlegar freskur til minningar um þennan unga … ja, þennan unga hvað? Dýrling? Ofsatrúaðan terrorista? DÝRLINGUR KIRKJUNNAR THEÓDÓR FRÁ AMASEU HRYÐJU- VERKAMAÐUR ÍSLAMISTA AMASEA 1 3 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :1 2 F B 1 1 2 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 D 0 -0 F B 4 1 3 D 0 -0 E 7 8 1 3 D 0 -0 D 3 C 1 3 D 0 -0 C 0 0 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 1 1 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.