Fréttablaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 38
14. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 38
Lengi vel var ég sannfærður um að silfruðu ljósdílarn-ir á næturhimninum væru fjarlægar jarðir. Ekki sól-stjörnur eins og ég veit nú, heldur nákvæmar eftir-
myndir af heimili okkar. Móðir mín
leiðrétti ekki þennan misskilning
þegar ég spurði hana hvort það væri
fólk á þessum jörðum. Við vorum á
Hellisheiði, á austurleið eftir viku-
lega heimsókn á Landspítalann (ég
heimtaði ávallt að fara með). Svar-
ið man ég ekki orðrétt. Eitthvað í þá
veru að heimurinn væri mjög stór og
að fólk væri líklega hvergi til nema
á Jörðinni. Hún sagðist þó vona að
svo væri. Þetta var árið 1995. Skipu-
leg leit að framandi lífi í alheiminum
hafði þá staðið í 36 ár og stendur enn.
Líkindi og bjartsýni takast á
Í dag jaðrar það við guðlast þegar
fullyrt er að maðurinn sé einn í
alheiminum. Geimsjónaukinn Kepl-
er hefur á síðustu árum fundið 1.800
fjarreikistjörnur. Ein af hverjum
fimm stjörnum hefur að geyma
reikistjörnu þar sem aðstæður eru
taldar vera lífvænlegar og áætlað er
að heildarfjöldi þeirra í Vetrarbraut-
inni sé ellefu milljarðar.
Hugmynd eðlisfræðinga árið 1960
var einnig merkileg. Að hlusta eftir
öflugum orkuskotum á mjórri band-
vídd vetnisgass (1.420 MHz) sem
aðeins tæknivædd samfélög þekkja.
Við vinnum að þessu markmiði enn í
dag en þögnin ein hefur mætt okkur.
Við viðurkennum fúslega að lög-
mál efna- og eðlisfræðinnar eru hin
sömu víðast hvar í víðáttu alheims-
ins. Grundvallarsameindir lífefna-
fræðinnar hér á Jörðinni eru síðan
tiltölulega algengar í gasskýjum
milli stjarnanna. Því miður höfum
við ekki enn útskýringu á því hvern-
ig líf verður til. Darwin sjálfur sagði
að þessari spurningu yrði aldrei
svarað. Þannig getum við ekki úti-
lokað að líf á Jörðinni sé heppnis-
skot, summa stórkostlegra tilviljana.
Æviskeið stjarna á borð við Sólina
er síðan tiltölulega stutt í þróunar-
legu samhengi. Það er nánast útilok-
að að við kynnumst verum sem eru
á sambærilegu þróunarstigi og við.
Framandleiki veranna verður algjör.
Álíka framandi og daglegt líf manns-
ins er fyrir bakteríu.
„Halló?“
Vísindaskáldskapurinn boðar hrun
stofnana þegar fyrstu kynni við
geimverur eiga sér stað. Stríð og
óeirðir. En er það svo? Þegar Darw-
in kynnti þróunarkenninguna voru
viðbrögðin ekki upplausn, þvert á
móti. Sama á við um sólmiðjukenn-
ingu Kópernikusar. Jafnframt sýna
rannsóknir að fylgjendur helstu
trúarbragða telja það hafa lítil
áhrif á afstöðu sína ef litlir græn-
ir menn birtast í túngarðinum (slík
uppákoma eflir líklega trúfestu, ef
eitthvað er).
Sá sem kemur til með að tala
fyrir hönd mannkyns er síðan Paul
nokkur Davies, eðlisfræðingur og
formaður aðgerðahóps SETI eftir
að samskiptum hefur verið náð.
Hópurinn hefur sett fram sam-
skiptareglur ef geimverur hafa
samband. Reglurnar hafa víðtæka
skírskotun og hafa verið sam-
þykktar af helstu vísindasamtök-
um. Lagalega hafa þessar reglur
þó ekkert vægi.
Hópurinn er skipaður vísinda-
mönnum með fjölbreyttan bakgrunn.
Þetta hljómar eins og vísindaskáld-
skapur en að vissu leyti getum við
þakkað Verne, Asimov og Clarke og
fleiri góðum fyrir skrif sín. Ímynd-
unaraflið hefur oft fleytt okkur að
nýjum landamærum og kallað á
umræðu um ólíklegustu mál.
Hver hefur svörin?
„Það geta verið tölfræðileg líkindi að
líf hafi þróast í alheiminum en það er
allt önnur spurning hvort við munum
finna það,“ segir Huginn Freyr Þor-
steinsson vísindaheimspekingur.
„Það er þetta sem líklega vekur þessa
hræðslu mannsins, að vera einn. Þá
geta menn gripið til geimvera eða trú-
arbragða.“ Huginn bendir á hversu
agnarsmáar líkur eru á að komast í
tæri við geimverur sem hægt er að
eiga raunveruleg samskipti við. Jafn-
framt sé þessi þráhyggja okkar svip-
uð því sem viðgekkst fyrr á tímum
þegar hugmyndir um drauga voru
algengar. „Kannski finnst okkur
skrýtið að hugsa til þess að við séum
ein í alheiminum.“
„Áhugi okkar á þessum verum
snýst kannski að einhverju leyti um
von,“ segir Huginn. „Að mannkynið
sé ekki einsamalt, að það sé von um
að finna eitthvað annað. Mögulega er
þetta meiri von en vísindi.“
Þegar allt kemur til alls verða
kynni okkar af háþróuðum geimver-
um fundur með eigin framtíð. Von-
andi miðla verurnar reynslu sinni
og útskýra hvernig þeim tókst að ná
svo langt. Þessi fundur mun þó aldrei
uppfylla vonir okkar um endanleg
svör: Hver er tilgangur okkar? Hvað
er meðvitund? Af hverju deyjum við?
Von um framandi líf
Með stórkostlegum framförum í vísindum er nú í fyrsta skipti raunhæfur möguleiki á að
svara einni af höfuðspurningum mannkynssögunnar: Erum við virkilega ein í alheiminum?
Mögu-
lega er þetta
meiri von en
vísindi.
Huginn Freyr
Þorsteinsson
ÚTVARPS-
SJÓNAUKAR
Athuganir Keplers
gefa vísindamönn-
um færi á
hnitmiðuðum
rannsóknum
með útvarpssjón-
aukum.
NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Í 72 sekúndur, í ágúst
árið 1977, rýndi bandaríski
stjörnufræðingurinn Jerry R.
Ehman í rannsóknargögn Big
Ear-útvarpssjónaukans. Sjón-
aukinn hafði þá greint gríðar-
lega öflugt orkuskot. Hann
merkti talnarununa og ritaði
„Wow!“ Til að senda „Wow!-
merkið“ hefði þurft 2,2 gíga-
vatta senditæki (tækni sem
þekkist ekki á Jörðinni).
AMAZON KINDLE
Eitt af markmiðum mínum fyrir þetta ár var
að lesa meira af bókum og því kemur þetta
forrit sterkt inn.
FARM HEROES SAGA
Ég sé fyrir mér húsdýr og ávexti þegar ég
fer að sofa á kvöldin og í draumum mínum
stend ég í ástarsambandi við bónda … undir-
strikar hvað ég spila þennan leik alltof mikið.
FACEBOOK APPIÐ
Ég stend mig stundum að því að renna þum-
alputtanum upp og niður skjáinn tímunum
saman. Ætti frekar að stinga þumalputt-
anum upp í mig og fara fyrr að sofa.
FANTASY FOOTBALL BUDDY
Hér get ég gert allt sem þarf til að tryggja
að liðið sé klárt fyrir næstu umferð. Mjög
einfalt í notkun og þægilegt að geta stillt upp
liði vikunnar.
ZOMBIES, RUN! 3
Hér þarf maður að flýja undan uppvakn-
ingum og lenda í allskyns atvikum sem fá
mann til að vilja hlaupa lengra.
PLAYSTATION APPIÐ
Algjörlega nauðsynlegt fyrir þá sem eru
að missa sig í PlayStation 4 tölvunni. Hér
getur maður skoðað hverjir eru að spila og
hvað þeir eru að spila.
ARION BANKA APPIÐ
Ekki mest sexí appið í símanum mínum, en
kemur að góðum notum. Nokkurs konar
stafrænn gjaldkeri sem sinnir öllum mínum
þörfum þegar kemur að fjármálum.
DOMINO‘S APPIÐ
Einfalt og gott app sem skilar pitsunni
heilli heim. Svo í kjölfarið tek ég auð-
vitað þrjá kílómetra í Zombies, Run!
3 appinu … eða ekki.
GRIM FANDANGO
REMASTERED ★★ ★★ ★
PC ÆVINTÝRALEIKUR
Grim Fandango er vel skrifaður leikur
og fyndinn. Persónurnar vel talsettar
og eftirminnilegar. Leikurinn verður
þó fljótt að hálfgerðri martröð þar
sem spilarinn prófar sig áfram og
áfram við lausn þrauta. Oft liggur
ekki fyrir hver þrautin er og leitin
að þrautinni endar oft með snöggu
gúggli.
Lucastarts gaf leikinn fyrst út
1998. Söguhetjan er Manny Calavera
sem vinnur á eins konar ferðaskrif-
stofu sem selur látnum einstak-
lingum ferðir yfir í eilífðina. Manny
kemst síðan að því að eitthvað mis-
jafnt er í gangi í landi hinna dauðu
og hefst þá ævintýrið.
Leikurinn hefur nú verið endurút-
gefinn fyrir PC, PS4 og PSVita. Graf-
íkin, hljóð og fleira endurbætt. En
það þarf meira til. Framleiðendurnir
nýttu sér ekki tækifærið til að bæta
spilun og viðmót leiksins.
Húmorinn og persónurnar
vega ekki upp á móti þeirri miklu
tilraunastarfsemi sem leikmenn
ganga í gegnum til að spila leikinn.
Margir eru eflaust ósammála en
Grim Fandango hefði átt að vera
áfram í landi hinna dauðu.
- skó
Misheppnuð
upprisa Grim
Fandango
LAND HINNA DAUÐU Þrátt fyrir að
vera dánir sýna karakterar leiksins
mikinn húmor og eru vel talsettir.
GAME OF THRONES ★★★★ ★
XBONE/PS4 SPENNA
Leikjaframleiðandinn Telltale hefur
vakið verðskuldaða athygli á síðustu
misserum. Framleiðandinn hefur lagt
línurnar fyrir tiltölulega nýja tegund
styttri leikja sem gefnir eru út með
nokkurra vikna millibili.
Telltale ákvað að þróa nýja
seríu byggða á söguheimi Game of
Thrones. Eins og við var að búast
er afraksturinn nokkuð merkilegur.
Telltale kann að matreiða spennandi
leiki þar sem hasarinn felst í ákvörð-
unum og samtölum spilarans við
sögupersónurnar. Þetta er skáldsaga,
dulbúin sem tölvuleikur.
Í fyrstu tveimur köflunum í Game
of Thrones leikjaröðinni er ættbálkur
Forrestar, drottnara Ironwood, til um-
fjöllunar. Rétt eins og skáldsögurnar
og sjónvarpsþættirnir eru leikirnir
með eindæmum blóðugir, en jan-
framt vel skrifaðir og áhugaverðir.
Grafíkin er ekki upp á marga fiska en
það skiptir ekki máli, sagan sjálf er
stjarnan. Game of Thrones eftir Tell-
tale er eitthvað sem allir aðdáendur
GOT ættu að spila.
- khn
Leikið um
veldisstólinn
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
3G 9:41 AM
Domino‘s Arion banki
Playstation Sombies run 3 Kindle Farm Heroes
Fantasy buddyFacebook
Ólafur Þór
Jóelsson
rekstrarstjóri
heildsölu-
sviðs
Senu
1
3
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:1
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
0
-2
8
6
4
1
3
D
0
-2
7
2
8
1
3
D
0
-2
5
E
C
1
3
D
0
-2
4
B
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K