Fréttablaðið - 06.03.2015, Qupperneq 1
FRÉTTIR
Í gjafavörubúðinni Minju við Skóla-vörðustíg er ávallt eitthvað nýtt og spennandi að finna í hvert sinn sem nefið er rekið þar inn. Í búðinni starfar Tea María Avdic sem sýnir okkur nýja og spennandi vöru sem var að bætast við vöruúrval verslunarinnar. BagPod er snilldar smátaska með ellefu hólfum til að hafa skipulag á hlut-unum. „BagPod-smátaskan frá RedDog er einstök töskuhirsla úr striga með mörgum hólfum,“ segir Tea María, í versluninni Minju þar sem BagPod fæst.
„BagPod er ætlað að halda skipulega
utan um alla þá ómissandi hluti sem að jafnaði leynast í tösku hverrar konu
og stundum getur verið erfitt að finna í
einu stóru hólfi þar sem hlutirnir hafa
tilhneigingu til að fara í eina allsherjar
bendu.“
BagPod er vel skipulagt dömuveski
svo þú hafir allt þitt með þér án þess
að hugsa þig um eða leita. „Með einu
handtaki færir þú allar nauðsynjar úr einni tösku yfir í aðra, í íþróttatöskuna, inn-kaupatöskuna, ferða-töskuna eða hverja þá tösku sem nota á í það og það ki
HVER HLUTUR Á SÍNUM STAÐ MINJA KYNNIR BagPod er vel skipulögð smátaska með mörgum hólfum.
Þannig þarf ekki að leita að neinu í töskunni því hver hlutur á vísan stað.
ÞÚ KEMST ÞINN VEGEinleikurinn Þú kemst þinn veg verður sýndur í Norræna húsinu í dag og á sunnudag. Verkið er byggt á veru-leika Garðars Sölva Helgasonar sem glímt hefur við geðklofa um árabil en hefur tekist að lifa góðu lífi með hjálp umbunar kerfis sem hann hefur þróað.
M
EST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýs d
25
-5
4
ár
a
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINNÍ FRÉTTABLAÐINU
Lífi ð
6. MARS 2015
FÖSTUDAGUR
Sigríður Kristín,
lýðheilsufræðingur
HREYFING ER
MIKILVÆG FYRIR
LÍÐAN 2
Hollari matur
með betri matreiðslu
HRÁFÆÐISHIND-
BERJAKAKA MEÐ
PEKANBOTNI 4
Tíska og trend
í yfirhöfnum
HLÝJAR SLÁR ERU
MÁLIÐ Í ÞESSU
VEÐRI 10
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Föstudagur
12
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
6. mars 2015
55. tölublað 15. árgangur
Dómur um Vatnsenda Hæstiréttur
felldi úr gildi dóm héraðsdóms í
Vatnsendamáli. Erfingi telur Kópavog
alltaf hafa vitað að Þorsteinn var ekki
réttmætur eigandi. 2
Arðbærara en sæstrengur Ríkið
veitir 1,5 milljarða til Virk endurhæf-
ingarsjóðs á árunum 2015-2017. 4
Fá endurgreitt Ráðgert er að ríkið
endurgreiði hluta kostnaðar tónlistar-
manna við hljóðritun. 6
STOLTIR STUÐNINGSMENN Undankeppni í Skólahreysti var haldin í gær í Mýrinni í Garðabæ. Stuðningsmenn Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi voru sáttir með sitt fólk. Úrslitin fara fram í Laugardagshöll þann 22. apríl næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPORT Aníta Hinriksdóttir
keppir í 800 metra hlaupi á
EM í Prag í dag. 34
Réttindi barnanna
Steinunn Jakobsdóttir er fjáröflunar-
stjóri Unicef og bjó í Kambódíu í
fimm ár þar sem hún vann að því að
bæta heim barna og unglinga.
LÍFIÐ
SKOÐUN Björn Ó. Hall-
grímsson skrifar um
gæludýr í strætó. 16
blómvöndur mánaðarins
2.900kr
Hvítlaukur
frá Ítalíu
Laugalæk 6 & Óðinsgötu 1
Ný sending
365.is
Sími 1817
Til hvers að flækja hlutina?
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
FERÐAÞJÓNUSTA Skúli Mogensen, eigandi
og forstjóri WOW air, stefnir á að fimm-
falda flugflota félagsins á næstu fimm
árum samhliða uppbyggingu á leiðakerfi
milli Evrópu og Bandaríkjanna. Bæði
verður um leigu og kaup á farþegaþotum
að ræða, en flugfloti félagsins gæti því
verið 30 farþegavélar árið 2020.
„Við erum að bæta við okkur þremur
vélum til næsta árs, förum því úr sex í
níu vélar. Í framhaldi af því hef ég sagt að
miðað við stærð markaðarins, en 50 millj-
ónir manna fljúga yfir hafið árlega frá
Norður-Ameríku til Evrópu, þá er þetta
raunhæft,“ segir Skúli.
Ekki er liðinn mánuður síðan WOW air
tilkynnti um kaup á tveimur nýjum Airbus
A321-211 farþegavélum. Þær voru fengnar
með kaupleigu til 12 ára þannig að félagið
eignast þær á þeim tíma. Listaverð þess-
ara farþegavéla er um
15 milljarðar króna,
sem gefur hugmynd
um umfang fjárfestinga
í flugheiminum.
Spurður hvort um
frekari kaup verði að
ræða eða leigu á þeim
24 vélum sem hér um
ræðir segir Skúli:
„Þessi uppbygging
mun áfram verða blanda af þessu tvennu.
Þetta verða nýjar og nýlegar Airbus 320-
og Airbus 321-vélar,“ segir Skúli en þær
vélar sem WOW hefur til umráða í dag
eru einmitt af þessari tegund.
Til samanburðar má nefna að flugfloti
Icelandair í millilandaflugi – farþegaflugi
– er í dag 24 vélar; sex fleiri en árið 2013.
- shá / sjá síðu 11
Skúli Mogensen telur raunhæft að WOW air reki 30 farþegaþotur árið 2020:
Fimmfaldar flota á fimm árum
FJÁRMÁL Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra þvertekur fyrir að
búið sé að taka ákvörðun um álagn-
ingu útgönguskatts til að losa um
fjármagnshöftin.
„Varðandi útgönguskattinn hef ég
margoft tekið fram að ekki hefur
verið tekin ákvörðun um útgöngu-
skatt og þaðan af síður hef ég boðað
einhverja tiltekna prósentu sem
menn eru farnir að vísa til,“ sagði
Bjarni á þingi í gær, í svari við
fyrir spurn Katrínar Jakobsdóttir,
formanns Vinstri grænna.
Innan fjármálageirans undrast
menn hvað tefur ákvarðanir um
losun hafta, en skilyrði eru góð.
Heimildum Fréttablaðsins ber
ekki saman. Sumar fullyrða að
fallið hafi verið frá útgönguskatti,
en aðrar að verið sé að vinna úr
tillögum, en flækjustigið sé hátt.
Samkvæmt heimildum blaðsins
liggur vandamálið fyrst og fremst
í því að erfitt er að setja skatt sem
aðeins tekur til fjármagns úr
þrotabúunum heldur yrði hann að
ná yfir allt útstreymi fjármagns.
Það mundi hafa áhrif á fjárfesting-
ar aðila eins og lífeyrissjóðanna og
jafnvel erlendar
skuldir fyrir-
tækja.
Stjórnarand-
staðan hefur
gagnrýnt sam-
ráðsleysi um
afnám hafta
og Fréttablað-
ið hefur heim-
ildir fyrir því
að innan Vinstri grænna séu þær
raddir háværar að rétt sé að flokk-
urinn segi sig úr samráðsnefnd um
málið. - kóp / sjá síðu 8
Óvissa er uppi um
útgönguskattinn
Engin ákvörðun hefur verið tekin um álagningu útgönguskatts til að losa um fjár-
magnshöft. Æ fleiri telja að slíkt myndi setja hömlur á hagkerfið. Óánægja með
samráðsleysi stjórnvalda. Innan Vinstri grænna vilja sumir segja sig úr samráði.
BJARNI
BENEDIKTSSON
MENNING Raunsæið í
barna- og unglingabókum
rætt í Gerðubergi. 24
LÍFIÐ Blendin viðbrögð við
sýningu Bjarkar í MoMA um
síðustu helgi. 38
Bolungarvík 1° ASA 16
Akureyri 2° SA 9
Egilsstaðir 2° SA 16
Kirkjubæjarkl. 3° SSV 12
Reykjavík 2° SV 8
Allhvasst eða hvasst Í dag má búast
við stormi um tíma en lægir smám
saman um og eftir hádegið, fyrst SV-til.
Úrkomulítið N- og NA-lands. 4
HEILBRIGÐISMÁL „Hann ríghélt
í vonina og reyndi öll ráð,“ segir
Hildur Erlingsdóttir, sem missti
föður sinn úr krabbameini árið
2011. Á árinu
sem hann lést
eyddi hann fúlg-
um fjár í lyfið
Salicinium og
meðferð á Havaí
þar sem hann
fékk lyfið í æð.
Efnið og með-
ferðina keypti
hann með milli-
göngu sama sölumanns og seldi
Guðmundi Hallvarðssyni sama
efni (Orasal) fyrir svipaða upp-
hæð í veikindum hans.
Sölumaðurinn seldi föður Hild-
ar ekki eingöngu efnið til lækn-
ingar. Fyrir milligöngu hans var
hann sendur á læknastofu á Havaí
þar sem hann fékk efnið í æð. Þá
hafði sölumaðurinn einnig milli-
göngu um að kaupa golfbíl fyrir
hinn deyjandi mann sem hann
fékk prósentur af. - kbg / sjá síðu 10
Borgaði fúlgur fjár fyrir efni:
Plataður fár-
veikur til Havaí
SKÚLI
MOGENSEN
FARÞEGAVÉLAR
er áætlaður fj öldi í
fl ugvélafl ota Wow
air eft ir fi mm ár.
Bæði verður um
leigu og kaup á
þotum að ræða.
Flugfl oti Icelandair
í millilandafl ugi er í
dag 24 vélar.
30
HILDUR
ERLINGSDÓTTIR
NEYTENDAMÁL Íslensk stjórnvöld
hafa ekki virt þá skyldu að veita
umbeðnar upplýsingar í tveimur
málum er varða fæðuöryggi og
dýraheilbrigði. Þetta kemur fram
í rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar
EFTA, ESA.
Þetta er í fyrsta sinn sem ESA
sendir álit af þessum toga vegna
skorts á samvinnu af hálfu aðild-
arríkis. Álitið er undanfari þess
að málinu sé vísað til EFTA-dóm-
stólsins hafi íslensk stjórnvöld
ekki svarað innan tveggja mán-
aða. Fyrra málið varðar þau ferli
sem Ísland þarf að tryggja til að
EES-reglugerðir séu innleidd-
ar tímanlega í landsrétt. Seinna
málið varðar skyldu til að tilefna
rannsóknarstofur til vísindalegr-
ar ráðgjafar og stuðnings innlend-
um yfirvöldum, sem hafa eftirlit
með dýrasjúkdómum og fæðuör-
yggi. - srs
Afhentu ekki upplýsingar:
Ísland áminnt í
tveimur málum
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
9
-6
1
F
4
1
4
0
9
-6
0
B
8
1
4
0
9
-5
F
7
C
1
4
0
9
-5
E
4
0
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K