Fréttablaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 10
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Pabbi vildi fara náttúrulegu leiðina og reyna allt sem hann gat í þeim efnum. Við hugs- uðum öll af mikilli bjart- sýni að það væri búin að finnast lausn á krabba- meini. En þetta var allt rosalegt leynimakk og það mátti ekkert tala um þetta. Hildur Erlingsdóttir. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is Eyðsla frá 3,8 l/100 km 2CO frá 99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap HEILBRIGÐISMÁL Hildur Erlingsdótt- ir missti föður sinn úr krabbameini árið 2011. Á árinu sem hann lést eyddi hann fúlgum fjár í lyfið Salic- inium og meðferð á Havaí þar sem hann fékk lyfið í æð. Efnið og með- ferðina keypti hann með milligöngu sama sölumanns og seldi Guðmundi Hallvarðssyni sama efni (Orasal) fyrir svipaða upp- hæð í veikindum hans. Guðmundur lést í desember á síð- asta ári og sonur hans ræddi opin- skátt við Frétta- blaðið í gær um að faðir hans hefði verið prett- aður. Framganga sölumannsins þótti honum skyggja á síðustu daga föður síns. Sölumaðurinn seldi föður Hild- ar ekki eingöngu efnið til lækning- ar. Fyrir milligöngu hans var hann sendur á læknastofu á Havaí þar sem hann fékk efnið í æð. Þá hafði sölumaðurinn einnig milligöngu um að kaupa golfbíl fyrir hinn deyjandi mann sem hann fékk prósentur af. Var alltaf í kaffi „Við fórum yfir reikningsyfirlitið hans og fundum alls konar færslur til þessa manns. Við kynntumst honum í gegnum fjölskylduna. Henni tengist kona sem vildi meina að hún hefði læknast fyrir tilstilli þessa lyfs,“ segir Hildur og segist auðvitað ekki geta dregið frásögn hennar í efa. Sú kona hafi sannar- lega greinst með krabbamein sem hún sé heil af í dag. Því þakkar hún þessu lyfi. „Pabbi vildi fara náttúrulegu leiðina og reyna allt sem hann gat í þeim efnum. Við hugsuðum öll af mikilli bjartsýni að það væri búin að finnast lausn á krabbameini. En þetta var allt rosalegt leynimakk og það mátti ekkert tala um þetta, það fannst mér ótrúlega skrítið. Þessi maður var alltaf í kaffi hjá pabba og konunni hans og virtist koma vel fyrir.“ Fékk skammt á hálfa milljón Hildur segir hann hafa keypt nokk- urra mánaða skammt af efninu í duftformi og hann hafi kostað um það bil hálfa milljón króna. Þá hafi hann verið orðinn mjög veikur. Krabbameinið var þá búið að dreifa sér, fyrst í eitla og þaðan í bein. „Svo er hann sendur af þessum sama manni til Havaí í meðferð. Þar átti hann að fá lyfið í æð og við höldum að hann hafi sagt honum að hann ætti eftir að læknast.“ Golfbíll og ferð til Havaí Svo mikla von gaf sölumaðurinn föður Hildar að hann hafði milli- göngu um að flytja inn golfbíl fyrir hann. Heilsusamlegt líf var handan hornsins. Eftir meðferðina á Havaí yrði hann alheill. „Hann var fárveikur þegar hann fór út til Havaí og í engu standi til ferðalaga. Hann stóð ekki í lappirn- ar. Þeir ákváðu líka í sameiningu að þessi maður myndi flytja einhvern golfbíl inn fyrir hann og ég held að hann hafi fengið einhverjar prósent- ur af því, þó ég geti ekki fullyrt það. Mér telst til að meðferðin hafi kost- að um milljón krónur.“ Kostnaður- inn varð hins vegar mun meiri því Erlingur lenti á spítala og sá reikn- ingur var um tvær milljónir. Ríghélt í vonina Meðferðin tókst ekki. Erlingur lést í desember þetta sama ár. Hild- ur segir hann hafa viljað reyna öll Fór fársjúkur í meðferð til Havaí Sölumaður seldi dauðvona manni lyf auk dýrrar meðferðar á Havaí. Hann taldi manninn einnig inn á að kaupa golfbíl þar sem „heilsu- samlegt líf var handan hornsins“. Hildur Erlingsdóttir fjallar opinskátt um sögu látins föður síns. Markaðssetning lyfsins er óheimil. SENDUR TIL HAVAÍ Faðir Hildar var orðinn fársjúkur af krabbameini þegar hann var sendur til Havaí til meðferðar. Sölumaðurinn sannfærði hann um að hann þyrfti lyfið í æð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HALLVARÐUR GUÐMUNDSSON úrræði. Hann hafi líka keypt tæki af Ólafi Einarssyni sem var til umfjöllunar í Kastljósi fyrir nokkr- um dögum. „Hann ríghélt í vonina og reyndi öll ráð,“ segir Hildur og segir það hafa verið erfitt fyrir fjöl- skylduna eftir að hann lést að upp- götva hvernig farið hafði verið með hann. Sagt búið eiginleikum lyfs Fréttablaðið sendi Lyfjastofnun Íslands erindi vegna frásagnar sonar Guðmundar Hallvarðssonar. Í svari stofnunarinnar kemur fram að engar klínískar rannsókn- ir tengjast vöruheitunum Orasal og Salicinium. Þá kemur fram að varan er merkt af framleiðenda sem fæðubótarefni en er sögð búa yfir eiginleikum sem koma að gagni við meðferð gegn sjúkdóm- um. Þá ber að líta svo á að hún sé skilgreind sem lyf og markaðs- setning hennar óheimili nema að hún hafi markaðsleyfi. Fyrir liggi að umrædd vara uppfylli ekki skil- yrði sem settu eru til að lyf hljóti markaðsleyfi. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir stofnuninni berast margar ábend- ingar og fyrirspurnir um efni sem eru sögð með eiginleika lyfja og gagnast gegn sjúkdómum. „Lyfjastofnun mun líklega setja frétt á heimasíðu sína um þetta mál til að upplýsa almenning. Mik- ilvægt er að fréttamenn, vísinda- samfélagið og eftirlitsaðilar vinni saman að því koma réttum upplýs- ingum á framfæri,“ segir Rúna. 0 5 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 9 -9 D 3 4 1 4 0 9 -9 B F 8 1 4 0 9 -9 A B C 1 4 0 9 -9 9 8 0 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.