Fréttablaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 6. mars 2015 | FRÉTTIR | 11 Nýr SKODA Octavia frá 3.740.000 kr. Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir, sparneytnir, öruggir og endingargóðir og þess vegna sérlega vinsælir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda. www.skoda.is SKEMMTILEGUR Á ALLA VEGU SAMGÖNGUR Skúli Mogensen, eig- andi og forstjóri WOW air, stefnir á að fimmfalda flugflota félagsins á næstu fimm árum samhliða upp- byggingu á leiðakerfi milli Evrópu og Bandaríkjanna. Bæði verður um leigu og kaup á farþegaþotum að ræða, en flugfloti félagsins gæti því verið 30 vélar árið 2020. Frá þessu greindi Skúli í viðtali á ITB-ferðaþjónustusýningunni í Berlín sem stendur yfir, og stað- festir í viðtali við Fréttablaðið. Skúli ætlar með þessari uppbyggingu félagsins að fjölga farþegum WOW um 50% á ári yfir þetta tímabil. „Við erum að bæta við okkur þremur vélum til næsta árs, förum því úr sex í níu vélar. Í framhaldi af því hef ég sagt að miðað við stærð markaðarins, en 50 milljónir manna fljúga yfir hafið árlega frá Norður- Ameríku til Evrópu, þá er þetta raunhæft. Þetta er sá markaður sem Icelandair sækir á, en lággjalda- flugfélögin hafa ekkert sinnt hing- að til, og því er þetta nærri lagi,“ segir Skúli en til samanburðar má nefna að flugfloti Icelandair í milli- landaflugi – farþegaflugi – er í dag 24 vélar; sex fleiri en árið 2013. Ekki er liðinn mánuður síðan WOW air tilkynnti um kaup á tveim- ur nýjum Airbus A321-211 farþega- þotum. Vélarnar voru fengnar með kaupleigu til 12 ára þannig að félagið eignast þær á þeim tíma. Skúli sagði í viðtali við Fréttablaðið 19. febrúar að WOW hafi gengið inn í mun stærri kaupsamning á mjög hagstæðum kjörum sem hafi gert félaginu kleift að ljúka fjármögn- un, án þess að gefa upp kaupverð- ið. Listaverð þessara farþegavéla er hins vegar um 15 milljarðar króna. Spurður hvort um frekari kaup verði að ræða eða leigu á þeim 24 vélum sem hér um ræðir, segir Skúli: „Þessi uppbygging mun áfram verða blanda af þessu tvennu. Þetta verða nýjar og nýlegar Air- bus 320- og Airbus 321-vélar,“ segir Skúli en þær vélar sem WOW hefur til umráða í dag eru einmitt af þess- ari tegund. Spurður um þessa hröðu upp- byggingu segir Skúli að á milli ára hafi vöxturinn í farþegafjölda verið úr 500.000 í tæplega 800.000 far- þega, eða 65%. „Við búumst aftur við 50% vexti inn á árið 2016, þann- ig að þetta er aðeins rökrétt fram- hald á uppbyggingu félagsins,“ segir Skúli og bætir við að yfirbyggingin muni ekki vaxa verulega þrátt fyrir vöxt, enda búið að fjárfesta mikið í nauðsynlegum innviðum. Starfs- mönnum muni þó eðlilega fjölga, og þá aðallega flugliðum og flugmönn- um. Hjá WOW air vinna nú um 175 starfsmenn. Hyggst fimmfalda flugflota WOW air næstu fimm árin Framtíðarsýn Skúla Mogensen fyrir WOW air er að árið 2020 verði 30 vélar í flota flugfélagsins. Þær eru sex í dag eftir kaup á tveimur Airbus-farþegaþotum nýlega. Skúli ætlar sér hlutdeild í 50 milljóna manna markaði. Þetta verða nýjar og nýlegar Airbus 320- og Airbus 321- vélar. Skúli Mogensen, forstjóri WOW air SAMKEPPNI WOW air stefnir fyrst lággjaldaflugfélaga á flugleiðina á milli Evrópu og Norður-Ameríku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is VÍSINDI Nýjar rannsóknir benda til að 95 prósent fýla á Norður- sjávarsvæðinu séu með plast í maganum. Á vefnum forskning.no segir að meðfram Noregsströndum og einkum í Skagerak hafi fundist 0,1 g af plasti í maga helmings þeirra fýla sem voru rannsak- aðir. Bent er á að míkróplast dragi að sér umhverfiseitur. Þar með fái dýr sem éta plastið ekki bara plastagnir í sig heldur einnig umhverfiseitrið. - ibs Rannsóknir á fýlum: 90 prósent með plast í maga SVÍÞJÓÐ Skop- myndateiknar- inn Lars Vilks hefur eftir hryðju verka- árásina í Kaup- mannahöfn ekki getað búið heima, heldur flytur hann sig stöðugt á milli staða í Svíþjóð. Í frétt á vef Dagens Nyheter sem vitnar í AP-fréttastofuna er haft eftir Vilks að þetta sé eins og að hefja nýtt líf. Nú sé allt breytt. Nú sé hann hættur að spauga. Vilks kveðst samt ekki iðr- ast þess að hafa teiknað skop- myndir af Múhameð í hundslíki. Umræðufundi sem Vilks átti að halda í Gautaborg á dögunum var aflýst. - ibs Í kjölfar hryðjuverka: Kveðst hættur öllu spaugi LARS VILKS 0 5 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 9 -8 E 6 4 1 4 0 9 -8 D 2 8 1 4 0 9 -8 B E C 1 4 0 9 -8 A B 0 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.