Fréttablaðið - 06.03.2015, Qupperneq 10
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Pabbi vildi fara
náttúrulegu leiðina og
reyna allt sem hann gat í
þeim efnum. Við hugs-
uðum öll af mikilli bjart-
sýni að það væri búin að
finnast lausn á krabba-
meini. En þetta var allt
rosalegt leynimakk og það
mátti ekkert tala um
þetta.
Hildur Erlingsdóttir.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Eyðsla frá
3,8 l/100 km
2CO frá
99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap
HEILBRIGÐISMÁL Hildur Erlingsdótt-
ir missti föður sinn úr krabbameini
árið 2011. Á árinu sem hann lést
eyddi hann fúlgum fjár í lyfið Salic-
inium og meðferð á Havaí þar sem
hann fékk lyfið í æð. Efnið og með-
ferðina keypti hann með milligöngu
sama sölumanns og seldi Guðmundi
Hallvarðssyni sama efni (Orasal)
fyrir svipaða upp-
hæð í veikindum
hans.
Guðmundur lést
í desember á síð-
asta ári og sonur
hans ræddi opin-
skátt við Frétta-
blaðið í gær um
að faðir hans
hefði verið prett-
aður. Framganga sölumannsins
þótti honum skyggja á síðustu daga
föður síns.
Sölumaðurinn seldi föður Hild-
ar ekki eingöngu efnið til lækning-
ar. Fyrir milligöngu hans var hann
sendur á læknastofu á Havaí þar
sem hann fékk efnið í æð. Þá hafði
sölumaðurinn einnig milligöngu um
að kaupa golfbíl fyrir hinn deyjandi
mann sem hann fékk prósentur af.
Var alltaf í kaffi
„Við fórum yfir reikningsyfirlitið
hans og fundum alls konar færslur
til þessa manns. Við kynntumst
honum í gegnum fjölskylduna.
Henni tengist kona sem vildi meina
að hún hefði læknast fyrir tilstilli
þessa lyfs,“ segir Hildur og segist
auðvitað ekki geta dregið frásögn
hennar í efa. Sú kona hafi sannar-
lega greinst með krabbamein sem
hún sé heil af í dag. Því þakkar hún
þessu lyfi.
„Pabbi vildi fara náttúrulegu
leiðina og reyna allt sem hann gat
í þeim efnum. Við hugsuðum öll af
mikilli bjartsýni að það væri búin
að finnast lausn á krabbameini. En
þetta var allt rosalegt leynimakk og
það mátti ekkert tala um þetta, það
fannst mér ótrúlega skrítið. Þessi
maður var alltaf í kaffi hjá pabba
og konunni hans og virtist koma vel
fyrir.“
Fékk skammt á hálfa milljón
Hildur segir hann hafa keypt nokk-
urra mánaða skammt af efninu í
duftformi og hann hafi kostað um
það bil hálfa milljón króna. Þá hafi
hann verið orðinn mjög veikur.
Krabbameinið var þá búið að dreifa
sér, fyrst í eitla og þaðan í bein.
„Svo er hann sendur af þessum
sama manni til Havaí í meðferð.
Þar átti hann að fá lyfið í æð og við
höldum að hann hafi sagt honum að
hann ætti eftir að læknast.“
Golfbíll og ferð til Havaí
Svo mikla von gaf sölumaðurinn
föður Hildar að hann hafði milli-
göngu um að flytja inn golfbíl fyrir
hann. Heilsusamlegt líf var handan
hornsins. Eftir meðferðina á Havaí
yrði hann alheill.
„Hann var fárveikur þegar hann
fór út til Havaí og í engu standi til
ferðalaga. Hann stóð ekki í lappirn-
ar. Þeir ákváðu líka í sameiningu að
þessi maður myndi flytja einhvern
golfbíl inn fyrir hann og ég held að
hann hafi fengið einhverjar prósent-
ur af því, þó ég geti ekki fullyrt það.
Mér telst til að meðferðin hafi kost-
að um milljón krónur.“ Kostnaður-
inn varð hins vegar mun meiri því
Erlingur lenti á spítala og sá reikn-
ingur var um tvær milljónir.
Ríghélt í vonina
Meðferðin tókst ekki. Erlingur lést
í desember þetta sama ár. Hild-
ur segir hann hafa viljað reyna öll
Fór fársjúkur í meðferð til Havaí
Sölumaður seldi dauðvona manni lyf auk dýrrar meðferðar á Havaí. Hann taldi manninn einnig inn á að kaupa golfbíl þar sem „heilsu-
samlegt líf var handan hornsins“. Hildur Erlingsdóttir fjallar opinskátt um sögu látins föður síns. Markaðssetning lyfsins er óheimil.
SENDUR TIL HAVAÍ Faðir Hildar var orðinn fársjúkur af krabbameini þegar hann
var sendur til Havaí til meðferðar. Sölumaðurinn sannfærði hann um að hann þyrfti
lyfið í æð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HALLVARÐUR
GUÐMUNDSSON
úrræði. Hann hafi líka keypt tæki
af Ólafi Einarssyni sem var til
umfjöllunar í Kastljósi fyrir nokkr-
um dögum. „Hann ríghélt í vonina
og reyndi öll ráð,“ segir Hildur og
segir það hafa verið erfitt fyrir fjöl-
skylduna eftir að hann lést að upp-
götva hvernig farið hafði verið með
hann.
Sagt búið eiginleikum lyfs
Fréttablaðið sendi Lyfjastofnun
Íslands erindi vegna frásagnar
sonar Guðmundar Hallvarðssonar.
Í svari stofnunarinnar kemur
fram að engar klínískar rannsókn-
ir tengjast vöruheitunum Orasal
og Salicinium. Þá kemur fram að
varan er merkt af framleiðenda
sem fæðubótarefni en er sögð búa
yfir eiginleikum sem koma að
gagni við meðferð gegn sjúkdóm-
um. Þá ber að líta svo á að hún sé
skilgreind sem lyf og markaðs-
setning hennar óheimili nema að
hún hafi markaðsleyfi. Fyrir liggi
að umrædd vara uppfylli ekki skil-
yrði sem settu eru til að lyf hljóti
markaðsleyfi.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg,
forstjóri Lyfjastofnunar, segir
stofnuninni berast margar ábend-
ingar og fyrirspurnir um efni sem
eru sögð með eiginleika lyfja og
gagnast gegn sjúkdómum.
„Lyfjastofnun mun líklega setja
frétt á heimasíðu sína um þetta
mál til að upplýsa almenning. Mik-
ilvægt er að fréttamenn, vísinda-
samfélagið og eftirlitsaðilar vinni
saman að því koma réttum upplýs-
ingum á framfæri,“ segir Rúna.
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
9
-9
D
3
4
1
4
0
9
-9
B
F
8
1
4
0
9
-9
A
B
C
1
4
0
9
-9
9
8
0
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K