Fréttablaðið - 06.03.2015, Síða 2
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
DÓMSMÁL Þorsteinn Hjaltested er
ekki réttmætur eigandi jarðar-
innar að Vatnsenda. Hæstiréttur
felldi í gær úr gildi dóm Héraðs-
dóms Reykjaness í Vatnsendamál-
inu svokallaða.
Héraðsdómur Reykjaness hafði
áður staðfest skiptingu úr dánar-
búi Sigurðar Kristjáns Lárusson-
ar Hjaltested samkvæmt erfðaskrá
hans. Samkvæmt erfðaskránni var
Þorsteinn Hjaltested eini erfinginn
að jörðinni á Vatnsenda.
Nú hefur Hæstiréttur úrskurð-
að svo að eignunum geti ekki verið
skipt samkvæmt erfðaskrá held-
ur skuli eignarréttur jarðarinnar
skiptast á milli
lögerfingja Sig-
urðar.
Árið 2007 tók
Kópavogsbær
jörðina eignar-
n á m i u n d i r
viða mikla upp-
byggingu Vatns-
endahverfis og
hlaut Þorsteinn
rúma tvo milljarða í eignarnáms-
bætur og hefur gróði Þorsteins
vegna eignar námsins verið metinn
á rúma átta milljarða. Lögerfingj-
ar Sigurðar hafa í nokkur ár reynt
að fá eignarrétt sinn yfir eignunum
viðurkenndan.
„Árið 2007 var gert eignarnám
á landinu og Þorsteinn Hjaltested
fékk greiddar þarna einhverjar
upphæðir í byrjun og síðan hefur
ekkert verið framkvæmt eða gert
neitt eftir það,“ segir Sigurður
Hjaltested, einn kærenda í mál-
inu. „Við lítum svo á að eignar-
námið hafi verið ólöglegt út frá
þeim dómum sem féllu árið 2012
og síðan 2013. Dánarbúið er sem
sagt beinn eigandi að þessu öllu
saman og Kópavogur hafi allan
tímann vitað að hann hafi verið að
gera samninga við mann sem hafi
ekki rétt til eins né neins þrátt
fyrir mótmæli okkar á sínum
tíma. En þeir héldu samt áfram og
það var bæjarlögmaður Kópavogs
sem sagði að þetta væri allt í lagi,“
segir Sigurður.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri Kópavogs, telur að ekki sé
hægt að leita til Kópavogs vegna
hugsanlegra bóta. „Kópavogsbær
greiddi í góðri trú til þessa aðila
sem við töldum vera eiganda jarð-
arinnar á þeim tíma og það er
staðfest samkvæmt þinglýsinga-
bók,“ segir Ármann. „Reykjavík
hefur líka tekið jarðir eignarnámi
á Vatnsenda. Bæði Kópavogur og
Reykjavík hafa gert það í góðri trú.
Við verðum að geta treyst á þing-
lýsingabók, annars er grundvöllur
allra viðskipta á Íslandi farinn út
um gluggann. Það er augljóst að
Kópavogur er stikkfrí ef menn
vilja sækja einhverjar skaðabæt-
ur.“ - srs
Þorsteinn ekki einn
um Vatnsendajörð
Hæstiréttur felldi úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í Vatnsendamáli. Erfingi
telur að Kópavogur hafi alltaf vitað að Þorsteinn væri ekki réttmætur eigandi.
Bæjarstjóri Kópavogs segir að eignarnámsbætur hafi verið greiddar í góðri trú.
VATNSENDI Deilur um jörðina hafa staðið í fjölda ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Það er
augljóst að
Kópavogur er
stikkfrí ef
menn vilja
sækja ein-
hverjar
skaðabætur.
Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs.
KJARAMÁL Guðrún Hafsteinsdótt-
ir, formaður Samtaka iðnaðarins,
segir iðnfyrirtæki ekki þola mikl-
ar launahækkanir líkt og verka-
lýðshreyfingin fer fram á. Auk
þess krefst hún þess að iðnlærðu
fólki verði fjölgað á Íslandi.
Þetta kom fram í máli hennar
á Iðnþingi í gær. Iðnþing hvatti
stjórnvöld einnig til að setja
áframhald aðildarviðræðna við
Evrópusambandið í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. - srs
Iðnþing kom saman í gær:
Þola ekki mikla
hækkun launa
DÓMSMÁL Lýsing tapaði í gær
tveimur dómsmálum vegna
gengis tryggðra lána. Málin eru
fordæmisgefandi í um fjögur
hundruð öðrum gengislánamál-
um.
Í öðrum dómnum, máli Stef-
aníu Snorradóttur, vildi Lýsing
ekki endurreikna lán hennar þar
sem hún hafði ekki alltaf staðið í
skilum. Vanskil hennar gátu ekki
staðið í vegi fyrir endurkröfu að
mati dómsins. - srs
Gefur fordæmi fyrir 400 mál:
Lýsing tapaði
tveimur málum
KJARAMÁL Bandalag háskólamanna mun ekki
sætta sig við 3,5 prósenta launahækkanir líkt og
ríkið hefur boðið í samningaviðræðum Bandalags
háskólamanna og ríkisins.
Þetta kom fram á baráttufundi bandalagsins
í Austurbæ í gær. Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamanna, gerði félagsmönnum
grein fyrir stöðu mála. Í ræðu sinni brýndi Páll
nauðsyn þess að ríkið myndi setja þekkingu í for-
gang í kjaraviðræðum. Enn fremur segir Páll að
önnur fagfélög hafi náð fram auknum launahækk-
unum með verkfallsaðgerðum og því sé það rétt-
mætt að velta því upp hvort Bandalag háskóla-
manna þurfi að beita aukinni hörku til að ná fram
bættum kjörum.
„Við erum hugsanlega tilbúin að opna á frekari
aðgerðir,“ segir Páll í samtali við blaðamann. „En
BHM ræður engu um það. Það eru aðildarfélög
okkar sem ráða ferðinni en það hafa verið umræð-
ur um frekari aðgerðir meðal þeirra,“ segir Páll.
„Við munum ekki sætta okkur við 3,5% launa-
hækkun. Það er bara alveg út í hött,“ bætir Páll við.
Fundurinn samþykkti auk þess ályktun þar
sem stuðningi er lýst við samninganefnd Banda-
lags háskólamanna og ríkið hvatt til að bæta kjör
háskólamenntaðra og setja þekkingu í forgang á
atvinnumarkaði. - srs
Bandalag háskólamanna mun ekki sætta sig við 3,5% launahækkun:
Útiloka ekki verkfallsaðgerðir
BARÁTTUFUNDUR Páll Halldórsson, formaður BHM, ávarp-
aði fundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JAPAN Misao Okawa, elsta kona í heimi, hélt upp á 117 ára afmælið
sitt í gær á hjúkrunarheimilinu Kurenai í Osaka í Japan í gær. Okawa
fékk afmælisköku í tilefni dagsins en hún hefur haft titilinn elsta
kona heims samkvæmt Heimsmetabók Guinness frá 12. júní 2013. Þá
dó Jioemon Kimua, sem varð 116 ára og 54 daga gömul. Okawa hefur
lifað lengst allra Japana og er þriðja manneskjan í öllum heiminum
sem nær því að verða 117 ára.
Elsta kona í heimi hélt upp á afmælið í föðurlandi sínu Japan:
Fagnaði 117 ára afmæli sínu í gær
ELSTA KONA HEIMS Misao Okawa varð 117 ára í gær en hún er elsta kona í heimi
samkvæmt Heimsmetabók Guinness. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SIGURÐUR
HJALTESTED
TRÚMÁL Forsvarsmenn Félags
múslima á Íslandi var ekki kunn-
ugt um 135 milljóna króna styrk frá
Sádi-Arabíu til byggingar mosku
hérlendis.
Ibrahim Alibrahim, nýr sendi-
herra Sádi-Arabíu, átti fund með
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta
í gær þar sem hann tilkynnti að
Sádi-Arabía hygðist leggja til 135
milljónir til byggingar mosku á
Íslandi.
„Við myndum aldrei þiggja nein-
ar gjafir frá ríkisstjórn sem virð-
ir ekki mannréttindi fólksins síns,
brýtur á þeim og styður hryðju-
verk í Mið-Austurlöndum,“ sagði
Salmann Tamimi, varaformaður
Félags múslima, í samtali við Vísi
í gær.
„Þessi peningur er ekki ætlaður
okkur,“ sagði svo Ahmad Seddeq,
trúarleiðtogi Menningarseturs
múslima á Íslandi.
Salmann segir Félag íslenskra
múslima aldrei hafa haft samband
við Sádi-Arabíu til þess að biðja um
stuðning til byggingar moskunnar.
Bygging hennar er á áætlun og
samkeppni um teikningu stendur
yfir. Hún kemur til með að kosta
um 300 milljónir króna en fjár-
mögnun er enn óljós.
„Við höfum ekki sótt um aðstoð
frá einum eða neinum – ennþá að
minnsta kosti,“ segir Salmann. Það
sé alveg á hreinu að félagið komi
ekki til með að fallast á nein skil-
yrði tengd fjárframlögum til bygg-
ingarinnar.
Borgarstjóri hafði ekki heyrt af
stuðningi Sádi-Arabíu heldur. - nej
Varaformaður Félags múslima segist ekki vilja þiggja gjafir frá ríkisstjórn sem brýtur mannréttindi:
Kannast ekki við styrki frá Sádi-Arabíu
FUNDUÐU Ólafur Ragnar Grímsson og
Ibrahim S.I. Alibrahim, nýr sendiherra
Sádi-Arabíu, funduðu á Bessastöðum.
SPURNING DAGSINS
LIFÐU
í NÚLLINU!
Til hvers að flækja hlutina?
365.is
Sími 1817
Þú færð GSM áskrift, internet og heimasíma fyrir
0 krónur með völdum sjónvarpspökkum 365.
**Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma.*60 mín. og 60 SMS fylgja hverri áskrift.
4 GSM áskriftir
60 mín. og 60 SMS*
Internet
20 GB
Heimasími
100 mín.**
Sigurður Helgi, er ekki
skítalykt af þessu máli?
„Það er allavega eitthvað rotið við
þetta.“
Húseigendur í Garðabæ sem notast við
rotþró eru ósáttir við að greiða holræsagjald
til bæjarins. Siurður Helgi Guðjónsson er
framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins.
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
9
-6
6
E
4
1
4
0
9
-6
5
A
8
1
4
0
9
-6
4
6
C
1
4
0
9
-6
3
3
0
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K