Fréttablaðið - 06.03.2015, Page 6
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Fyrir hversu mikið fé hyggst
Norður ál á Grundartanga fjárfesta?
2. Í hvaða grunnskóla eru sjöttubekk-
ingarnir sem gefa út bók í vor?
3. Með hvaða bresku hljómsveit munu
íslenskar stelpur spila?
SVÖR:
1. 10 milljarða króna.
2. Grandaskóla.
3. Florence and the Machine.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4472
Flogið með Icelandair
SÖGUFERÐIR
Framandi og heillandi slóðir í samstarfi
við Söguferðir
ÞRIGGJA LANDA SÝN
Litháen - H.Rússland - Pólland
15. - 27.júní
Við hefjum ferð í Varsjá sem maður
fær aldrei nóg af, heimsækjum
“hulduþjóð” skammt frá landamærum
Úkraínu.
Verð frá 254.500 kr.
SÖGUFERÐ TIL PÓLLANDS
Litháen - H.Rússland - Pólland
31. ágúst - 11. september
Evrópufrumskógurinn í haustskrúða,
Úlfagreni Hitlers, Kraków, Auschwitz
og saltnámurnar í Wielizka. Flogið til
og frá Varsjá.
Verð frá 254.500 kr.
SÖGUFERÐ TIL ALBANÍU
Litháen - H.Rússland - Pólland
2. - 11. október
Í leit að horfnum heimi. Menning,
saga og sjálft líf þessarar evrópsku
hulduþjóðar.
Verð frá 259.500 kr.
EVRÓPUDRAUMUR FRISSA
Litháen - H.Rússland - Pólland
9. - 23.ágúst.
VÍ um 30 ár hefur Friðrik G.
Fiðriksson stjórnað ferðum um þessar
slóðir við fádæma góðar undirtektir,
margreynd unaðsferð.
Verð frá 254.500 kr.
MENNING Unnin hafa verið drög að
frumvarpi til laga um tímabundn-
ar endurgreiðslur vegna hljóð-
ritunar á tónlist á Íslandi. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa þessi drög ekki verið kynnt í
ríkisstjórn.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, gerði
málið hins vegar að umræðuefni í
ávarpi sem hún flutti á myndskeiði
á Iðnþingi í gær. Fyrirkomulagið
yrði þá svipað og í kvikmynda-
gerð. Ragnheiður Elín ræddi stöðu
skapandi greina í ávarpi sínu í
gær. „Í síðustu viku heimsótti ég
fyrirtæki Baltasars Kormáks og
fylgdist með eftirvinnslu stór-
myndarinnar Everest. Það fyrir-
tæki hefur nú þegar klárað þrjú
stórverkefni hér heima og vonandi
sjáum við meira af slíku í framtíð-
inni,“ sagði hún. Hún sagði að sam-
bærileg tækifæri gætu líka legið
fyrir í íslenskri tónlist.
Í stjórnarsáttmála Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins
er boðað frumvarp af þessu tagi
fyrir tónlist. Lög um tímabundnar
endurgreiðslur vegna kvikmynda-
gerðar á Íslandi voru samþykkt á
Alþingi árið 1999. Á grundvelli
þeirra er unnt að fá endurgreitt
20% af framleiðslukostnaði vegna
framleiðslu kvikmyndar eða sjón-
varpsefnis á Íslandi. Jafnt innlend-
ir sem erlendir aðilar geta sótt um
endurgreiðslu. Eftir að lögin voru
samþykkt hafa fjölmargar erlend-
ar stórmyndir verið framleiddar
að hluta hérlendis. Þar á meðal
Hollywood-myndir.
„Þetta eru mjög skemmtilegar
fréttir. Við erum búin að vera að
reka áróður fyrir þessu í þó nokk-
urn tíma,“ segir Sigtryggur Bald-
ursson. Hann er framkvæmda-
stjóri ÚTÓN, útflutningsskrifstofu
íslenskrar tónlistar.
Sigtryggur segir að það hafi
verið þó nokkur aðsókn í nokkur
stúdíó á Íslandi að undanförnu,
einkum Gróðurhúsið og Sundlaug-
ina. En með nýjum lögum myndi
þetta aukast og þar með myndu
tengsl íslenska tónlistargeirans
við umheiminn aukast. Mikil-
vægt sé fyrir íslenska listamenn
að tengjast þeim erlendu. „Ég vil
meina að þetta hafi gríðarlega góð
áhrif fyrir stúdíó á Íslandi og líka
íslenska tónlist yfirhöfuð,“ segir
Sigtryggur. Eftirsóknarverðara
verði fyrir hljómsveitir sem koma
hingað á Iceland Airwaves að taka
upp í leiðinni. Einnig verði eftir-
sóknarverðara að nota Sinfóníuna
í upptökur fyrir stærri verkefni.
jonhakon@frettabladid.is
Tónlistarmenn fái
endurgreitt frá ríkinu
Ráðgert er að íslenska ríkið endurgreiði hluta af kostnaði tónlistarmanna við
hljóðritun. Formaður ÚTÓN telur að Ísland yrði vinsæll upptökustaður.
Í SUNDLAUGINNI Sigtryggur Baldursson segir að nokkur stúdíó hér á landi séu
þegar vinsæl erlendis. Til dæmis Sundlaugin sem er í eigu SigurRósar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þetta
eru mjög
skemmtilegar
fréttir. Við
erum búin að
vera að reka
áróður fyrir
þessu í þó nokkurn tíma.
Sigtryggur Baldursson,
framkvæmdastjóri ÚTÓN.
SAMFÉLAG Eftir 25 ára starf hafa
7.038 einstaklingar, mest konur,
nýtt þjónustu Stígamóta. Í dag
fagna samtökin afmæli með því að
minna á mikilvægi sitt, rifja upp
sigra og horfast í augu við áskor-
anir.
„Helstu áskoranirnar í dag eru
að kynferðisbrotamál komast ekki
í gegnum réttarkerfið,“ segir Guð-
rún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.
„Enn eru gríðarlegir fordómar
ríkjandi gagnvart fólki sem hefur
verið beitt ofbeldi, almenningur,
fagstéttir, réttarkerfið og konurnar
sjálfar því miður. Því munum við
ekki breyta nema að við víkkum
umræðuna og tökum inn í hana að
á bak við þessar sjö þúsund sem
hafa leitað til okkar eftir hjálp eru
ofbeldismenn
sem ganga frjáls-
ir.“
Guðrún segir
hvatningu fel-
ast í því að rifja
upp hve mörg-
um hefur verið
hjálpað í gegn-
um tíðina. „Það
er mikilvægt að
minnast þess hvað þetta starf er
mikils virði. Þegar starf Stígamóta
hófst var ekkert í boði fyrir fólk
sem hafði verið beitt sifjaspellum
eða konur sem hafði verið nauðgað.
Það var háð heljarinnar barátta til
að fá þetta viðurkennt og þá hafði
engin fagstétt búið sig undir að fást
við þessi mál.“ - kbg
Stígamót fagna tuttugu og fimm ára afmæli í dag:
Hafa hjálpað sjö þús-
und einstaklingum
GUÐRÚN
JÓNSDÓTTIR
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarstjórn
Hafnar fjarðar samþykkti á síð-
asta fundi sínum að ráðast í úttekt
á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri
Hafnarfjarðarhafnar síðastliðin tíu
ár. Fara á yfir stjórnun og starfsemi
hafnarinnar. Málefni hafnarinn-
ar hafa verið í sviðsljósinu síðustu
vikur. Tvírukkað var fyrir gjöld
vegna lóðasamninga og einnig stóð til
að formaður hafnarstjórnar áminnti
starfsmann hafnarinnar fyrir að
hafa sagst átt fund með bæjarstjóra
þann 15. nóvember síðastliðinn.
„Minnihlutinn í bæjarstjórn ósk-
aði eftir því að farið yrði í stjórn-
sýsluúttekt á málefnum hafnarinn-
ar, í ljósi þeirrar umræðu sem uppi
hefur verið um hana. Okkur þótti
sjálfsagt að verða við þeirri beiðni,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir, formað-
ur bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Nið-
urstöður úr þessari skoðun verða
síðan notaðar í mótun framtíðar-
stefnu um málefni hafnarinnar,“
segir Rósa.
Gunnar Axel Axelsson, oddviti
Samfylkingarinnar, er ekki sam-
mála því að hér sé verið að fara að
vilja minnihlutans. „Eins og þetta
útspil meirihlutans blasir við mér
þá fjallar það fyrst og fremst um
að drepa málinu á dreif og draga
athyglina frá því sem er að gerast í
málefnum hafnarinnar. Í stað þess
að axla ábyrgð og sýna einhvern
vilja til að lagfæra það sem úrskeið-
is hefur farið í samskiptum hafnar-
stjórnar og starfsmanna þá bregst
meirihlutinn við með því að benda
í allar áttir og hóta fólki rannsókn-
um,“ segir Gunnar Axel. - sa
Ítarleg úttekt á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarhafnar samþykkt í bæjarstjórn:
Ætla að rannsaka starfsemi hafnarinnar
HAFNARFJARÐARHÖFN Skoða á
rekstur hafnarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUÐUR-KÓREA Maðurinn sem réðst
vopnaður hnífi á Mark Lippert,
sendiherra Bandaríkjanna í Suð-
ur-Kóreu, í gær hrópaði kröfu um
að kóresku ríkin tvö sameinist.
Jafnframt mótmælti hann sam-
eiginlegum heræfingum Suður-
Kóreu og Bandaríkjanna.
Árásarmaðurinn var sagður
heita Kim Ki-jong og vera 55 ára
gamall. Fyrir fimm árum reyndi
hann að ráðast á sendiherra Jap-
ans í Suður-Kóreu, en var þá
handtekinn og hlaut skilorðsbund-
inn dóm.
Nokkrum tímum eftir árás-
ina fagnaði norðurkóreska ríkis-
fréttastofan árásinni, sagði hana
hafa verið „réttláta refsingu fyrir
bandaríska stríðsæsingamenn“
og endurspegla reiði þeirra Suð-
ur-Kóreumanna sem eru á móti
sameiginlegum heræfingum með
Bandaríkjaher.
Lippert særðist illa í andliti en
var ekki í lífshættu. Hann var
fluttur á sjúkrahús þar sem hann
gekkst undir tveggja og hálfr-
ar klukkustundar langa aðgerð.
Sauma þurfti áttatíu spor til að
loka sárinu.
- gb
Norður-Kórea fagnar árás á sendiherra Bandaríkjanna í Suður-Kóreu:
Árás í nafni sameiningarkröfu
SÆRÐUR Mark Lippert, sendiherra Bandaríkjanna í Suður-Kóreu, var fluttur á
sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VEISTU SVARIÐ?
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
9
-8
E
6
4
1
4
0
9
-8
D
2
8
1
4
0
9
-8
B
E
C
1
4
0
9
-8
A
B
0
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K