Fréttablaðið - 06.03.2015, Side 13
FÖSTUDAGUR 6. mars 2015 | SKOÐUN | 13
Dagurinn sem ég pissaði á prik
hefði átt að vera dagur jákvæðra
strauma og hamingjuóska. Til stóð
að skála í einhverju óáfengu. En
svo gerðist dálítið skrýtið.
Það var snemma morguns, fyrir
rúmum tveimur árum, sem ég fékk
staðfestingu þess að ég væri ólétt
af fyrsta barni (engar áhyggjur,
kæri lesandi, þetta er ekki svona
„kvenna-pistill“, þér er óhætt að
lesa áfram). Eftir að hafa fagnað
í huganum, panikkað og fagnað
meira reyndi ég að setja á ís hug-
leiðingar um hvernig líf mitt myndi
nú umturnast. Ég þurfti jú að mæta
í vinnuna. Þessir pistlar skrifa sig
ekki sjálfir.
Ég kveikti á tölvunni. Fjórir nýir
tölvupóstar. Fimm. Sex. Ég hafði
ekki við að opna þá. Innihaldinu
rigndi yfir daginn minn eins og
brennisteini yfir blómaengi.
Um morguninn hafði birst eftir
mig pistill í Fréttablaðinu og á
visir.is þar sem ég gagnrýndi
óhefðbundnar lækningar. Orðbragð
á internetinu hefur verið umtalað
síðustu ár fyrir að vera óvægið.
Eftir að hafa starfað sem pistla-
höfundur í áratug taldi ég mig hins
vegar hafa heyrt öll uppnefnin,
fengið að njóta allra mögulegra illa
stafsettra hrakyrða frá Virkum í
athugasemdum. Í ljós kom að svo
var ekki.
Aldrei fyrr hafði ég séð aðra
eins holskeflu haturs og heiftar. Ég
var kölluð morðingi fyrir að grafa
undan óhefðbundnum lækningum.
Mér var sagt að ég ætti skilið að fá
ólæknandi sjúkdóm og deyja. Helst
með mjög kvalafullum hætti.
Í fyrstu var ég hissa. En svo
varð ég reið. Hvernig dirfðist þetta
ókunnuga fólk að varpa sínum hat-
ursfulla skugga á pissað-á-prik-
daginn minn? Ekki leið þó á löngu
uns rann upp fyrir mér ljós.
Allra meina bót
„Maður grípur í allt sem hægt er,“
sagði Guðjón Sigurðsson, formað-
ur MND félagsins, í umtöluðum
Kastljóssþætti fyrr í vikunni þar
sem fjallað var um óhefðbundnar
lækningaleiðir sem gjarnan eru
seldar veiku og jafnvel dauðvona
fólki. „Þegar maður er greind-
ur þá er þetta dauðadómur og þú
reiknar bara með örstuttum tíma
og þá hefst þessi leit að lækningu,“
sagði Guðjón um aðstæðurnar sem
rækju marga í vafasama vegferð í
leit að bata.
Þegar ég var unglingur fór ég
stundum með öldruðum konum í
fjölskyldunni að sækja lúpínuseyði
til manns sem bruggaði það heima
hjá sér og afhenti fólki ókeypis.
Seyðið átti að vera heilsudrykkur,
nánast allra meina bót. Bragðvond-
an drykkinn píndu konurnar ofan
í sig með ósk um stundarfróun frá
kvillum sínum og almennri van-
líðan. Sumt fólk tók þetta þó lengra
og taldi seyðið lækna alvarlega sjú-
kóma á borð við krabbamein. En
batinn lét á sér standa.
Ég skildi aldrei hvers vegna
eldklárar, lífsreyndar konur létu
freistast af þessu blessaða lúpínu-
seyði. Það var ekki fyrr en löngu
seinna sem ég kveikti á perunni.
Ástæða bölbænanna
Ég hafði álitið það hatur, tilfinn-
inguna sem fyllti pósthólfið mitt
daginn sem ég pissaði á prikið.
En það var ekki hatur. Það var
örvænting. Alveg eins og ástæða
þess að klárar konur féllu fyrir
tálsýninni sem lúpínuseyðið bauð. Í
ljós kom að sumir bréfritara höfðu
reynslu af erfiðum veikindum,
glímdu jafnvel við þau er þeir létu
bölbænirnar fjúka. Nokkrir báðust
síðar afsökunar á þungum orðum.
Mörgum virðist ekki þykja það
neitt tiltökumál þótt veiku fólki
séu seldar heilsumeðferðir sem
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Sölumenn snákaolíu eru níðingar
enginn vísindalegur fótur er fyrir.
Hvað með það þótt fólki sé gefin
smá von, jafnvel þótt hún reynist
fölsk.
Sannleikurinn er hins vegar sá
að það er heilmikið mál.
Í umræddum Kastljóssþætti
var rætt við Gunnar Bjarna
Ragnars son krabbameinslækni
um hugsan lega skaðsemi óhefð-
bundinna lækninga. Hann sagði
þær geta haft milliverkanir fyrir
meðferð sjúklinga, aukið auka-
verkanir og minnkað virkni
krabbameinslyfja. Hann sagði
þær raska lífsgæðum fólks er
það drykki bragðvonda ólyfjan og
hætti að borða mat sem því þætti
góður. Kostnað við þessar með-
ferðir sagði hann oft ærinn. Mest-
ur væri þó skaðinn þegar sjúkling-
ar höfnuðu hefðbundinni meðferð
til að fara óhefðbundnar leiðir.
Þegar ég ók með gömlu konun-
um heim til mannsins með lúpínu-
seyðið velti ég oft fyrir mér hvort
ísbíltúr hefði ekki verið ráðlegri.
Ísinn var sannarlega ánægju-
legra að innbyrða en rammt seyð-
ið. Og konurnar hefðu kannski
getað gleymt kvillum sínum um
stund í stað þess að velta sér upp
úr þeim allan bíltúrinn. En tálvon
hafði af okkur ísinn.
Seilst í vasa
Sölumenn óhefðbundinna með-
ferða eru ekkert betri en Nígeríu-
svindlarar, þeir eru ekkert betri
en píramídasvikarar. Þeir eru eins
og óbreyttir þjófar. Þeir seilast í
vasa fólks sem liggur vel við höggi
vegna þess að örvænting hefur
lækkað varnir þess.
Örvænting er sterk tilfinning.
Hún gerir fólk ekki aðeins orð-
ljótt. Hún kemur í veg fyrir að fólk
hugsi skýrt, hún gerir fólk ginn-
keypt fyrir falsvonum sem geta
reynst dýrkeyptar. Hún gerir fólk
berskjaldað. Leyfum ekki sölu-
mönnum snákaolíu að níðast á
þeim sem veikir eru fyrir. Berj-
umst á móti þeim með kjafti og
klóm – og upplýsingu.
Í ár eru liðin 75 ár frá því að fyrsta félag sjúkraþjálfara
á Íslandi var stofnað. Af því tilefni er Dagur sjúkraþjálfunar
haldinn í Hörpu í dag. Þar verða flutt fjölmörg erindi sem
sýna víðtæka þekkingu sjúkraþjálfara.
Sjúkraþjálfun sem fagi hefur fleygt fram bæði hérlendis og
erlendis á þessum áratugum. Íslenskir sjúkraþjálfarar eru
vel menntaðir á alþjóðlegan mælikvarða og sækja stöðugt
í sig veðrið með framhaldsmenntun og rannsóknum á
borð við þær sem kynntar verða í dag.
Tæplega 600 sjúkraþjálfarar starfa á sjúkra- og
endurhæfingarstofnunum, hjúkrunarheimilum,
á einkareknum starfsstöðvum sjúkraþjálfara og
hjá íþróttafélögum.
Leyfum ekki sölu-
mönnum snákaolíu
að níðast á þeim sem veikir
eru fyrir. Berjumst á móti
þeim með kjafti og klóm...
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
9
-7
A
A
4
1
4
0
9
-7
9
6
8
1
4
0
9
-7
8
2
C
1
4
0
9
-7
6
F
0
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K