Fréttablaðið - 06.03.2015, Síða 29
LÍFIÐ 6. MARS 2015 • 7
„Leiðin til að styrkja
samfélagið er
að hvetja börn til
menntunar og styðja
foreldra í að skapa
tekjur til að geta séð
fyrir börnunum sínum,
til dæmis með að
opna lítið fyrirtæki eða
læra iðn sem nýtist til
atvinnusköpunar.“
MYNDAALBÚMIÐ
Steinunn ferðaðist víða um Asíu er hún bjó þar og hér má sjá myndir af samstarfélögum hennar, í siglingu eftir Mekong-ánni og við ýmsa starfstengda viðburði.
nammi, peninga og leikföng og á
fáum árum hefur munaðarleys-
ingjahælum fjölgað um 65% til
að svara þessari eftirspurn.“ Þá
dreifa krakkar gjarnan miðum
til ferðamanna þar sem þeir eru
hvattir til að heimsækja þessi
„heimili“ og sjá krakka dansa og
syngja. Steinunn bendir á að flestir
ferðamenn séu velviljaðir en þetta
sé orðinn gróðavegur sem fær
börn til að skrópa í skólum og betla
og brýtur þeirra grundvallar-
mannréttindi til friðhelgi og einka-
lífs. Foreldrar senda stundum börn
sín á slík heimili í þeirri veiku von
að þeirra bíði betra líf og tækifæri
til menntunar. Staðreyndin er hins
vegar önnur, sér í lagi þegar börn
eru orðnir skemmtikraftar fyrir
ferðamenn en ekki að læra hluti
sem gagnast þeim í framtíðinni,
því leikfangabíll eða karamella
dugar skammt.
Steinunn bendir á að munaðar-
leysingjaheimili sé neyðarúr-
ræði fyrir börn og ekki langtíma-
lausn heldur eigi markmiðið alltaf
að vera að koma börnunum í fjöl-
skylduumhverfi. Það sé markmið
Friends-samtakanna sem hún vann
fyrir, en þar reyndu þau að sam-
eina börn við fjölskyldur sínar eða
fósturfjölskyldur en einnig að að-
stoða börn og unglinga til að kom-
ast í nám. „Í Kambódíu er í raun
ætlast til þess að börn sjái fyrir
foreldrum sínum og eru börn allt
niður í fjórtán ára, stundum jafn-
vel yngri, send til stórborganna
til að vinna. Börnin eru gjarnan
ráðin í verkefni sem eru hættuleg
og illa launuð.“ Steinunn bendir á
að ýmsar hættur leynist í stórborg-
um og því sé mikilvægt að hjálpa
fólki að hjálpa sér sjálft. Leiðin til
að styrkja samfélagið er að hvetja
börn til menntunar og styðja for-
eldra í að skapa tekjur til þess að
geta séð fyrir börnunum sínum, til
dæmis með því að opna lítið fyrir-
tæki eða læra iðn sem nýtist til at-
vinnusköpunar.
Hvað getur þú gert?
Hjálparleysi og vanmáttur getur
verið fylgikvilli hjálparstarfs
þegar eitt skref er stigið áfram
bara til að renna tvö skref til baka
líkt og þegar stjórnvöld bregðast
skyldum sínum með skammtíma-
lausnum. Nú eða bara ef þú fylg-
ist með fréttum, þá getur verið erf-
itt að hafa trú á heiminum og fólk-
inu í honum. Steinunn nefnir sem
dæmi þegar: „Obama kom í heim-
sókn til höfuðborgar Kambódíu,
Phnom Pehn, þá var borgin þrifin
og heimilislaust fólk sett í rútur og
flutt burt. Allt átti að vera svo flott
og fínt fyrir heimsóknina en brott-
flutningur fólksins leysti engan
vanda og sýndi ekki raunverulegt
ástand borgarbúa.“ Steinunn legg-
ur mikla áherslu á að allir geti lagt
sitt af mörkum en ekki þurfi allir
að fljúga yfir hálfan hnöttinn til
að gefa ríkulega af sér. „Þú getur
stutt ýmis samtök með því einu að
nota snjallsímann þinn eða sækja
ýmsa fjáröflunarviðburði sem
hjálparsamtök standa fyrir.“ Þeir
sem svo ætla sér að heimsækja
Kambódíu eru hvattir til að kynna
sér ábyrga ferðamennsku áður
en lagt er af stað. Þú getur bætt
heiminn því margt smátt gerir eitt
stórt.
Fallegt, fágað og töff allt fyrir fermingarnar.
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
9
-7
F
9
4
1
4
0
9
-7
E
5
8
1
4
0
9
-7
D
1
C
1
4
0
9
-7
B
E
0
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K