Fréttablaðið - 06.03.2015, Page 30

Fréttablaðið - 06.03.2015, Page 30
8 • LÍFIÐ 6. MARS 2015 Með því að gera örlitlar breytingar í eldamennsk- unni geturðu gert matinn hollari fyrir þig og fjöl- skylduna. Hérna koma tíu góð ráð sem einfalt er að til- einka sér. Bakaðu Fjölmargan mat er hægt að baka í ofni í stað þess að steikja á pönnu eða djúpsteikja. Með því að nota bakaraofninn minnkarðu fituna sem þú notar til steiking- ar. Kjúklingabringur, kjötboll- ur, kartöflur og beikon, þetta er allt hægt að baka í ofni og verð- ur ekki síðra á bragðið. Blandaðu Blandaðu safann frekar í bland- ara en í djúsvél, þannig hald- ast næringarefnin og trefjarn- ar í ávöxtunum og grænmetinu. Þegar þú notar djúsvél þá tek- urðu svo margt af þessu frá. Góð fita Bættu góðri fitu í matinn; ör- lítil lárpera, fræ, hnetur eða góð ólífuolía. Hafðu bara í huga að vera með temmilega skammtastærð. Þín eigin krydd Búðu til þínar eigin kryddblöndur. Þessar tilbúnu eru oft stútfullar af allt of miklu salti og jafn- vel sykri í þokkabót. Fáðu inn- blástur af því að skoða krydd- blöndur á vefnum. Kremdu Kremdu hvítlauk- inn í stað þess að saxa hann og láttu hann standa í 15 mín- útur. Með því að kremja hann þá verður efnahvati í hvítlauknum sem eykur á hollustuna. Skolaðu Skolaðu alltaf baunir úr krukk- um eða dósum, þær eru stund- um vaðandi í sulli og salti og því öruggara að skola þær áður en þær eru notaðar. Bættu í Bættu litlum soðnum og kældum baunum út í kökudeigið og kjöt- bollurnar, þannig eykurðu prótín í matvörunni á einfaldan og holl- an hátt. Það er líka frábært að bæta smá möluðum hörfræjum út í pönnukökudeigið. Grísk jógúrt Gríska jógúrt má nota í staðinn fyrir rjóma, majónes og nýmjólk í mörgum uppskriftum og er alls ekki síðra á bragðið. Eldaðu rétt Með því að elda ávexti og grænmeti rétt heldurðu næringar- efnunum í þeim. Ekki ofelda mat- inn. Gufusuða er ein besta eldunar aðferðin fyrir grænmeti. Sítrusávextir Notaðu safann af C-vít- amínríku sítrusávöxt- um í staðinn fyrir sósur og dress- ingu. Einfaldur sítrónusafi er ljúffengur á grillaða kjúklinga- bringu og ekki síðri á salatið með örlítilli ólífuolíu. Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is Meistarakokkurinn Eyþór Rúnars- son kemur hér með uppskrift úr þætti sínum í gær, Eldhúsinu hans Eyþórs á Stöð 2. Kakan er ljúffeng og líka bráðholl. Hindberjahrákaka með pekanhnetubotni Botn 5 dl pekanhnetur 3 dl döðlur 1 dl kakó 3 msk. kókosolía vanilluduft salt Setjið allt hráefnið saman í mat- vinnsluvél og vinnið í um 2-3 mín. Smyrjið form með kókosolíu og setjið blönduna í botninn og þjappið vel. Hindberjakrem 3 dl hindber 1 dl agavesíróp 2 dl kasjúhnetur (búnar að liggja í bleyti í tvo tíma) ½ dl kókosolía 1 tsk. chia-fræ 1 tsk. sjávarsalt vanilla 3 dl frosin hindber Setjið allt hráefnið saman í mat- vinnsluvél og vinnið saman í um 3 mín. eða þar til kremið er orðið flauelsmjúkt. Hellið 1/3 af krem- inu yfir botninn og dreifið úr því með skeið. Raðið svo frosnu hind- berjunum yfir allt kremið. Hellið restinni af kreminu yfir hindberin og smyrjið því jafnt yfir. Karamella 1dl hlynsýróp 1 dl kókosolía (við stofuhita) 1 dl hnetusmjör salthnetur Setjið allt hráefnið saman í bland- ara og maukið saman í um 3 mín. Hellið karamellunni yfir og smyrjið vel út í alla kanta. Setjið kökuna inn í frysti og látið hana vera þar í 12 tíma. Gott er að taka kök- una út um 30 mín. áður en á að borða hana. Skreytið kökuna eftir smekk t.d. með ferskum bláberjum og jarðarberjum. HINDBERJAHRÁKAKA MEÐ PEKANHNETUBOTNI 10 LEIÐIR AÐ HOLLARI ELDAMENNSKU Með því að tileinka þér eftirfarandi einföld og fljótleg ráð getur þú gert mataræðið örlítið hollara en það er fyrir. Með því að auka þekkingu þína á hráefnum og nýtingu þeirra bætir þú matseldina. 0 5 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :5 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 9 -8 4 8 4 1 4 0 9 -8 3 4 8 1 4 0 9 -8 2 0 C 1 4 0 9 -8 0 D 0 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.