Fréttablaðið - 06.03.2015, Síða 40
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24
Sýningin Á gráu svæði sem opnuð verður í Hafnar-
borg í Hafnarfirði klukkan þrjú á morgun, laugar-
dag, er fyrsta sýning hins skoska hönnuðar Davids
Taylor hér á landi. Hún samanstendur af hversdags-
legum hlutum eins og lömpum, klukkum og speglum
sem allir bera með sér sterk skúlptúrísk einkenni og
eru oft á tíðum unnir úr óhefðbundnum efniviði.
David Taylor vinnur á gráu svæði, hann er hönn-
uður sem vinnur í anda myndlistar. Sjálfur kall-
ar hann það „contemporary craft“ sem á íslensku
myndi þýðast samtíma handverk. Efnistökin mæta
sérfræðikunnáttu Taylors í málmsmíðum sem hann
nálgast á afslappaðan hátt.
Verkin á sýningunni eru öll ný, sérstaklega unnin
fyrir sýninguna sem er hluti af HönnunarMars og
er sett upp í samstarfi við hönnunarverslunina
S/K/E/K/K. - gun
➜ Sýningin, sem er hluti af HönnunarMars,
verður opnuð klukkan þrjú
á morgun, laugardag.
„Ég ætla að tala um hversdagsleg
ævintýri. Fjársjóðirnir leynast í
nánasta umhverfi okkar, það þarf
bara að opna augu, eyru og fálm-
ara og halda af stað,“ segir Kristín
Ragna Gunnarsdóttir, bókmennta-
fræðingur og teiknari, sem er ein
frummælenda í Gerðubergi um
barna- og unglingabókmenntir á
morgun, laugardag, milli klukkan
10.30 og 13.30.
Ráðstefnan nefnist Hvunndags-
hetjur á köldum klaka og raunsæið
er í forgrunni.
„Ég sprengi kannski aðeins
upp þemað, því ég tel að hægt sé
að auka áhuga barna á lestri með
virkri þátttöku í leik og sköpun,“
segir Kristín Ragna sem hefur
tekið þátt í að búa til bókatengd-
ar sýningar. Þar hafa börn getað
brugðið á leik með orð, sögur og
myndmál og sest niður með bækur.
„Umhverfið á slíkum sýningum er
hvetjandi og ævintýralegt, þar er
leikið með sögupersónur sem vekja
áhuga hjá börnum á að kynna sér
efnið frekar,“ fullyrðir hún.
Kristín Ragna tekur sem dæmi
sýninguna Ormurinn ógnarlangi
sem var í Gerðubergi 2010 til 2011
og sló öll aðsóknarmet. „Krakkar
komu á sýninguna aftur og aftur
og aftur. Þeir kynntust þar sög-
unum úr norrænni goðafræði og
persónum sem tengdust þeim.
Ég setti þá sýningu aftur upp á
Barna- og unglingageðdeild, með
þátttöku barna þar. Á báðum stöð-
unum lágu börn yfir bókunum í
rýminu þar sem þau gátu skriðið
gegnum Miðgarðsorminn eða sátu
í hásæti Óðins og gleyptu þetta
efni í sig.
Þess má geta að bækurnar tvær,
Völuspá og Örlög guðanna, sem
voru lagðar til grundvallar sýn-
ingunni eru báðar uppseldar.“
Á sýningunni Páfugl úti í mýri í
Norræna húsinu síðastliðið haust
voru íslenskar og erlendar bækur
sem áttu það sameiginlegt að hafa
verið tilnefndar til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Kristín Ragna nefnir bækur
um erfið mál, svo sem upplifun
barns á skilnaði foreldra og aðra
um afa sem deyr. „Við máluðum
veggmyndir með sterkum mynd-
um og þarna var sófi sem búið var
að saga í tvennt, þar sátu börn og
rökræddu efnið, meðal annars við
foreldra sína. Maður sá það svart á
hvítu að efni bókanna var að kom-
ast til skila og kveikja í þeim.“
Ráðstefnan er öllum opin og
aðgangur ókeypis.
gun@frettabladid.is
Fjársjóðirnir leynast
í nánasta umhverfi
Hvunndagshetjur á köldum klaka er yfi rskrift ráðstefnu um barna- og unglinga-
bókmenntir sem haldin verður í Gerðubergi á morgun, laugardag.
BÓKMENNTAFRÆÐINGUR OG TEIKNARI „Ég sprengi kannski aðeins upp þemað, því ég tel að hægt sé að auka áhuga barna á
lestri með virkri þátttöku í leik og sköpun,“ segir Kristín Ragna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir hefur verið árlegur við-
burður í Gerðubergi síðan árið 1998 og umfjöllunarefnin hafa verið
fjölbreytileg. Markmiðið er að stefna saman rithöfundum, fræðimönnum,
kennurum, bókasafnsfólki, foreldrum og öðrum áhugasömum.
Fundarstjóri að þessu sinni er Davíð Stefánsson rithöfundur og fyrirles-
arar auk Kristínar Rögnu eru Helga Birgisdóttir, doktorsnemi í barnabók-
menntum, og rithöfundarnir Gunnar Helgason og Illugi Jökulsson.
Ráðstefnan
HÖNNUÐURINN
David Taylor verður
við opnunina og spjall-
ar líka við sýningar-
gesti í Hafnarborg á
sunnudag klukkan 15.
„Við sem að bókinni stöndum erum
afskaplega ánægðar með viður-
kenninguna. Þá fær málefnið enn
meiri athygli því bókin er innlegg
í baráttuna gegn heimilisofbeldi,“
segir Guðrún Kristinsdóttir pró-
fessor, sem í gær tók við viður-
kenningu Hagþenkis 2014 fyrir
ritstjórn bókarinnar Ofbeldi á
heimili – Með augum barna. Aðrir
höfundar eru Ingibjörg H. Harðar-
dóttir, Margrét Ólafsdóttir, Mar-
grét Sveinsdóttir, Nanna Þ. Andr-
ésdóttir og Steinunn Gestsdóttir.
Verðlaunaupphæðin er ein milljón
króna.
Höfundarnir tókust meðal ann-
ars á við það erfiða verkefni að
ræða við óhörðnuð ungmenni um
hið viðkvæma málefni sem heim-
ilisofbeldi er.
Í ályktunarorðum Viðurkenning-
arráðs segir meðal annars: Merki-
legt brautryðjandaverk sem á ríkt
erindi við kennara, foreldra og alla
sem láta sér annt um börn og vel-
ferð þeirra.
- gun
Innlegg í baráttuna
gegn heimilisofb eldi
Guðrún Kristinsdóttir prófessor hlaut í gær viður-
kenningu Hagþenkis 2014 fyrir ritstjórn bókarinnar
Ofb eldi á heimili– Með augum barna.
Hlutir með skúlptúrísk einkenni
Á gráu svæði er sýning skoska hönnuðarins Davids Taylor í Hafnarborg.
VIÐ AFHENDINGUNA Jón Yngvi Jóhannesson afhenti viðurkenninguna við
hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UMHVERFISMÆLAR
Súrefnismælar hitamælar pH mælar o.m.fl.
og nú er Fastus einnig söluaðili Merck efnavöru
Veit á vandaða lausn
MENNING
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
9
-7
F
9
4
1
4
0
9
-7
E
5
8
1
4
0
9
-7
D
1
C
1
4
0
9
-7
B
E
0
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K