Fréttablaðið - 06.03.2015, Qupperneq 54
6. mars 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
Ariana Katrín Katrínardóttir safn-
ar fyrir námsferð til New York með
því að teikna prófílmyndir fólks á
Facebook.
Hún segir söfnunina hafa farið
vel af stað. „Þetta er eiginlega
meira en ég bjóst við. Er eiginlega
bara komin í tvær vinnur eða er
búin að vera síðustu daga,“ segir
hún glöð í bragði.
Hún teiknar myndirnar og skann-
ar inn í tölvu en vinnur þær ekki
frekar. Hver mynd kostar 1.000
krónur en 2.000 krónur ef fólk
vill fá myndina heimsenda en stíll
myndanna fer eftir skapi lista-
mannsins hverju sinni.
„Ég ákvað að setja það inn af því
þetta er það ódýrt, þannig að fólk
gæti kannski ekki verið að panta
eitthvað ákveðið, mér finnst þetta
líka gaman ef maður gerir þetta
bara eins og það kemur til manns,“
segir hún og bætir við: „Bara fyrsta
hugmynd sem fer niður á blað, að
ég sé ekki að krumpa blöð og byrja
upp á nýtt.“
Rúmlega sjötíu manns hafa þegar
keypt mynd af Ariönu og stefn-
ir hún á að safna að minnsta kosti
140.000 krónum, til þess að dekka
flug og gistingu.
„Það er kannski erfiðast þegar
fólk er bara með mynd af sér þar
sem það er sætt eða bara með
selfie,“ segir Ariana þegar hún er
spurð að því hvort ekki sé erfitt að
teikna ókunnugt fólk. „Sumir eru
með skemmtilegan svip, það er líka
bara nóg til þess að gera myndina
áhugaverða,“ segir hún hress að
lokum.
Hægt er að panta mynd af Ariönu
með því að senda hevnni póst á
Facebook.com/ariana.katrin. - gló
Teiknar fólk gegn vægu gjaldi
Ariana Katrín teiknar eft irmyndir af prófílmyndum fólks til að fj ármagna námsferð.
NÓG AÐ GERA Ariana segir eftir-
spurnina vera meiri en hún bjóst við.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
VA
„Muse með lagið Plug in Baby
kemur mér af stað inn í helgina.“
Orri Freyr Rúnarsson, dagskrárgerðarmaður
á X-inu 977
FÖSTUDAGSLAGIÐ
ALVÖRU
TRYLLIR!
MÖGNUÐ SÆNSK
FJÖLSKYLDUSAGA
SPIELBERG
KVIKMYNDAR!
Sýning tileinkuð ferli Bjark-
ar Guðmundsdóttur var opnuð í
nýlistasafninu í New York í Banda-
ríkjunum um liðna helgi. Sýningin
hefur vakið blendin viðbrögð hjá
gagnrýnendum sem ýmist lofa
hana eða lasta.
Jóní Jónsdóttir, einn meðlima
Gjörningaklúbbsins, sem hannaði
búning Bjarkar fyrir Volta-plötu-
umslagið, var stödd úti í New York
á viðhafnaropnun sýningarinnar.
Um gagnrýnina segir hún
þetta: „Það er auðvitað margt
sem er hægt að gagnrýna, en
ég held líka að þetta hafi verið
ákveðið moment að hafa svona
„popicon“ inni í listasafni. Því er
kannski eðlilegt að þetta sé gagn-
rýnt. Þetta er líka mögulega visst
skref fyrir tónlist og myndlist,
því þarna er línan að verða ósýni-
legri,“ segir Jóní.
Þær stöllur í Gjörningaklúbbn-
um fengu góð viðbrögð við sínu
verki á sýningunni. „Við erum
bara mjög ánægðar með okkar
hlut og fengum mjög góð og
jákvæð viðbrögð á okkar verk,“
segir Jóní og bætir við: „Þarna var
líka samankomið allt fólkið henn-
ar Bjarkar og allir þeir hönnuðir
sem hafa unnið með henni eins
og Bernhard Wilhelm, Marjan
Pejoski og þau hjá Three as Four,
svo það var mjög mikill heiður
fyrir okkur að vera þarna,“ segir
hún. Þrátt fyrir gagnrýnina segir
Jóní að það verði enginn svikinn
af því að sjá sýninguna.
Gagnrýnandi breska dagblaðs-
ins The Guardian fer ekki fögr-
um orðum um sýninguna og hafði
þetta um hana að segja: „Kannski
fáum við í náinni framtíð sýningu
sem segir frá því hvernig kona
frá einu minnsta landi heims
fóstraði heila kynslóð af hönn-
uðum, kvikmyndagerðarmönn-
um og tónlistarmönnum á meðan
hún afmáði skilin á milli fagurr-
ar listar og poppmenningar. En
Björk – sem er heiti sýningarinn-
ar, segir ekki þessa sögu. Hún er
skringilega metnaðarlaus án rök-
réttrar hugsunar,“ skrifar Jason
Farago fyrir The Guardian. Hann
segir það furðulega við þetta allt
saman að sýningin sé þess virði
að sjá. „Þrátt fyrir öll vonbrigðin
þá eru þarna sýnishorn sem gefa
til kynna af hverju þessi sýning
var sett upp og hvernig hún hefði
getað orðið,“ skrifar Farago.
Ryu Spaeth sem skrifar í tíma-
ritið The Week var ekki alls
ánægður með sýninguna, en heill-
aðist af tónlistarhluta hennar.
„Tónlistin er dásamlega hávær og
skellur á þér úr öllum áttum, líkt
og ég ímynda mér hvernig það sé
að vera lokaður inni í magnara
Kevins Shields.“
adda@frettabladid.is,
Blendin viðbrögð
við sýningu Bjarkar
Yfi rlitssýning Bjarkar Guðmundsdóttur var opnuð í MoMa um síðastliðna helgi
og hafa gagnrýnendur ytra farið misgóðum orðum um sýninguna og velta fyrir
sér mörkunum milli mynd- og tónlistar.
MISJÖFN VIÐ-
BRÖGÐ Ekki eru
allir gagnrýn-
endur á sama
máli um ágæti
sýningar Bjarkar
á Nýlistasafninu í
New York.
FRÁ SÝNINGUNNI Búningar Bjarkar á sýningunni.
0
5
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
9
-7
5
B
4
1
4
0
9
-7
4
7
8
1
4
0
9
-7
3
3
C
1
4
0
9
-7
2
0
0
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K