Skessuhorn - 26.06.2013, Qupperneq 9
9MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Fimmtudaginn 20. júní síðastlið-
inn fékk Leikskólinn Andabær á
Hvanneyri afhentan Grænfánann
í fimmta sinn. Grænfáninn er al-
þjóðlegt verkefni sem er á vegum
Landverndar hér á landi, en verk-
efnið er til þess gert að auka um-
hverfismennt og styrkja umhverf-
isstefnu í skólum. Til að fá nýjan
fána þarf viðkomandi skóli að sýna
fram á gott starf í þágu umhverf-
issins. Það felst meðal annars í því
að skólinn setur sér ný markmið á
tveggja ára fresti.
Í dag er Andabær kominn með
20 markmið og vinnur ötullega
að þeim. Af þessum 20 markmið-
um setti skólinn sér þrjú ný í vor,
sem eru eftirfarandi: Útikennsla og
vettvangsferðir, molta sjálf og að
gróðursetja trjáplöntur á skólalóð-
inni og hlúa að þeim. Í tilefni dags-
ins var foreldrum, sveitarstjórn og
fleirum boðið að vera viðstödd af-
hendinguna og þiggja léttar veit-
ingar að henni lokinni. hj
Tuttugu og fjórir afburðanemend-
ur úr framhaldsskólum víðsveg-
ar af landinu tóku við styrkjum úr
Afreks- og hvatningarsjóði stúd-
enta Háskóla Íslands við hátíðlega
athöfn á Háskólatorgi sl. fimmtu-
dag. Nemendurnir eiga það sam-
eiginlegt að hafa náð framúrskar-
andi árangri á stúdentsprófi. Með-
al þeirra sem hlutu styrk að þessu
sinni er Guðrún Valdís Jónsdótt-
ir frá Akranesi en hún brautskráð-
ist frá Fjölbrautskóla Vesturlands á
Akranesi um síðustu áramót. Hún
var dúx skólans og hlaut m.a. við-
urkenningar fyrir árangur í íslensku
og sögu, íþróttum, raungreinum og
erlendum tungumálum. Þá hlaut
hún afreksstyrk Akraneskaupstaðar
í vor fyrir árangur sinn. Guðrún á
að baki tíu ára píanónám við Tón-
listarskóla Akraness og hefur lok-
ið miðstigsprófi. Auk þess hefur
hún æft knattspyrnu í átta ár og er
markmaður í meistaraflokki kvenna
hjá ÍA ásamt því að hafa æft og spil-
að með yngri landsliðum Íslands í
íþróttinni. Guðrún hyggur á nám í
læknisfræði í haust.
mm
Um miðja síðustu viku var lokið við
að landa fyrsta farminum af frystum
afurðum í Ísbjörninn, nýja frysti-
geymslu HB Granda við Norður-
garð í Reykjavík. Afurðirnar voru úr
síðustu veiðiferð Helgu Maríu AK
sem frystitogara en skipinu verð-
ur nú siglt til Póllands þar sem því
verður breytt í ísfisktogara. Áætlað
er að breytingarnar taki tæpa fjóra
mánuði. Þar með er 25 ára farsæl-
um ferli skipsins sem frystitogara
lokið. Eftir breytinguna mun verða
rými fyrir 640 kör af fiski í kælilest
skipsins en það samsvarar um 180
tonnum af fiski upp úr sjó. Á þilfari
verður svo kælirými fyrir um 50 kör
af lifur og öðrum aukaafurðum.
Að sögn Steindórs Sverrisson-
ar, útgerðarstjóra frystiskipa HB
Granda, var afli Helgu Maríu úr
síðustu veiðiferð um 8.000 kass-
ar en það svarar til um 190 tonna
af afurðum eða um 275 tonnum af
fiski upp úr sjó. Uppistaða aflans
var þorskur og karfi, auk grálúðu
og minna magns af öðrum fiskteg-
undum.
mm
Nafn: Aldís Thea Daníelsdótt-
ir Glad.
Aldur: 7 ára.
Hvenær lestu? Þegar ég er
heima, stundum á kvöldin.
Áttu uppáhalds bók? Já! Iðn-
ir krakkar.
Áttu einhvern uppáhalds höf-
und? Sigrún Eldjárn.
Hvaða bók lastu síðast? Nýir
nágrannar og Svona stór.
Viltu mæla með einhverri
bók fyrir aðra krakka að lesa?
Nei.
Sumarlesari
vikunnar
Sumarlestur fyrir börn heldur
áfram á Bókasafni Akraness.
Guðrún Valdís í hópi
afreksstyrkþega HÍ
Styrkþegar og fulltrúar þeirra við athöfnina sl. fimmtudag. Með þeim á myndinni
er Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands. Ljósm. Arnaldur Halldórsson.
Guðrún Valdís þegar hún lauk námi við FVA í desember 2012. Hér er hún ásamt
Atla Harðarsyni skólameistara.
Grænfáni í Andabæ í fimmta skipti
Frystum afurðum landað úr Helgu Maríu AK. Mynd HB Grandi/Kristján Maack.
Helgu Maríu AK verður nú
breytt í ísfisktogara