Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Page 28

Skessuhorn - 26.06.2013, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Gleðileg tímamót urðu í bæjarmál- um á Akranesi í síðustu viku þeg- ar forystuparið í meirihluta bæj- arstjórnar, Guðmundur Páll og Sveinn, birtist á ritvellinum í kjölfar greinar okkar félaga í Skessuhorni fyrir nokkru. Tímamótin eru ekki vegna innihalds greinarinnar held- ur vegna þess að greinin er sú fyrsta sem parið ritar um bæjarmál á kjör- tímabilinu, sem nú er komið á sitt síðasta ár. Þriggja ára þögn parsins á opinberum vettvangi er rofin. Eins og fram kom í grein okk- ar á sínum tíma hafa nettóskuldir Akraneskaupstaðar aukist um rúm- an einn milljarð króna með lífeyris- skuldbindingum undir stjórn þeirra félaga án þess að óhóflegri fram- kvæmdagleði verði um kennt held- ur eingöngu miklum hallarekstri sveitarfélagsins. Með grein okk- ar vildum við kalla eftir upplýs- ingum um með hvaða hætti meiri- hluti bæjarstjórnar vildi bregð- ast við hallarekstrinum og aukn- ingu skulda. En þeir félagar skil- uðu auðu. Meirihlutinn er stefnu- laus. „Ábyrgðin og festan“ eru orð- in tóm þrátt fyrir að meirihlutinn sé sá sterkasti í seinni tíma sögu Akra- ness í bæjarfulltrúum talið. Verst er þó að þrátt fyrir rekstr- artap á árinu 2011, sem lá í loft- inu allt árið og vísbendingar stærst- an hluta ársins 2012 um áfram- haldandi rekstrartap sá forustupar- ið niðurstöðuna ekki fyrir ef marka má tímamótagrein þeirra. Af orðum þeirra í ræðu og riti má hins vegar halda að rekstrartapið sé vegna þess að við bæjarfulltrúar Sjálfsstæðis- flokksins þögðum þunnu hljóði. Slíkt er fjarri raunveruleikanum því við fjölmörg tækifæri höfum við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins varað við þróuninni en það er greinilegt af skrifum og verkum forystuparsins að ekki hefur verið tekið eftir þeim viðvörunarorðum. Guðmundur Páll og Sveinn benda á að rekstrarvandi Akraness- kaupstaðar sé hluti af sameiginleg- um vanda sveitarfélaga í landinu. Það er fjarri sanni eins og ársreikn- ingar nágrannasveitarfélaga okkar bera vitni um. „Við eigum við vanda að glíma og þann vanda leysum við ekki með því að benda á vanda ann- arra. Stjórnmálamenn verða að gera fortíðina upp með staðreyndum en ekki óskhyggju,“ sagði sami Sveinn af öðru tilefni sem minnihlutamað- ur á síðasta kjörtímabili. Við getum ekki svarað skrifum þeirra félaga nú betur en með því að nota þessa gömlu skoðun Sveins. Akranes á sér glæsta sögu og þjónusta sveitarfélagins til fyrir- myndar á flestum sviðum. Þá stöðu verða kjörnir fulltrúar að verja. Það verður hins vegar ekki gert með því að loka augunum fyrir stað- reyndum. Góð ímynd byggist upp á löngum tíma og verður að málast með litrófi raunveruleikans. Hin- ir dökknandi litir rekstrarins verða að víkja fyrir bjartari litum bætts rekstrar. Því miður virðist núver- andi meirihluti ekki finna þá á lita- spjaldi sínu. Gunnar Sigurðsson Einar Brandsson. Höf. eru bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi. Staðreyndir víkja fyrir óskhyggju Pennagrein Pennagrein Ég hef verið að velta fyrir mér til hvers við höfum verkalýðsfélög þegar þau geta ekki komið í veg fyrir að verið sé að brjóta á verka- fólki í landinu. Ég veit að þau koma að gerð kjarasamninga og afla verk- fallsheimilda og er ég þeim þakklát fyrir það. Að öðru leyti finnst mér þetta vera orðið að frístundafélög- um, því í mínu tilfelli gátu þau ekki varist þess að ég ásamt fjörum öðr- um konum voru reknar. Við störf- uðum í mötuneyti Elkem á Grund- artanga. Fyrstu þrjú árin störfuðum við á þeirra vegum, en frá 1. sept- ember 2002 störfuðum við und- ir nafninu Fang en þó enn á þeirra vegum. Þá gerðum við fyrirtækja- samning og var okkur sagt að með gerð hans gæti annar rekstraraðili ekki komið inn í mötuneytið og við reknar, en þá höfðum við heyrt af því að láglaunafyrirtæki væri að reyna að komast yfir mötuneyt- ið. Þá vorum við með sambærileg laun og starfsmenn Elkem. Þann 1. júlí 2009 gerðist það að láglauna- fyrirtækið ISS Ísland tók yfir rekst- ur mötuneytis, ræstingu og þvotta- hússins en það er starfandi hjá Norðuráli og þau lofuðu okkur að við héldum öllu okkar. Það var þó ekki með öllu rétt því við þurft- um að sækja margt sem við höfð- um haft og sumu náðum við í gegn en öðru ekki. Við vissum að ISS er láglaunafyrirtæki en héldum að við værum varin af fyrirtækjasamn- ingnum. Þann 31. janúar á þessu ári gerð- ist það að við í mötuneyti og ræst- ingu fengum uppsagnarbréf með þeirri skýringu að ekki væri búið að endurnýja samninginn við El- kem. Einum og hálfum mánuði síðar voru þær í ræstingunni endur- ráðnar. Þær eru allar nema ein bún- ar að vinna við ræstingarnar í frek- ar fá ár. Ég var búin að vinna í 14 ár, önnur í 12 ár og hinar styttra. Þegar við spurðumst fyrir um okk- ar stöðu fengum við einungis loð- in svör og þann 23. apríl sl. komu tveir yfirmenn að sunnan og sögðu okkur að gera ætti skipulagsbreyt- ingu og að við værum ekki æskileg- ar í þeim breytingum. Við fengum hvorki þakkir fyrir störfin né nokkra hjálp við að komast yfir brottrekst- urinn sem er ofboðslegt áfall. Samt skreytir þetta fyrirtæki sig með því að bera hag starfsmanna sinna fyr- ir brjósti. Það hafði aldrei verið kvartað undan vinnu okkar og ég get full- yrt að allir sem komu í mat til okk- ar líkaði vel við okkur. Auðvitað höfum við veikst en sem betur fer mjög lítið. Við unnum þessu fyr- irtæki mjög og eigum þessa fram- komu ISS ekki skilda. Að því sögðu vil ég vita eitt: Vilja góð fyrirtæki í landinu að svona sé komið fram við verkafólk? Er það stefna Elkem á Grundartanga að hafa viðskipti við fyrirtæki eins og ISS? Við vorum allar fyrrverandi starfsmenn þeirra og ég spyr verkalýðsfélög í landinu: Er það í lagi að fyrirtæki segi góðu starfsfólki upp og beri fyrir sig skipulagsbreytingum, en eru eft- ir sem áður með jafn marga starfs- menn, en með minni starfsaldur og lægri laun? Okkur var aldrei boð- ið að taka þátt í þessari skipulags- breytingu. Gæti verið að það sé vegna þess að við stóðum kannski of fast á rétti okkar og af hverju eru við ekki varin fyrir svona fram- komu? Ég er búin að borga í verka- lýðsfélög í 40 ár og ég spyr: Eru það svona fyrirtæki sem þið viljið verð- launa? Virðingafyllst, Málmfríður Guðrún Sigurvinsdóttir. Til verkalýðsfélaga og vinnustaða í landinu Aðalmót Sjóstanga veiðfélagsins Skipaskaga (SjóSkip) fór fram á föstudag og laugardag í blíðskap- arveðri. Mótið var vel sótt en 33 keppendur af báðum kynjum tóku þátt í mótinu. Þar af voru sex heimamenn. Þokkalega fiskað- ist miðað við árstíma og var einna skást veiði næst landi fyrri daginn og seinni daginn í Hvalfirði. Róið var á ellefu bátum sem skipstjórar og útgerðarmenn á Akranesi lán- uðu í keppnina. Aflahæsta konan á mótinu og jafnframt aflahæsti keppandi móts- ins var Sigríður Rögnvaldsdóttir Sjóstangaveiðimót í blíðuveðri Bátarnir bíða eftir blæstri þokulúðurs áður en þeir halda úr höfn klukkan 6 að morgni. Þrjár aflahæstu konur mótsins ásamt skipstjórum sínum. F.v: Sigríður Rögnvalds- dóttir í 1 sæti, Þröstur Reynisson skipstjóri á Snarfara, Guðrún Jóhannesdóttir í öðru sæti, Elín Snorradóttir í þriðja sæti og Jóhannes Eyleifsson skipstjóri á Leifa. frá Siglufirði með 528,70 kíló sam- anlagt yfir báða daga. Aflahæsti karlinn var Arnar Eyþórsson Sjóst- angaveiðifélagi Akureyrar með 521,13 kíló. Aflahæsti báturinn var Snarfari AK 17, skipstjóri Þröst- ur Reynisson með 527,46 kíló að meðaltali á stöng en í áhöfn Þrast- ar voru tvær konur, þær Guðrún Jóhannesdóttir frá Sjóstangaveiði- félagi Akureyrar og Sigríður Rögn- valdsdóttir frá Siglufirði. Sjaldgæft er að eingöngu konur skipi áhöfn aflahæsta bátsins en karlavígi falla hvert af öðru í þessu sem öðru. Í öðru sæti varð Gári AK-5, und- ir stjórn Rögnvaldar Einarssonar með 469,345 að meðaltali á stöng og í þriðja sæti Máni AK-73 með 421,494 kíló að meðaltali á stöng. Stærsti þorskur sem veiddist var 17,1 kíló en hann veiddi Kristján Tryggvason frá Reykjavík en þetta var jafnframt stærsti fiskur móts- ins. Fjölmörg önnur verðlaun voru veitt fyrir stærstu fiska af hverri tegund, aflahæstu sveitir og fleira. Aflahæsti heimamaðurinn var Jó- hannes Marian Simonsen og þess má geta að aðeins vantaði 1,4 kíló upp á afla hans til að hann yrði aflahæsti karl mótsins. Jóhannes var á sínu fyrsta stóra sjóstanga- veiðimóti en áður hafði hann tek- ið þátt í innanfélagsmóti SjóSkip í maí síðastliðnum. hb Þrír aflahæstu skipstjórar. Hörður Jónsson í 2. sæti, Þröstur Reynisson í 1. sæti og Rögnvaldur Einarsson í 2. sæti. Aflahæsti Akurnesingurinn, Jóhannes Simonsen t.h. ásamt Gísla Geirssyni skip- stjóra sínum. Daði Jóhannesson var yngsti þátttakandinn, 16 ára gamall. Hér er hann ásamt móður sinni Ragnhildi Bjarnadóttur, sem hefur stundað sjóstangaveiðimótin í mörg ár og er einn af stofnendum SjóSkip fyrir 19 árum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.