Læknablaðið - 15.06.2001, Síða 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN
Þórður
Óskarsson
Höfundur er sérfræðingur í
kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp, yfirlæknir á
tæknifrjóvgunardeild
kvennadeildar Landspítala
Hringbraut.
Tæknifrjóvganir á íslandi
Þróun starfseminnar
Lög um tæknifrjóvgun öðluðust gildi á íslandi 1. júní
1996. Þar er tœknifrjóvgun skilgreind sem getnaður
er verður í framhaldi af tœknisœðingu eða glasa-
frjóvgun. Tæknisæðing er aðgerð þegar sæði er
komið fyrir í eða nærri kynfærum konu á annan hátt
en með samförum. Glasafijóvgun er aðgerð þegar
eggfruma sem numin hefur verið úr líkama konu er
frjóvguð með sæðisfrumu utan líkamans. Reglugerð
um framkvæmd laganna var sett 30. september 1997
af heilbrigðisráðherra. Tæknifrjóvgun má eingöngu
framkvæma á heilbrigðisstofnun sem fengið hefur til
þess leyfi ráðherra og undir eftirliti sérfræðinga í
kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Meðal annarra
ákvæða laganna er að konan, sem gengst undir að-
gerðina, sé í samvistum við karlmann, í hjúskap eða
óvígðri sambúð, sem staðið hafa samfellt í þrjú ár hið
skemmsta. Aldur pars skal teljast eðlilegur með tilliti
til velferðar bamsins á uppvaxtarárum. Konan skal
þó aldrei vera eldri en 45 ára og eiginmaður eða sam-
býlismaður að jafnaði ekki eldri en 50 ára þegar
settur er upp fósturvísir. Bjóða skal upp á faglega
ráðgjöf sérfræðinga, svo sem félagsráðgjafa eða
sálfræðinga. Andleg og líkamleg heilsa og félagslegar
aðstæður parsins skulu vera góðar. Læknir ákveður
hvort tæknifijóvgun fer fram en synjun má kæra til
landlæknis. Gjafakynfrumur eru leyfilegar sam-
kvæmt ákveðnum reglum, en skilyrði er að, að
minnsta kosti önnur kynfruman komi frá parinu
sjálfu. Þannig er gjöf fósturvísa óheimil sem og
staðgöngumæðrun. Geyma má kynfrumur í allt að 10
ár og frysta fósturvísa má geyma í fimm ár.
Rannsóknir, tilraunir og aðgerðir á fósturvísum skulu
vera óheimilar. Þó skal heimilt að gera rannsóknir á
fósturvísum ef þær eru liður í glasafijóvgunar-
meðferð, ef þeim er ætlað að greina arfgenga
sjúkdóma í fósturvísunum sjálfum, ef þær miða að
framförum í meðferð vegna ófrjósemi eða ef þær eru
ætlaðar til aukins skilnings á orsökum meðfæddra
sjúkdóma og fósturláta. Hámarks leyfilegur
ræktunartími fósturvísa utan líkamans er 14 dagar.
Óheimilt er að framkvæma einræktun.
Upphaf tæknifrjóvgana á íslandi
Tæknisæðingar með gjafasæði hófust á Islandi 1977-
1978. Fyrstu íslensku pörin fóru hins vegar í glasa-
fijóvgunarmeðferð á Bourn Hall Clinic í Englandi 10
árum síðar þar sem íslensk heibrigðisyfirvöld höfðu
gert samning um meðferð íslenskra para. Starfsemi
tæknifrjóvgunardeildar Landspítalans hófst í
október 1991. Á tæknifrjóvgunardeildinni eru nú 12
starfsmenn og sinnir deildin tæknisæðingum,
glasafrjóvgunum og sæðisrannsóknum. Við upphaf
starfseminnar var áformað að framkvæmdar yrðu
100-150 glasafrjóvgunarmeðferðir árlega. Eftir-
spurnin reyndist hins vegar mun meiri og auk þess
sem húsnæðið varð fljótt allt of lítið lengdist bið-
listinn stöðugt. Eftir að deildin var flutt í stærra
húsnæði í ágúst 1996 reyndist unnt að fjölga
meðferðum, stytta biðlista úr rúmlega tveimur árum
í eitt ár og taka upp ýmsar rauðsynlegar nýjungar.
Nýjungar
Frysting fósturvísa hófst í apríl 1996. Hjá um 40%
para er unnt að frysta umfram fósturvísa en við
uppsetningu þeirra þarf konan ekki að gangast undir
örvun eggjastokka eða eggheimtuaðgerð. Þá hefur í
nokkrum tilfellum verið hægt að frysta fósturvísa
áður en frumudrepandi lyfjameðferð hefst hjá
konum sem fengið hafa krabbamein. Ekki er hins
vegar unnt að frysta ófrjóvguð egg sem takmarkar
þessa meðferð við konur í sambúð. Reynt er að þróa
þá tækni frekar víða erlendis. Smásjárfróvganir
(intracytoplasmic sperm injection) hófust í mars
1997. Hér er einni sæðisfrumu sprautað inn í
eggfrumuna. Þessi aðferð er notuð þar sem sæðis-
frumur eru mjög fáar, með skertan hreyfanleika eða
ef frjóvgun hefur verið dræm í fyrri glasafrjóvgunum.
Þetta hefur opnað alveg nýja vídd þar sem þörf fyrir
gjafasáðfrumur hefur minnkað mjög mikið. í árslok
1997 var tekin upp aðferð, „assisted hatching", til að
auka líkur á legfestu fósturvísanna. Þá er rétt fyrir
uppsetningu fósturvísanna gert svolítið gat á hlífðar-
hjúpinn (zona pellucida) sem umlykur fósturvísinn. f
samvinnu við þvagfæraskurðlækna Landspítalans var
í ársbyrjun 1998 byrjað að sækja sáðfrumur í
eistalyppuna (microsurgical ependidymal sperm
aspiration, MESA) eða í eistað sjálft (testicular
sperm extraction, TESE). Þessi aðgerð hefur gefið
góða raun hjá allmörgum pörum þar sem engar
sæðisfrumur finnast í sæðisprufunni. Á þessu ári
hefur hluti þessarra aðgerða flust yfir á tækni-
frjóvgunardeildina þar sem sáðfrumum er náð með
Læknablaðið 2001/87 509