Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 65

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEIMILISLÆKNINGAR þá er líklegt að einkarekstur gæti höfðað til sumra okkar, virkjað dulda krafta og blásið í glæður kulnaðrar lífsgleði. Þótt einkarekstur sé eðli málsins samkvæmt lítt til þess fallinn að þroska hina þjóðfélagslegu ábyrgðartilfinningu eða félagsþroska sem er grundvöllur farsællar heilsueflingar í samfélaginu, þá ber okkur að reyna þessa leið að því tilskyldu, að skýrt sé tekið fram í þjónustusamningi, til hvers sé ætlast af starfseminni. Vafalaust myndi það hleypa nýju lífi í heimilislæknastéttina að leyfa heimilislæknum að hefja sjálfstæðan rekstur að nýju, þótt fyrst í stað yrði það á kostnað þeirra heilsugæzlustöðva sem fyrir eru. Við sameiningu sjúkrastofnana og heilsugæzlustöðva bind ég tak- markaðar vonir, því sameiningarbrölt þjónar oftast þeim tilgangi að fela bruðl stjórnenda og ná fram sparnaði með því að leggja niður þjónustu minnstu eininganna. Myndarlegt veganesti fjárveitingavald- sins hefur þó stundum gert hveitibrauðsdaga þessara nýju stofnana bærilegri. 9. Bæta liðsandann: Nýta þarf viðurkenndar aðferðir til að efla og bæta starfsanda á heilsugæzlu- stöðvum. Affarasælast yrði að fá utanaðkomandi sálfræðinga eða sérfræðinga í atferlisvandamálum til að greina veika hlekki og veita handleiðslu við að styrkja þá. Nauðsynlegt er fyrir alla að gera sér grein fyrir því, að árangursríkt starf í heilsugæzlu næst einungis með teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi, þar sem gagnkvæmur skilningur ríkir milli meðlima teymisins á mikilvægi þátttöku hvers annars og gagnkvæm virðing ríkir með tilheyrandi uppörvun og hvatningu. Með því að ganga af heilum hug til samstarfs og skoðanaskipta geta heimilislæknar vænzt þess að verða áhrifameiri en nú er, til dæmis við stjórnun, þar sem forystan ætti að liggja sem mest á okkar herðum. Framtíðarmöguleikar heimilislækna liggja að mínu viti miklu fremur í teymisvinnu en gamaldags einangrunarstefnu, því með sameiginlegu átaki verða hinar nýju brautir ruddar inn á mikilvæg svið forvarna og heilsueflingar. Að því er mikill fengur fyrir heimilislækna og aðrar starfsstéttir heilsugæzlunnar, notendur þjónustunnar og raunar þjóðfélagið í heild, að fleiri fagstéttir bætist í liðs- heildina svo sem sálfræðingar, félagsráðgjafar, sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. 10. Sóknarfæri á sviði vinnuverndar: Eitt þeirra sviða sem heilsugæzlan þarf lögum samkvæmt að sinna betur, er vinnuvernd. Vegna þeirrar vanrækslu hefur einkafyrirtæki nokkurt náð að hasla sér völl á sviði trúnaðarlækninga og forvarna með ýmsum nýstárlegum aðferðum, sem mörgum heimilislækn- inum er þyrnir í augum. Við getum margt af þeirra vinnubrögðum lært; meðal annars eru aðferðir til að vinna gegn innri stöðnun fyrirtækisins lærdómsríkar. Þarna gætu og leynzt tekjumöguleikar fyrir heilsugæzluna. Með nánu samstarfi við lækni geta hjúkrunarfræðingar unnið mikið af þeim forvarna- störfum, sem til úrlausnar eru. Enn sem komið er virðist vera meira framboð af hjúkrunarfræðingum til starfa í heilsugæzlunni en af læknum. Það er því afar mikilvægt að ná sem beztu samstarfi við þá stétt og styðja hjúkrunarfræðinga í viðleitni þeirra til að koma á „nurse practitioner-" námi hérlendis. 11. Flæðistýring og skipulegt samráð: Mikilvægt er að koma á flæðistýringu í heilbrigðiskerfinu, þannig að í því sé fólginn efnahagslegur ávinningur fyrir sjúklinga að leita fyrst til heilsugæzlunnar með heilsufarsvandamál sín. Með bættri mönnun gæti heilsugæzlan unnið með faglegum hætti gegn þeim oflækningum, sjúkdómsvæðingu og óhóflegu sóun almannafjár sem viðgengist hefur. 12. Liðsauki úr öðrum sérgreinum: Gera þarf sérfræðingum úr öðrum greinum læknisfræðinnar kleift með öllum tiltækum ráðum að umskóla sig til starfa í heimilislækningum. Til þess duga sömu ráð og að ofan greinir varðandi nýliðun. Efnahagslegur hvati verður að vera fyrir hendi og tækifæri til áhugaverðra viðfangsefna, svo sem vísindavinnu, kennslu og annars þess, er metnaði svalar og stuðlar að frama. 13. Heimilislækni í liðsheild sjúkrahúslækna: Á Norðurlöndunum og trúlega víðar hefur það gefizt afar vel til skilningsauka og bættrar samvinnu að heimilislæknir komi reglulega á ákveðnar deildir, til dæmis einn dag í viku hverri, og fundi með sjúkra- húslæknum og öðru starfsliði um þá sjúklinga sem inni liggja eða bíða útskriftar. Með þessu móti nýtast sambönd og þekking heimilislæknisins sjúklingnum og starfsemi sjúkrahússins til hagsbóta og gagn- kvæmur skilningur skapast milli geira heilbrigðis- kerfisins og virðist ekki vanþörf á. Um árabil hafa heimilislæknar á Akureyri fundað með lyflæknum FSA með góðum árangri. Jafnframt fer vel á því, að heimilislæknar á vöktum hafi móttöku sína á bráðamóttökum sjúkrahúsa og gerir það vinnuna sýnu skilvirkari en ella. Lokaorð Hér að framan hef ég leitt að því nokkur rök, að mönnunarvandi heilsugæzlunnar í landinu og dökkar horfur í þeim efnum eigi sér að verulegu leyti hug- lægar rætur, því við höfum tekið þátt í sjúkdóms- væðingardansinum og tamið okkur meðferðar- hugsunarhátt í stað þess að efla heilbrigði. Af tryggð við fornar kennisetningar og helgisiði hefur okkur dagað uppi í gjörbreyttu þjóðfélagi, þar sem við finnum að við höfum misst slagkraftinn. Það er mikil- vægt fyrir heimilislæknastéttina að gera sér grein fyrir því, að við sem einstaklingar og hópur sýnum ýmis uggvænleg merki stéttarþunglyndis, sem við verðum að finna ráð til að ráðast gegn. Þessar hugleiðingar mínar eru viðleitni til þess arna. Læknablaðið 2001/87 565
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.