Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÁLÞING FKLÍ
Fjölmenni var á fundinum eins og sjá má.
og kennslu, blasir við önnur mynd. Þar eru mjög fáar
konur. Margar erlendar rannsóknir lýsa þessari stöðu
kvenna innan læknastéttar og fram hafa komið
ábendingar um það hvernig draga megi úr
kynbundinni mismunun.
Félag kvenna í læknastétt á íslandi skorar á
landlækni, stjórnendur læknadeildar Háskóla
íslands og Landspítala háskólasjúkrahúss að virða
jafnréttissjónarmið við skipan í ráð og nefndir og
við stöðuveitingar, og að bæði konur og karlar séu
kölluð til starfa.
Félagið telur eðlilegt að stjórnendur lækna-
deildar Háskóla íslands og Landspítala háskóla-
sjúkrahúss standi vörð um störf jafnréttisnefnda
Háskólans og Landspítalans, fylgist með fram-
kvæmd jafnréttisstefnu þeirra og veiti þeim nauð-
synlegan stuðning.
Félagið beinir þeim tilmælum til stjórnenda
læknadeildar Háskóla íslands og Landspítala
háskólasjúkrahúss að þeir beiti sér fyrir fræðslu
um jafnréttismál og geri nauðsynlegar ráðstafanir
til að auka sveigjanleika í læknanámi, rannsóknar-
vinnu og í klínískum störfum unglækna sem geri
konum jafnt sem körlum kleift að samræma starf
sitt og skyldur gagnvart fjölskyldu.
Séð yfir hluta pallborðsins.
Ólöf Sigurðardóttir, Ingibjörg
Hinriksdóttir, Ingibjörg Georgsdóttir,
Hildur Svavarsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir,
Jóhannes Gunnarsson og Matthías
Halldórsson. Meðal þess sem rœtt var í
pallborðsumrœðunum varþörfm á að
hafa virka jafnréltisáœtlun á
sjúkrahújsum, heilsugœslustöðvum og í
háskólanum. Umrœðan gaf tilefni til
fullrar bjartsýni um að bœtt verði úr þeim
brotalömum sem eru þar á.
Læknablaðið 2001/87 553