Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR / LYFLÆKNINGAR-KRABBAMEIN
Lifrarfrumukrabbamein á íslandi
Brynja
Ragnarsdóttir1,
Jón Gunnlaugur
Jónasson1,2
Hrafn Tulinius1,3,
Sigurður Ólafsson4
'Læknadeild Háskóla íslands,
!Rannsóknastofa Háskólans í
meinafræði,
’Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands,
‘Iyflækningadeild Landspítala
Fossvogi. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Sigurður
Ólafsson, lyflækningadeild
Landspítala Fossvogi, 108
Reykjavík. Sími: 525 1000.
Netfang:
sigurdol@landspitali.is
Lykilorð:
lifrarfrumukrabbamein,
faraldsfrœöi, orsakir, ísland.
Ágrip
Inngangur: Nýgengi lifrarfrumukrabbameins
(hepatocellular carcinoma) er mjög mismunandi eftir
löndum og landsvæðum. I Norður-Evrópu er ný-
gengið lágt (um það bil fimm á 100.000) og hefur
stærsti hluti sjúklinganna skorpulifur. Á íslandi hefur
tíðni skorpulifrar og sýkinga af lifrarbólguveirum
verið talin lág, en þetta eru megináhættuþættir fyrir
lifrarfrumukrabbameini. Markmið þessarar rann-
sóknar var að kanna nýgengi lifrarfrumukrabba-
meins á íslandi og tengsl við þekkta áhættuþætti
þessa sjúkdóms.
Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar á íslandi,
sem greindust með þessa tegund krabbameins á
tímabilinu 1984-1998, voru með í rannsókninni.
Leitað var í tölvuskrám Rannsóknastofu Háskólans
í meinafræði, meinafræðideildar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri og í Krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags Islands. Greining var staðfest með
vefjasýni. Upplýsingar voru unnar úr vefjagrein-
ingarsvörum, krufningarskýrslum og sjúkraskrám
sjúkrahúsa.
Niðurstöður: Alls greindist 71 einstaklingur, 51
karl og 20 konur. Meðalaldur karla við greiningu
var 69,3 ár (18-95) og kvenna 72,9 ár (52-89).
Aldursstaðlað nýgengi á tímabilinu var 1,08 á
100.000 (nýgengi karla 2,10, kvenna 0,67). Nýgengi
hækkaði ekki marktækt á tímabilinu. Algengustu
áhættuþættirnir voru misnotkun áfengis (15,5%) og
hemochromatosis (11%). Skorpulifur höfðu 23
(32%) en 39 (55%) höfðu engan þekktan
áhættuþátt. Af þeim 55 tilvikum þar sem upplýs-
ingar voru til um lifrarvef reyndust 27 hafa lifrar-
sjúkdóm utan æxlis.
Ályktanir: 1) Nýgengi lifrarfrumukrabbameins
er lægra á Islandi en í nágrannalöndum. 2) Mis-
notkun áfengis og hemochromatosis eru algengustu
áhættuþættirnir hér á landi. 3) Hlutfall sjúklinga
með skorpulifur er lágt.
Inngangur
Lifrarfrumukrabbamein (hepatocellular carcinoma)
eru æxli upprunnin frá lifrarfrumum. Pau eru meðal
algengustu krabbameina í heiminum en nýgengi er
þó afar mismunandi eftir landsvæðum (1). Pað er
hæst í Asíu þar sem 20-30 ný tilfelli greinast árlega á
hverja 100.000 íbúa. Sjúkdómurinn er mun sjald-
gæfari í Mið- og Norður-Evrópu, þar sem nýgengi er
innan við fimm á 100.000 íbúa. Pessi mikli munur
ENGLISH SUMMARY
Ragnarsdóttir B, Ólafsson S, Jónasson JG, Tulinius H
Hepatocellular carcinoma in lceland
Læknablaöiö 2001; 87: 527-31
Introduction: The incidence of hepatocellular carcinoma
(HCC) varies throughout the world, being relatively low in
Northern Europe (less than five per 100,000 population)
where the majority of the patients have cirrhosis. In lceland
the prevalence of viral hepatitis and cirrhosis, the main risk
factors for HCC, is lower than reported in many other
countries. The aim of our study was to investigate the
incidence and etiology of HCC in lceland.
Material and methods: All patients diagnosed with HCC
in lceland in 1984-1998 were included in the study.
Histologic diagnosis was required for inclusion. Patients
were identified from the lcelandic Cancer Registry and by
reviewing autopsy and histopathology reports. Further
information was obtained from medical records.
Results: A total of 71 cases of HCC were identified, 51
males and 20 females. The mean age for males was 69.3
years (18-95) and 73 years (52-89) for females. The age-
standardized annual incidence rate of HCC was
1.08/100,000 (males 2.10, females 0.67). The incidence
did not increase significantly during the study period.
Alcohol abuse (15.5%) and hemochromatosis (11 %) were
the most common risk factors. Twenty-three (32%) had
cirrhosis but 39 (55%) had no known risk factors. Of 55
cases where non-neoplastic tissue was available for
examination, 27 had liver disease.
Conclusions: 1) The incidence of HCC in lceland is lower
than reported in other countries. 2) Alcohol abuse and
hemochromatosis are the most common risk factors. 3)
The ratio of patients with cirrhosis is low.
Key words: hepatocellular carcinoma, epidemiology,
etioiogy, lceland.
Correspondence: Sigurður Ólafsson:
sigurdol@landspitali.is
skýrist aðallega af mismunandi tíðni áhættuþátta.
Aðaláhættuþættir lifrarfrumukrabbameins eru
lifrarbólga B og C, skorpulifur og alfatoxín B. Þar
sem nýgengi lifrarfrumukrabbameins er hæst svo
sem í sumum löndum Asíu og Afríku er lifrarbólga B
landlæg (2).
Nýgengi sjúkdómsins hefur farið vaxandi á
undanförnum árum, ekki síst í Bandaríkjunum og
Læknablaðið 2001/87 527