Læknablaðið - 15.06.2001, Side 12
Aventis
Glimepirid w
Einfalt og öruggt
lyf við sykursýki
af tegund 2
• Lágmarksáhætta á alvarlegu blóðsykursfalIi1)
• Viðheldur hæfileika hjartans til að koma í veg fyrir blóðþurrð 2>
• Veldur ekki þyngdaraukningu 3)
• Alltaf gefið einu sinni á dag 4)
Amaryl®
Töflur: Hver tafla inniheldur: Glimepiridum 1 mg, 2 mg eða 3 mg. Ábendingar: Insúlínóháð sykursýki þegar blóðsykri er ekki hægt að stjórna með mataræði eða megrun. Amaryl má
einnig nota samhliða insúlíni. Skammtastærðir og notkun: Amaryl er gefið einu sinni á dag. Töflurnar á að taka með fyrstu máltíð dagsins. Upphafsskammtur og aukning skammta:
Upphafsskammtur er 1 mg á dag. Eftir þörfum er skammtur aukinn um 1 mg með 1-2 vikna millibili. Venjulega er viðhalds dagsskammtur um 1- 4 mg. Ef 4 mg nægja ekki á að íhuga að
skipta yfir á insúlínmeðferð eða samsetta meðferð með insúlíni eða öðrum sykursýkilyfjum til inntöku. Skipti frá öðrum sykursýkilyfjum til inntöku: Byrja á meðferð með 1 mg á dag,
daginn eftir að gjöf fyrra lyfsins er hætt. Eftir þörfum er skammtur aukinn um 1 mg aðra hverja viku. Ef ekki næst nægilega góð stjórnun hjá sjúklingum á lyfinu, skal samhliða insúlínmeðferð
hafin. Halda skal sömu skammtastærð af glímepíríd og hefja insúlínmeðferð fyrst með lágum skömmtum og svo skal smám saman hækka skammtinn. Frábendingar: Insúlínháð sykursýki,
sykursýkidá, ketónblóðsýring, alvarlegir nýrna- eða lifrasjúkdómar, ofnæmi fyrir glímepíríd eða öðrum súlfónýlúrealyfjum eða súlfónamíðum eða hjálparefnum í lyfinu. Við mjög skerta
nýrna- eða lifrarstarfsemi er nauðsynlegt að skipta yfir í insúlínmeðferð. Lyfið má hvorki nota á meðgöngu né hjá konum með barn á brjósti. Varnaðarorð og varúðarreglur: Lyfið skal
taka rétt fyrir eða með mat. Ef máltíðir eru óreglulegar eða þeim alveg sleppt, getur meðhöndlun með lyfinu valdið lágum blóðsykri. Það er þekkt frá notkun á öðrum sulfónýlúrealyfjum
að þótt upphaflega sé auðveldlega hægt að snúa blóðsykurslækkuninni við getur hún átt sér stað aftur. Við meðferð með lyfinu er þörf á reglulegum mælingum á sykur magni í blóði og
þvagi. Auk þess er mælt með að meta hlutfall af glúkósatengdu hemóglóbíni. Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá sjúklingum með alvarlega skerta lifrarstarfsemi eða hjá sjúklingum í
blóðskilun. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi er mælt með að skipta yfir í insúlínmeðferð. Milliverkanir við lyf eða annað: Ef lyfið er tekið samtímis öðrum
lyfjum, geta bæði óæskileg hækkun og lækkun á blóðsykursáhrifum glímepíríds átt sér stað. Neysla alkóhóls getur á ófyrirsjáanlegan hátt aukið eða minnkað blóðsykurslækkandi áhrif
glímepíríds. Meðganga og brjóstagjöf: Amaryl má ekki nota á meðgöngu. Þar sem súlfónýlúrea-afleiður eins og glímepíríd útskiljast í brjóstamjólk eiga konur með börn á brjósti ekki að
nota lyfið. Aukaverkanir: Miðað við þá reynslu sem fengist hefur með notkun á Amaryl og öðrum súlfónýlúrealyfjum er nauðsynlegt að taka fram eftirfarandi aukaverkanir: Algengustu
aukaverkanirnar eru ógleði (um 2%), niðurgangur (um 2%) kviðverkir, uppþemba og uppköst. Sjaldgæfar (0,1-1%): Ofnæmis- eða ofnæmislík viðbrögð, t.d. kláði, útbrot, roði, ofsakláði.
Blóðsykursfall. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Blóðflagnafæð, hvítfrumnafæð. Aukið Ijósnæmi. Vegna breytinga á blóðsykri geta komið fram tímabundnar sjóntruflanir í upphafi meðferðar.
Pakkningar og verð (1. mars 2001): Töflur 1 mg: 30 stk. (þynnupakkað) 983 kr., 90 stk. (þynnupakkað) 2.619 kr. Töflur 2 mg: 90 stk. (þynnupakkað) 4.154 kr. Töflur 3 mg: 90 stk.
(þynnupakkað) 5.226 kr. Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðsluþátttaka: Almannatryggingar greiða lyfið að fullu. Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210
Garðabæ.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið í Sérlyfjaskrá 2000.
Heímildir: 1) Holstein A, Plaschke A, Egberts EH. Lower incidence of severe hypoglycaemia in type 2 diabetic patients treated with glimepiride vs. glibendamide. Diabetalogica 2000;43 (Suppl
1):A157 2) Klepzig H, Kober G, Matter C, Luus H. Sulfonylureas and ischeamic preconditioning. A double blind, placebo controlled evaluation of glimepiride and glibendamide. Eur. Heart J
1999;20:439-46. 3) Bugos C, Austin M, Atherton T, Viereck C. Long term treatment of type 2 diabetes mellitus with glimepiride is weight neutral: A Meta-Analysis. Dia Res Clin Pract 2000; Vol
50, (Suppl 1): P251 4) Sérlyfjaskrá 2000.