Læknablaðið - 15.06.2001, Page 20
VIOXX
MSD 990068 TÖFLUR MOIAH
Virkt innihaldsefni: 123 mg eða 25 mg rofekoxib. Töflumar inni-
halda laktósu. Ábendingar. Meðferð við einkennum af völdum
slitgigtar. Skammtar: Ráðlagður upphafsskammtur er 123 mg
einu sinni á dag. Hámarksskammtur á dag er 25 mg. Aldraðir:
Gæta skal varúðar þegar dagskammturinn er aukinn úr 123 mg í
25 mg hjá öldruöum. Skert nýrtiastarfsemi: Skammta þarf ekki að
aðlaga hjá sjúklingum með kreatínín klerans 30-80 ml/mín. Skert
lifrarstarfsemi: Sjúklingum með væga skerðingu á lifrarstarfsemi
(Child-Pugh gildi 5-6) skal ekki gefa meira en minnsta ráðlagðan
skammt, 123 mg einu sinni á dag. Frábendingan Rófekoxíb er
ekki ætlað: Sjúklingum sem hafa þckkt ofnæmi fyrir einhverjum af
innihaldsefnum lyfsins. Sjúklingum með virkan sársjúkdóm í
meltingarvegi eða blæðingu í meltingarvegi. Sjúklingum með
miðlungsalvarlega eða verulega skerðingu á lifrarstarfsemi
(Child-Pugh gildi £ 7). Sjúklingum með áætlaðan kreatínín klerans
< 30 ml/mín. Sjúklingum sem hafa haft einkenni astma, bólgu f
nefslímhúð, sepa í nefslímhúð, ofsabjúg eða ofsakláða eftir inn-
töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi verkjalyfja. Til
notkunar á sfðasta þriðjungi meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf
stendur. Sjúklingum með bólgusjúkdóm í þörmum. Sjúklingum
með langt gengna hjartabilun.
Vamaöarorð og varúðarreglun Þegar blóðflæði um nýru er
minnkað getur rófekoxíb dregið úr myndun prostaglandfna og
með því minnkað blóðflæði um nýru enn meira og þannig valdið
skerðingu á nýmastarfsemi. Þeir sem eru í mestri hættu m.t.t.
þessa eru sjúklingar sem hafa verulega skerta nýmastarfsemi fyr-
ir, hjartabilun sem líkaminn hefur ekki náð að bæta upp, og sjúk-
lingar með skorpulifur. Hafa skal eftirlit með nýmastarfsemi
slíkra sjúklinga. Gæta skal varúðar þegar meðferð er hafin hjá
sjúklingum með verulegan vökvaskort. Ráðlcgt er að bæta slíkan
vökvaskort upp áður en meðferð með rófekoxíbi er hafin. Eins og
á við um önnur lyf sem koma í veg fyrir myndun prostaglandína,
hafa vökvasöfnun og bjúgur átt sér stað hjá sjúldingum á rófe-
koxíb meðferð. Þar sem meðferð með rófekoxíbi getur leitt til
vökvasöfnunar skal gæta varúðar hjá sjúklingum sem hafa fcngiö
hjartabilun, truflanir á starfsemi vinstri slegils eða háan blóðþrýst-
ing og einnig hjá sjúklingum sem hafa bjúg fyrir, af einhverjum
öðrum orsökum. Eftirlit skal haft með öldruðum og sjúklingum
með truflanir á nýma-, lifrar-, eða hjartastarfsemi, þegar þeir eru á
rófekoxíb meðferð. í klínískum rannsóknum fengu sumir slitgigt-
arsjúklinganna sem voru á rófekoxíbi meðferð rof, sár eða blaeð-
ingar í meltingarveg. Sjúklingar sem áður höfðu fengið rof, sár eða
blæðingar og sjúklingar sem vom eldri en 65 ára virtust vera í
meiri hættu á að fá fyrmefndar aukavcrkanir. Þegar skammturinn
fer yfir 25 mg á dag, eykst hættan á cinkcnnum frá meltingarvegi,
sem og hættan á bjúgi og háum blóðþrýstingi. Hækkanir á ALAT
og/eða ASAT (u.þ.b. þreföld eðlileg efri mörk, eða meira) hafa
vcrið skráðar hjá u.þ.b. 1% sjúklinga I klínískum rannsóknum á
rófekoxíbi. Ef sjúklingur fær einkenni sem benda til truflana á lifr-
arstarfsemi, eða niðurstöður úr lifrarprófum em óeðlilegar, skal
hætta rófekoxíb meðferð ef óeðlileg lifrarpróf em viðvarandi (þre-
föld cðlileg efri mörk). Rófekoxíb getur dulið hækkaðan líkams-
hita. Notkun rófckoxíbs, sem og allra annarra lyfja sem hamla
COX-2, er ekki ráðlögð hjá konum sem em að reyna að verða
þungaðar. Böm: Rófckoxíb hefur ekki verið rannsakað hjá bömum
og skal aðcins gefið fullorðnum. Magn laktósu í hverri töflu er lík-
lega ekki nægilegt til þess að framkalla einkenni Iaktósuóþols.
Milliverkanir: Hjá sjúklingum sem náð höfðu jafnvægi á langvar-
andi warfarín meöferð varð 8% lenging á prótrombíntíma í tengsl-
um við daglega gjöf 25 mg af rófekoxíbi. Því skal hafa nákvæmt
eftirlit með prótrombíntíma hjá sjúklingum sem em á warfarín
meðferð þegar rófekoxíb meðferð er hafin. Hjá sjúklingum með
vægan eða miðlungsmikinn háþrýsting, varð örlítil minnkun á
blóðþrýstingslækkandi áhrifum í tengslum við samhliða gjöf 25
mg af rófekoxíbi á dag og ACE-hemiIs 14 vikur, miðað við áhrífin
af ACE-hemlinum eingöngu. Hvað varðar önnur lyf sem hamla
cýclóoxýgenasa, þá getur gjöf ACE-hemils samhliða rófckoxíbi,
hjá sumum sjúklingum með skerta nýmastarfsemi, leitt til enn
meiri skcrðingar á nýmastarfsemi, sem þó gengur venjulega til
baka. Þessar milliverkanir ber að hafa 1 huga þegar sjúklingar fá
rófekoxíb samhliða ACE-hemlum. Notkun bólgueyðandi verkja-
lyfja samhliða rófekoxíbi gæti einnig dregið úr blóðþrýstingslækk-
andi verkun beta-blokka og þvagræsilyfja sem og annarra verkana
þvagræsilyfja. Forðast skal samhliða gjöf stærri skammta af
acetýlsalicýlsýru eða bólgueyðandi verkjalyfja og rófekoxíbs.
Samhliða gjöf cýklósporíns eða takrólímus og bólgueyðandi
verkjalyfja getur aukið eiturverkanir cýklósporíns eða takrólímus
á nýru. Eftirlit skal hafa með nýmastarfsemi þegar rófekoxíb er
gefið samhliða öðru hvoru þessara lyfja. Áhrif rófekoxíbs á lyfja-
hvörf annarra lyfja: Blóðþéttni litíums getur aukist af völdum
bólgueyðandi verkjalyfja Hafa ber í huga þörf fyrir viðeigandi eft-
irlit með eiturverkunum tengdum metótrexati þegar rófekoxíb er
gefið samhliða metótrexati. Engar milliverkanir við dígoxín hafa
komið fram. Gæta skal varúðar þegar rófekoxíb er gefið samhliða
lyfjum sem umbrotna fyrst og fremst fyrir tilstilli CYP1A2 (t.d.
teófyllíni, amitryptilíni, tacríni og ziIcútonij.Gæta skal varúðar
þegar lyfjum sem umbrotna fyrir tilstilli CYP3A4 er ávísað sam-
hliða rófekoxfbi. í rannsóknum á millivcrkunum lyfja, hafði rófe-
koxíb ekki klínískt mikilvæg áhrif á lyfjahvörf prednisóns/predn-
isólons eða getnaðarvamartaflna (etinýlöstradíóls/norethindróns
35/1). Áhrif annarra lyfja á lyfjahvörf rófekoxíbs: Þegar öflugir
cýtókróm P450 innleiðarar eru ekki til staðar, er CYP-hvatt umbrot
ekki meginumbrotsleið rófekoxíbs. Engu að síður olli samhliða
gjöf rófekoxíbs og rífampíns, sem er öflugur innleiðari CYP ens-
íma, u.þ.b. 50% lækkun á blóðþéttni rófekoxíbs. Því skal íhuga að
gefa 25 mg skammt af rófekoxfbi þegar það er gefið samhliða lyfj-
um sem eru öflugir innleiðarar umbrots f lifur. Gjöf ketókónazóls
(öflugur CYP3A4 hemill) hafði ekki áhrif á lyfjahvörf rófekoxíbs í
blóði. Címetidín og sýruhamlandi lyf hafa ekki ldfnfskt þýðingar-
mikil áhrif á lyfjahvörf rófekoxíbs. Meöganga og brjóstagjöf:
Notkun rófekoxíbs, sem og allra annarra lyfja sem hamla COX-2,
er ekki ráðlögð hjá konum sem eru að reyna að verða þungaðar.
Rófekoxíb á ekki að nota á síðasta þriðjungi meðgöngu þar sem
það gæti, eins og önnur lyf sem hamla myndun prostaglandína,
dregið úr samdrætti legs í fæðingu og valdið ótfmabærri lokun á
slagæðarás. Notkun rófekoxíbs hefur ekki verið rannsökuð hjá
þunguðum konum í fullnægjandi samanburðarrannsóknum og
skal þvf ekki nota lyfið á fyrstu tveimur þriðjungum meðgöngu
nema væntanlegt gagn af meðferðinni réttlæti mögulega áhættu
fyrir fóstrið. Ekki er vitað hvort rófekoxíb skilst út í brjóstamjólk,
en það skilst út í mjólk tilraunadýra. Konur sem eru á rófekoxíb
meðferð ættu ekki að hafa böm á brjósti. Aukaverkanin Eftirfar-
andi lyfjatengdar aukaverkanir voru skráðar, af hærri tíðni en þeg-
ar um lyfleysu var að ræða, í klínískum rannsóknum hjá sjúkling-
um sem fengu 123 mg eða 25 mg af rófekoxíbi í allt að sex mán-
uði. Algengar (>1 %): Almennar: Bjúgur,vökvasöfnun, kviðverkir,
svimi. Hjarta- og æðakerfi: Hár blóðþrýstingur. Meltingarfæri:
Brjóstsviði, óþægindi í efri hluta kviðar, niðurgangur, ógleði, melt-
ingartruflanir. Taugakerfi: Höfuðverkur. Húð: Kláði. Sjaldgæfar
(0,1-1 %): Almennar: Þreyta/máttleysi, uppþemba, brjóstverkur.
Meltingarfæri: Hægðatregða, sár í munni, uppköst, vindgangur,
nábítur. Augu, eym, nef og kok: Eymasuð. Efnaskipti og næring:
Þyngdaraukning. Stoðkerfi: Sinadráttur. Taugakerfi: Svefnleysi,
svefnhöfgi, svimi.Geðræn einkenni: Geðdeyfð, minnkuð andleg
skerpa. Ondunarfæri: Andþyngsli. Húð: Útbrot, atópískt eksem.
Að auki hafa væg ofnæmisviðbrögð verið skráð í sjaldgæfum til-
vikum í klínískum rannsóknum.Aukaverkanir voru svipaðar hjá
sjúklingum sem fengu rófekoxíb í eitt ár eða lengur. Breytingar á
niðurstöðum blóð- og þvagrannsókna: Algcngar (>1 %): Hækk-
un á ALAT, lækkun á hematókrít, hækkun á ASAT. Sjaldgæfar
(0,1-1 %): hækkun á þvagefni, lækkun á hemóglóbíni, hækkun á
kreatínfni, Hækkun á alkalískum fosfatasa, prótein í þvagi, fækk-
un rauðra og hvítra blóðkoma. Eftirtaldar alvarlegar aukaverkan-
ir hafa verið skráðar í tengslum við notkun bólgueyðandi verkja-
lyfja og ekki er hægt að útiloka þær í tengslum við rófekoxíb: Eit-
urverkanir á ným, þ.á m. millivefs nýmabólga nýrungaheilkenni
(nephrotic syndrome) og nýmabilun; eiturverkanir á lifur, þ.á m.
lifrarbilun og lifrarbólga; eiturverkanir á mcltingarfæri, þ.á m. rof,
sár og blæðingar; eiturverkanir vegna of mikils blóðrúmmáls, þ.á
m. hjartabilun og bilun í vinstri slegli; aukaverkanir á húð og slím-
húðir og alvarleg viðbrögð í húð. Eins og á við um bólgueyðandi
verkjalyf geta alvarlegri ofnæmisviðbrögð átt sér stað þ.á m.
bráðaofnæmi án þess að viðkomandi hafi áður fengið rófekoxíb.
Pakkningar og verð (desember, 2000): Töflur 123 mg og 25 mg:
14 stk. 2756 kr. 28 stk. 4888 kr. 98 stk. 14555 kr Afgreiðsla: Lyfseð-
ilsskylda, Greiðsluþátttaka: E. Handhafi markaðsleyfis: Merck
Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland. Umboösaðili á íslandi:
Farmasía ehf, Síðumúla 32,108 Reykjavík.
lflOXX (ROFEKOXIB, MSD)
!0iWm:íB" íi Mandi
^ MERCK SHARP& DOHME
FARMASÍA ehf.
EINÁDAG
(rófekoxíb, MSD)
Sértækt - Áhrifaríkt - Einfalt