Læknablaðið - 15.06.2001, Page 34
FRÆÐIGREINAR / VIÐ RUMSTOKKINN I
Mynd 1. Lungnamynd. Örvarnar benda á eitlastœkkanir í báðum My nd 2. Petta er sneið úr TS-rannsókn aflungum og miðmæti. Sneiðin er í
lungnahliðum (hili). Einnig sjáum við eitlastœkkanir í miðmœti, það hœð við berkjuskiptingu (carina). Löngu örvarnar benda á stœkkaða eitla.
er þykknun meðfram barka báðum megin, meira vinstra megin. Stutta örin sýnir okkur loft í vélinda aftan við berkjuskiptingu.
sést íferð í efri- og miðlappa hægra lunga og smáar
þéttingar neðarlega í vinstra lunga. Vélindamynd
sýnir 3 cm svæði í miðju vélinda sem er samandregið
og hangir skuggaefni í vélinda fyrir ofan þetta svæði
eftir kyngingu. Þetta svæði nær þó að víkka að hluta
og þá er slímhúðarmynstrið eðlilegt. Við kyngingu
fer örlítið af skuggaefni niður í efsta hluta barka.
Tölvusneiðmynd af brjóstholi leiðir í ljós eitla-
stækkanir í miðmæti og hnútlaga þéttingar í báðum
lungum. Segulómun af höfði sýndi töluverða slím-
húðarbólgu í fleygbeinsholu (sinus sphenoidalis).
Auk þess beinbreytingar í hnakkabeinsklif (clivus)
og fleygbeinsvængnum. En við munum fá nánari
lýsingu á myndgreiningarannsóknum síðar.
Konan var lögð inn á sjúkrahús og rannsókn gerð
til greiningar á sjúkdómnum.
Samantekt
Brynjar Viðarsson blóðfrœðideild Landspítala:
Áður hraust 55 ára gömul reykingakona, með átta
mánaða sögu um risafrumuæðabólgu, sem svaraði
hefðbundinni sterameðferð, en er nú aftur komin
með almenn einkenni, slappleika og þyngdartap og
einkenni frá meltingarvegi sem virðast reyndar aldrei
hafa horfið. Aðalvandamálið nú eru vaxandi
kyngingarerfiðleikar og nýtilkomið hæsi sem reynist
stafa af lömun í koki og raddbandi hægra megin.
Sjúklingur er með hátt einstofna (monoclonal) IgA
og afbrigðilegar eitilfrumur á blóðstroki. Má ég sjá
röntgenmyndirnar.
Myndgreining
Eyþór Björgvinsson Röntgen Domtts Medica:
Á lungnamynd (mynd 1), sem tekin er við komu sést
fyrirferð í báðum lungnahliðum (hili) og tvöfaldur
skuggi við ósæðarbogann ásamt þykknun á mjúkvef
meðfram barkanum. Þetta útlit bendir eindregið til
eitlastækkana í miðmæti og við lungnahlið. Síðan er
fyrirferð út frá hægra lungnahliði, gæti verið æxli.
Auk þessa sjást litlar hnökróttar þéttingar í neðri
hluta lungna. Á hliðarmyndinni sést, eins og venju-
lega, loft í barkanum, en einnig önnur loftsúla þar
fyrir aftan. Þetta er loft í vélinda sem getur tengst
kyngingarörðugleikunum sem talað var um.
Skuggaefnisrannsókn af vélinda sýnir ásvelgingu
(aspiration) yfir í barka við kyngingu og þrengingu á
vélinda í hæð við berkjuskiptingu (carina). í þessari
þrengingu er órofin slímhúð og ekki yfirhangandi
brúnir eins oft sést þegar æxlisvöxtur er í slímhúð.
Tölvusneiðmynd af brjóstholi (mynd 2) sýnir
stækkaða eitla í miðmæti. I hæð við ósæðarbogann er
töluvert loft í vélindanu en neðar, í hæð við berkju-
skiptingu, fellur vélindað saman í miðju eitlaberði. Á
sneiðunum fyrir neðan sést þrenging á berkju til
hægra lunga. Það eru því eitlastækkanir í fram- og
miðhluta miðmætis. I báðum lungunum eru dreifðir
litlir hnútar sem ganga bæði út frá fleiðru og í
lungnavef.
Segulómun af heila (mynd 3) sýnir slímhúðar-
bólgu í sáldbeins- (ethmoidal) og fleygbeinsholum.
Fleygbeinsholan er alveg þétt og í henni stutt
vökvaborð. Það er aukið segulskin í beininu (T2
534 Læknablaðið 2001/87