Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 36

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 36
FRÆÐIGREINAR / VIÐ RÚMSTOKKINN I blóðstroki sjást afbrigðilegar eitilfrumur (27%). Það er hækkun á einstofna IgA-mótefni í blóði og LD (lactic dehydrogenase) mælist hátt (mikilvægt ef grunur er um sjúkdóma með tíðum frumuskipt- ingum). Það sjást íferðir á lungnamynd og eitla- stækkanir í miðmæti, þeir stærstu allt að 2 cm í þver- mál. ífarandi vöxtur í fleygbeinsholu er áhyggjuefni. Mín nálgun hér er að búa til vandamálalista eða lista yfir einkenni og/eða óeðlilegar rannsóknar- niðurstöður. Síðan má gera lista yfir mismunagrein- ingar fyrir hvert einstakt einkenni, en þeir listar yrðu bæði margir og langir. Reyni ég því að sameina ein- kenni á einn eða fáa lista og finna þær fáu mismuna- greiningar sem tengja þau saman. Mikilvægt er samt að hafa í huga að „óalgeng einkenni algengra sjúk- dóma eru algengari en algeng cinkenni óalgengra sjúkdóma“. Þetta á kannski ekki við á þessum fundi, þar sem líkast til er ekki verið að fjalla um einfalda pneumókokkalungnabólgu og skútabólgu, heldur sjaldgjæfan sjúkdóm með undarlega sjúkdómsmynd! Orsakir tauga- og vöðvakyngingarerfiðleika (neuromuscular dysphagia) væri dæmi um langan lista. Það má stytta hann talsvert ef við gerum annan um orsakir koklömunar og bræðum þá saman. Þá væri kominn viðráðanlegri listi mismunagreininga. Einnig getum við hugsað um taugun (innervation) í kokinu. Flakktaugin (n. vagus), sem er lengsta taug líkamans, sér um þetta svæði að mestu, þótt tungu- og koktaug (n. glossopharyngeus) komi þar eitthvað að. Heilastofnsskaði hjá upptökum þessara tauga gæti skýrt einkenni, en engin merki eru um breytingar í heilastofni á segulómun. Þessar tvær taugar, ásamt aukataug (n. accessorius), fara síðan úl um kúpu- botninn í gegnum hóstargat (foramen jugularis). Ef einhver þrengsli eru á þeim stað, eru yfirleitt allar þrjár taugarnar skaddaðar (heilkenni Vernets) en engin merki fundust um lömun á tungu- og koktaug eða aukataug. Við megum samt ekki gleyma því að þessar taugar koma út um kúpubotninn nálægt hnakkabeinsklifi, þar sem beinbreytingar sjást á segulómun. Ef við höldum áfram niður eftir flakktauginni, þá fara frá henni þræðir ofarlega á hálssvæðinu, sem sjá um taugun koksins. Það gerist áður en taugin kemur niður í miðmætið og til þess að fá lömun í kokið þarf hún því að skaddast áður en þessir þræðir fara út frá henni. Skaði á afturhverfri taug barkakýlis (n. laryngeus recurrence) (kemur frá flakktaug í miðmæti) veldur hæsi vegna lömunar á raddbandi en ekki vegna lömunar í koki. Líklegast er að hér sé um skaða á flakktauginni að ræða, einhvers staðar milli kúpubotns og miðmætis. Annan langan lista má gera um orsakir eitla- stækkana. Þar eru stórir flokkar sjúkdóma, sýkingar, sjálfsofnæmissjúkdómar, sarklíki (sarcoidosis) og ill- kynja sjúkdómar. Erfitt er að nálgast greininguna frá slíkum lista. En ef við setjum saman þann lista og annan álíka langan lista yfir ástæður einstofna mót- efnamyndunar (monoclonal gammapathy), er hægt að þrengja hringinn talsvert. Líkurnar á að hér sé um að ræða eitilfrumuæxlissjúkdóm, myeloma eða aðra plasmafrumusjúkdóma aukast mikið. Tengslum myeloma og risafrumuæðabólgu hefur verið lýst (1). Eitilfrumuæxli og hæggengt eitilfrumuhvítblæði (chronic lymphocytic leukemia) valda hækkun á paraprótíni í innan við 10% tilfella. Hækkun á paraprótíni sem finnst fyrir tilviljun (Monoclonal Gammopathy of Unknown Significans, MGUS) er samt langalgengasta ástæða einstofna mótefna- hækkunar (2), en ólíkleg hér, þar sem paraprótín- hækkunin fylgir einkennunum. Afbrigðilegar eitil- frumur á blóðstroki auka líkurnar á eitilfrumu- sjúkdómi enn frekar. Myeloma veldur yfirleitt aldrei eitlastækkunum eins og í þessu tilfelli, og því líklegra að um eitilfrumuæxli eða hugsanlega afbrigði plasmafrumusjúkdóms væri að ræða. Sýkingar væru efst á lista um orsakir „bólgu“ í afholum nefs. Beinbreytingarnar eru hins vegar áhyggjuefni og geta bent til ífarandi vaxtar. Líklegast er að um illkynja vöxt sé að ræða, þar sem langvinnar bakteríusýkingar valda yfirleitt ekki svona breyt- ingum. Sveppasýkingar (3), til dæmis Aspergillosis, sem einstaklingar með ónæmisbælingu fá (oftast vegna langvinnrar neutropenia), gætu valdið slíkum breytingum, en þessi kona virðist ekki sérstaklega ónæmisbæld. Þá ætti maður einnig von á meiri hita og höfuðverk, ásamt sárum í nefi með slímútferð. Mucormycosis væri enn ólíklegri ástæða. Iferðir í afholur nefs og fjölgun afbrigðilegra eitilfrumna leiðir hugann að fremur sjaldgæfum eitilfrumusjúkdómum, þótt ólíklegir séu. Einn þessara sjúkdóma er AILD (Angio-Immunoblastic Lymphadenopathy with Dysproteinemia) (4), þar sem fástofna (oligoclonal) aukning verður á mótefnum og telst hann því ekki illkynja. Þessi sjúkdómur getur samt orðið einstofna í allt að 20- 30% tilfella og þá oftast af T- eða NK- (natural killer)frumu eitilfrumumeini. Það sjást oft mjög miklar eitlastækkanir í AILD, og þrátt fyrir að flokkast ekki sem illkynja sjúkdómur nema í minnihluta tilfella, deyr helmingur sjúklinganna vegna sýkinga á fyrstu þremur árunum eftir greiningu. Castelmans sjúkdómur (CD), eða angiofollicular lymph node hyperplasia, er annað sjaldgæft eitilmein (5), sem hefur svipaða sjúkdómsmynd þegar það er dreift um líkamann. Yfirleitt er samt um fjölstofna mótefnaaukningu að ræða ásamt blóðleysi en sjúkdómurinn getur orðið einstofna og umbreytist þá í eitilfrumuæxli í allt að 40% tilfella og í Kaposi- sarkmein í 13% tilfella. Castelmans sjúkdómur hefur verið tengdur human herpes vírus 8 (HHV-8), öðru nafni Kaposi sarcoma related herpes virus sem drífur áfram fjölgun eitilfrumna með framleiðslu interleukin-6. Castelmans sjúkdómur og risafrumu- 536 Læknablaðið 2001/87

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.