Læknablaðið - 15.06.2001, Side 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PERSÓNUVERND OG FRIÐHELGI EINKALÍFS
Endurupptaka á Alþingí eina lausnin
Af málþingi lækna og lögmanna um gagnagrunninn
Lögmannafélag Íslands og Læknafélag Ís-
lunds efndu til niálþings þunn 27. upríl síðustliðinn
uin pcrsónuvernd og friðhelgi einkulífs í Ijósi
gugnugrunnu ú heilbrigðissviði. Spurt vur hvort
luusnursteinur fyndust.
Fundurinn vur huldinn á Grund Hóteli í Reykju-
vík og vur vel sóttur.
Framsögur á fundinum höfðu Björg Rúnurs-
dóttir lögmaður sem fjallaði um mörk heimilda
löggjafans og læknarnir Friðrik Vagn Guðjónsson
sem fjallaði um heimilislækninn og gagnagrunninn
og Jón Snædul sem fjallaði um persónuvernd og
frelsi til rannsókna. Læknablaðið hefur ákveðið að
birta inngangserindi þremenninganna og birtist
erindi Friðriks Vagns í þessu tölublaði en erindi
þeirra Bjargar og Jóns munu birtast í næsta tölu-
blaði Læknablaðsins.
Asgeir Thordoddsen formaður Lögmannafé-
lags íslands setti fundinn og skýrði frá því í upp-
hafi að tveir fyrirhugaðir þátttakendur, Einar Stef-
ánsson læknir sem ætlunin var að tæki þátt í pall-
borðsumræðum og Hynur Halldórsson lögmaður
sem ætlunin var að yrði einn framsögumanna og
hafði ætlað að ræða um rétt samfélagsins and-
spænis rétti einstaklingsins, hefðu báðir boðað for-
Sigurbjörn Sveinsson formaður Lœknafélags fslands og Ásgeir Thoroddsen formaður
Lögmannafélags fslands sátu í pallborði og stjórnuðu umrœðum.
föll af persónulegum ástæðum. Þess má geta að
báðir munu vinna fyrir íslenska erfðagreiningu.
Að loknum framsöguerindum, sem ekki verða
rakin hér, hófust pallborðsumræður. í pallborði
sátu auk framsögumanna Vilhjálmur Árnason
heimspekingur, Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
og Tómas Zoéga læknir, umræðunum stýrðu for-
menn félaganna Ásgeir Thoroddscn og Sigiirbjörn
Sveinsson.
I máli fyrirspyrjenda var augljós gagnrýni á
lagasetninguna og það hvernig að málum hefur
verið staðið, þótt vissulega hafi ekki allir verið
samdóma þar um. Mörgum fyrirspurnum var beint
til þátttakenda í pallborði og verður þeirra að
nokkru getið hér ásamt viðbrögðum þeirra er í
pallborði sátu:
Spurt var um siðareglur lögfræðinga varðandi
afhendingu persónulegra upplýsinga um
skjólstæðinga og var því til svarað að lögmenn
mættu einungis láta af hendi persónulegar upplýs-
ingar um skjólstæðinga sína að gegnum dómi þar
að lútandi. Löggjafinn tryggði að unnt væri að leita
lögfræðilegrar ráðgjafar án þess að eiga á hættu að
upplýsingar lentu til þriðja aðila.
Við spurningu þess efnis hvort einhver í panel
gæti mælt með gagnagrunninum í þeirri mynd sem
hann er, komu engin jákvæð svör.
Tórnas velti því fyrir sér hvernig unnt væri að
koma í gegnum Alþingi lagasetningu sem væri jafn
siðferðislega röng og gagnagrunnslögin væru.
Hvað stæði að baki lagasetningunni eða öllu held-
ur hverjir og með hvaða hagsmuni í huga.
Hann velti einnig fyrir sér hvernig unnt væri að
komast útúr þeirri pattstöðu sem málið væri í.
Helst taldi hann mögulegt að líta til hins alþjóð-
lega læknasamfélags, það er Alþjóðafélags lækna,
sem mögulegs áhrifavalds til þess að unnt yrði að
fá breytt lögunum um miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði.
Ragnar taldi að málið hefði verið unnið á röng-
um forsendum frá grunni. Umræðan hefði átt að
byrja á hinum siðferðislegu spurningum, um rétt
einstaklingsins, en þeirra spurninga var ekki spurt
fyrr en ákvarðanir höfðu verið teknar. Hann sagði
átakanlegan þann þekkingarskort sem við hefði
blasað meðal þingamanna, bæði varðandi ýmsar
siðferðislegar spurningar og annað er snýr að
mannréttindum. Lagasetningin hefði í raun farið
542 Læknablaðið 2001/87