Læknablaðið - 15.06.2001, Qupperneq 72
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
Rainer Brettenthaler rætt um jafnréttismál í stéttinni (Equal
nýkjörinn forseii CP ásamt Opportunities, CP 2001/036) og er líklegt að
greinarhöfundi. vönduð jafnréttisstefna UEMO verði lögð til
grundvallar hjá CP í stað þess að málið sé unnið
upp að nýju.
Sú fjórða sinnir siðfræði og siðareglum (Ethics
and Professional Codes Subcommittee). Par eru á
döfinni lyfjaauglýsingar á netinu (CP 2001/017),
lyfjanotkun í íþróttum (CP 2000/044), kennsla í
siðfræði fyrir læknanema (CP 2000/043, mann-
réttindi alþjóðleg og hvað lækna varðar (CP
2001/031 og fleira, CP 1999/032), upplýst sam-
þykki (CP 2001/045), líftækniiðnaður (CP Info 11-
2001 og líknardráp (CP 2000/085), en eins og
margir vita hefur hollenzka þingið nýverið sam-
þykkt lög sem undir vissum kringumstæðum
heimila það).
að góðri heilbrigðisþjónustu, til að fyrirbyggja,
greina, meðhöndla og endurhæfa,
c. rétti sjúklings til að velja sér lækni og er það í
samræmi við faglegar siðareglur,
d. að heilbrigðisþjónusta byggi á samstarfi
læknis og sjúklings, að unnið sé á viðurkenndan
hátt (good clinical practice) og með samþykki
sjúklingsins
e. að þagnarskylda sé siðfræðileg skylda sem
verði að virða sjúklingsins vegna,
f. að virða verði rétt sjúklings til að leita álits
annars læknis,
g. að veita verði heilbrigðisþjónustu, sem læknir
sjúklings telur nauðsynlega, nógu fljótt til að ekki
valdi tjóni og til að draga úr þjáningum sjúklings.
Þetta nær til heilsugæzlu og sérfræðinga, innan og
utan sjúkrahúsa og skal veita þjónustuna án þess
að gert sé upp á milli fólks (free of all forms of
discrimination),
h. að íbúar ESB/EES landanna verði að eiga
rétt á að leita sér læknishjálpar án mismununar
innan Evrópusambandsins sé kostnaður sambæri-
legur.
i. að fjármögnun heilbrigðisþjónustu verði að
vera sértæk og gegnsæ, nægja til að mæta þörf
almennings og uppfylla kröfur um lýðheilsu,
tryggja sjálfbæra langtímaþróun í þjónustunni og
nægja til að hægt sé að sinna vísindarannsóknum
og endurmenntun/símenntun (CPD) sómasam-
lega að mati fagfólks,
j. að stöðug þróun gæðakerfa eigi að vera
innbyggð í heilbrigðisþjónustu og fagleg skylda,
k. að gæðaþróun (quality improvement) skuli
vera innifalin í allri heilbrigðisþjónustu. Lækna-
félög hvers lands þurfa að taka beinan þátt í
kerfisbundinni þróun sem byggir á beztu þekkingu
og
l. starfsfólk heilbrigðisþjónustu verður að taka
þátt í gæðamati (external quality assessment)
Nýkjörinn forseti
Ályktanlr
CP samþykkti nokkrar ályktanir á aprílfundi sínum.
Ein fjallar um blóðgjafir og blóðgjafa (CP 2001/029),
önnur mótmælir því harðlega að tóbaksræktun skuli
njóta fjárstuðnings (CP 2001/044). Þá var lýst yfir
stuðningi við 2001/115/EC um að leyfilegt magn
vínanda í blóði ökumanns skuli ekki vera hærra en
0,5 mg/ml (CP 2001/060) og einnig var samþykkt
ítarleg ályktun (CP 2000/087) um meginatriði í
heilbrigðisþjónustu í ESB og EES löndum þar sem
gengið er út frá:
a. ábyrgð einstaklingsins á heilsu sinni og
skyldu samfélagsins að leggja því lið með fræðslu
og heilbrigðu umhverfi,
b. að það sé réttur fólks að eiga jafnan aðgang
Nýr forseti CP var kjörinn í apríl 2001 og tekur hann
við um næstu áramót. Sá nefnist Rainer
Brettenthaler og er frá Austurríki. Hann hefur verið
fulltrúi austurrískra lækna í UEMO og CP í nokkur
ár, bókaormur sem gaman er að tala við. Nýkjörnir
varaforsetar eru Pedro Nunes frá Portúgal, Len
Harvey frá Bretlandi, Jesper Poulsen frá Danmörku
og Christopoulos frá Grikklandi. Prófessor Vilmar
frá Þýzkalandi var endurkjörinn gjaldkeri og
undirrituð naut þess heiðurs að vera kjörin
endurskoðandi (internal auditor) samtakanna.
Nánari upplýsingar eru fáanlegar hjá Lœknafélagi
íslands.
572 Læknablaðið 2001/87