Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ORLOFSMÁL
Nýr sumarbústaður við Hreðavatn
Bústaðurinn er reisulegur séður frá veginum.
Snemma í júní bauð Læknafélag íslands til mót-
töku að Hreðavatni. Tilefnið var vígsla nýs sumar-
bústaðar sem Orlofsnefnd félagsins hefur látið
reisa á allstórri lóð sem félagið hefur á leigu norð-
an við vatnið. Var það mál manna að þetta ætti
eftir að verða eitthvert eftirsóttasta sumarhús sem
félagið hefur upp á að bjóða.
Nýi bústaðurinn stendur tæplega 100 metrum
vestan við Höfða, eldri bústað félagsins. Hann
stendur nokkuð hátt í brekku með óviðjafnanlegt
útsýni yfir Hreðavatn til suðurs út um stofuglugg-
ann. Umhverfis húsið er 115 fermetra verönd og
vestan til á henni heitur pottur.
Húsið er finnskt að uppruna og úr bjálkum en
flutt inn og reist af fyrirtækinu Bjálkatækni ehf.
Pað er um 80 fermetrar að stærð, þrjú svefnher-
bergi, eldhús, stofa, baðherbergi og geymsla. Á
veröndinni ætti alltaf að vera hægt að finna skjól
einhvers staðar, svo sem til að grilla.
Það mun því ekki væsa um lækna og fylgdarlið
þeirra sem dvelja í þessu húsi um ókomna tíð.
Húsið er þegar komið í útleigu. -ÞH
Veröndin nœr hringinn í
kringum húsið og að
vestanverðu er heitur
pottur.
Nafnarnir og frœndurnir
Sigurbjörn Björnsson for-
maður orlofsnefndar og
Sigurbjörn Sveinsson for-
maður LÍ með hjónin Her-
mann Hermannsson og
Auði Axelsdóttur á milli
sín en fyrirtœki þeirra,
Bjálkatœkni ehf, byggði
bústaðinn.
Bústaðnum bárust gjaftr við vigsluna, þar á meðal raka-
tækifrá byggjendunum og barómeter frá stjórn LÍ sem
formaðurinn er hér að búa sig undir að afhenda.
588 Læknablaðið 2002/88