Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNT SAMSTARF
Norræna læknaráðið
Jón Snædal
körinn formaður
Jón Snœdal varaformaður
Lœknafélags íslands og
formaður Norrœna lœkna-
ráðsins í góðum félagsskap
við útskrift lœknastúdenta.
Jóni á hœgri hönd er eigin-
kona hans, Guðrún Karls-
dóttir, en Ásdís Rafnar
framkvœmdastjóri LÍ á þá
vinstri.
Þröstur
Haraldsson
Á fundi Norræna læknaráðsins sem haldið var í
Osló í lok maímánaðar bar það til tíðinda að Jón
Snædal var kosinn formaður ráðsins til næstu tveggja
ára. Kosning hans tengist því að röðin er komin að
íslandi að halda næsta fund ráðsins en þeir eru haldn-
ir á tveggja ára fresti lil skiptis í löndunum fimm.
Verður næsti fundur þess haldinn á Akureyri vorið
2004.
Stjórn Norræna læknaráðsins hittist tvisvar á ári
og er sameiginlegur vettvangur norrænu læknafélag-
anna. Annað hvert ár er öllum stjórnarmönnum fé-
laganna og ýmsum embættismönnum boðið til fund-
ar í ráðinu sjálfu. Læknafélag íslands hefur þó aldrei
sent fleiri en tvo eða þrjá fulltrúa á þessa fundi enda
er þátttaka í þeim kostnaðarsöm fyrir félagið.
Á þessum fundum ráðsins eru tekin fyrir ákveðin
mál og reynt að kryfja þau til mergjar. Aðalmál fund-
arins í Osló voru tvö: öryggi sjúklinga og skipulag og
fjármögnun heilbrigðiskerfisins. Jón sagði í samtali
við Læknablaðið að það sem helst hefði komið
mönnum á óvart í umræðum um öryggi sjúklinga
hefði verið að rannsóknir í Danmörku bendi til þess
að því sé ábótavant og að það sé minna en almennt er
álitið.
„Ég sé enga ástæðu til að ætla að þessu séu
öðruvísi hagað hér á landi. Meðferð sjúklinga verður
æ flóknari og þar með eru svo mörg atriði sem verða
að ganga rétt. Mælingum, bæði sjálfvirkum og hand-
virkum, hefur fjölgað og í þeim getur margt brugðist.
Á fundinum var varpað fram þeirri spurningu hvort
ekki væri rétt að taka upp sömu vinnubrögð og við-
höfð eru í flugrekstri þar sem menn skoða öll atvik
sem kalla má næstum því óhöpp og reyna að draga af
þeim ályktanir til þess að auka öryggið. Einnig var
bent á að öryggisleysi sjúklinga á sér ekki eingöngu
rætur í mannlegum mistökum heldur valda því einnig
kerfislægar ástæður," sagði Jón.
Skipulag og fjármögnun heilbrigðisþjónustu er
stöðugt til umræðu meðal norrænna lækna. Þar hafði
Þórður Sverrisson framsögu fyrir hönd Læknafélags
íslands en auk hans töluðu Finnar og Norðmenn. í
Noregi hafa orðið miklar breytingar á uppbyggingu
heilbrigðiskerfisins og kom ýmislegt forvitnilegt fram
í umræðunum sem of langt mál yrði að tíunda hér.
Símenntun og kjaramál
Auk þessara umræðna á ráðsfundum hefur stjórnin
ýmis hagsmunamál lækna til umfjöllunar. Þar má
nefna símenntun lækna sem oft er til umræðu. Þar er
staða íslenskra lækna önnur og betri en kollega á
Norðurlöndum hvað varðar rétt til að sækja nám-
skeið og ráðstefnur því víðast hvar á Norðurlöndum
fá eingöngu þeir sem halda fyrirlestra að sækja ráð-
stefnur.
Norræna læknaráðið fylgist með því hvaða þjón-
ustu læknar sem starfa tímabundið í öðru aðildar-
landi geta fengið hjá læknafélagi gistilandsins. Er
hægt að sjá á heimasíðum læknafélaganna hver þessi
þjónusta er og hvaða stuðnings menn geta vænst, svo
sem í kjaramálum. Fyrir nokkru kom upp hugmynd
um að gera samanburð á kjörum norrænna lækna en
frá því var horfið vegna þess hversu ólík launakerfin
eru og einnig störf lækna frá einu landi til annars.
Nefna má að víða er farið að gera vinnustaðasamn-
inga. Þá koma umræður um lækna í vanda ávallt til
umræðu á fundum ráðsins af og til enda um sambæri-
leg vandamál að ræða í öllum löndunum.
Loks ber að nefna að vettvangi ráðsins og stjórnar
þess er mótuð sameiginleg stefna norrænna lækna út
á við. Norrænu læknafélögin reyna að tala sem mest
einum rómi í samstarfi evrópskra lækna og í Alþjóða-
félagi lækna og Norræna læknaráðið er kjörinn vett-
vangur til þess að samstilla raddirnar.
584 Læknablaðið 2002/88