Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ORLOFSMÁL / VERÐLAUN
Þótt bústaðurinn sé glœsilegur á alla lund slœr hann ekki við útsýninu sem blasir við úr stofugluggunum. Hér er Hreðavatn í allri sinni dýrð.
Myndir: Sigurjón Sigurðsson, Sigríður Haraldsdóttir og -ÞH.
Verðlaunaveiting á lyflæknaþingi
Á þingi Félags íslenskra lyflækna sem haldið er
annað hvert ár hefur skapast sú hefð að veita verð-
laun fyrir góða rannsóknarvinnu og framsetningu
niðurstaðna. Tilgangurinn með þeim er að hvetja
lyflækna til dáða og örva rannsóknir íslenskra lækna
en slík verðlaun geta reynst aðstoðarlæknum og stúd-
entum afar mikilvæg þegar þeir sækjast eftir fram-
haldsnámi við bestu læknaskóla í útlöndum.
Á 15. þinginu sem haldið var á Isafirði dagana 7,-
9. júní voru veitt þrenn verðlaun. Félag íslenskra
lyflækna veitti verðlaun fyrir besta veggspjaldið en
þau hlutu Brynja Gunnlaugsdóttir og Björn Rúnar
Lúðvíksson. Veggspjaldið bar númerið VI8 og heitið
Nœmi áðitr óþekkts forstigs CD4+/CD45RA+ T-
fntmna fyrir bœliáhrifum TGF-þl.
Þá veitti Vísindasjóður lyflækningadeildar Land-
spítala tvenn verðlaun. Önnur eru fyrir besta framlag
aðstoðarlæknis og hlaut þau Sædís Sævarsdóttir fyrir
erindi E31 Framskyggn rannsókn á byrjandi iktsýki
bendir til að sjúklingar með lágt mannósa bindilektín
fái verri sjúkdóm. Hún var reyndar einnig höfundur
að erindi E32.
Hin verðlaunin voru veitt fyrir besta framlag stúd-
ents en þau komu í hlut Steinunnar Þórðardóttur
fyrir erindið E21 Áhrif þátta sem trufla eða viðhalda
himnuspennu hvatbera á steraframleiðslu Leydig-
frumrta. Steinunn átti einnig hiut að erindi E26.
Dómnefnd þingsins var skipuð Rafni Benedikts-
syni dósent sem var formaður og Guðmundi Þor-
geirssyni prófessor. Við mat á verkefnunum höfðu
þeir meðal annars eftirfarandi til hliðsjónar:
- nýnæmi verkefnisins,
- hversu vel væri leyst úr rannsóknarspurningunni,
það er hversu vel rannsóknin væri byggð upp til
þess að gera gefið svar sem væri bæði satt og rétt,
- hlutverk og þáttur höfundar eða flytjanda í rann-
sóknavinnunni sjálfri,
- framsaga og framsetning verkefnisins á þinginu og
hversu góða innsýn og vald á verkefninu flytjand-
inn hefði,
- mikilvægi spurningarinnar sem rannsóknin væri
hönnuð til að svara og tengsl hennar við klíníska
lyflæknisfræði
- rannsóknarvirkni kandídatsins.
Læknablaðið 2002/88 589