Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 64

Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐLEGT LÆKNAÞING Fjölmennt þing um meinefna- og storkufræði Molecular Medicine 2002 haldið í Reykjavík í ágúst Merki þingsins Molecular Medicine 2002. Sumarið er vinsæll tími fyrir læknaþing, í það minnsta hér á íslandi. Það færist í vöxt að haldin séu alþjóðleg læknaþing hér á landi og má því til sönn- unar benda á tvö fjölmenn þing á sviði taugalækninga og bráðalækninga sem haldin voru í maí og júní. Og í ágúst er röðin komin að meinefnafræðinni en dagana 10.-13 verður þingið Molecular Medicine 2002 haldið í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Það er Félag um lækningarannsóknir á íslandi sem heldur utan um þetta þinghald en raunar er hér um að ræða tvö norræn þing: 28. norræna þingið um meinefnafræði og 35. norrænu ráðstefnuna um storkufræði. Blaðamaður Læknablaðsins mætti á fund undirbúningsnefndar þingsins á dögunum til þess að forvitnast um þetta þinghald. I nefndinni eiga sæti Þorvaldur Veigar Guð- mundsson sem er forseti þingsins, ísleifur Ólafsson, Leifur Franzson, Elín Ólafsdóttir, Ingunn Þorsteins- dóttir, Jón Jóhannes Jónsson og Ólöf Sigurðardóttir. Leifur er formaður Félags um lækningarannsóknir á Islandi sem í eru um 30 skráðir félagsmenn. Þorvaldur Veigar upplýsir að þetta sé í þriðja sinn sem þing af þessu tagi sé haldið hér á landi. Þau fyrri voru haldin 1981 og 1992. Norrænu þingin í mein- efnafræði eru haldin á vegum Nordisk Forening for Klinisk Kemi annað hvort ár til skiptis á Norðurlönd- um en félagið í hverju landi annast þinghaldið að öllu leyti og bera alla ábyrgð á því. Storkufræðiráðstefna er haldin árlega. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tvö náskyldu svið sameina krafta sína í þinghaldi. Að sögn nefndarmanna verður þetta þing fjöl- mennt því um miðjan júní höfðu tæplega fimm hundruð manns boðað þátttöku sína og þeim á vænt- anlega eftir að fjölga. Þátttakendur koma frá 20 lönd- um en flestir koma frá Norðurlöndum. Þeir sem koma lengsta leið eru frá Ástralíu og Kína. Fyrirles- ararnir koma frá ýmsum löndum Evrópu og Ameríku en stærsti hlutinn er frá Norðurlöndum. Alls er 56 manns boðið að halda fyrirlestra og eru nokkrir fslendingar meðal þeirra. „Þetta er metnaðarfullt þing og við bjóðum upp á fyrirlestra heimsþekktra vísindamanna á sviði storku- og mcinefnafræði," segja nefndarmenn og nefna til sögunnar athyglisverða fyrirlestra um erfðafræði storkufræði og upplýsingatækni á rannsóknastofum. Á ráðstefnunni er rætt bæði um grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Ráðstefnan fer fram í fyrirlestr- um, málþingum og kynningu veggspjalda. Alls verða yfir 100 veggspjöld kynnt. I tengslum við ráðstefnuna er stór tækjasýning. Líkt og á öðrum sviðum læknisfræði hafa orðið verulegar framfarir í meinefna- og storkufræði á und- anförnum árum. Ný mælitæki hafa komið til sögunn- ar sem gera mönnum kleift að mæla ný efni og með stóraukinni nákvæmni, auk þess sem nýjar rannsókn- araðferðir hafa verið þróaðar, ekki síst í erfðafræði- og prótínrannsóknum. „Það er mikið rætt um gen og þá má ekki gleyma því að gen eru sameindir og sam- eindir eru viðfangsefni klínískra rannsóknarstofa. Þetta hefur í för með sér að það sem í dag kallast grunnrannsóknir á sameindum eru viðfangsefni klín- ískra rannsóknarstofa á morgun þar sem þekkingin er nýtt til að greina sjúkdóma, meta árangur með- ferðar og við áhættumat,“ segir Jón Jóhannes. Að sjálfsögðu er reynt að gera vel við hina erlendu gesti og standa þátttakendum og fylgdarliði þeirra til boða ýmsar skoðunarferðir um landið, bæði meðan á þinginu stendur og eftir að því lýkur. Félagið fékk fyrirtækið Ráðstefnur og fundir í Kópavogi til að annast skipulag og umgjörð þingsins en mikið starf hefur lent á undirbúningsnefndinni sem ber ábyrgð á öllu saman. Sækja má einstök málþing á ráðstefnunni en dag- skrá og aðrar upplýsingar er að finna á heimsíðu ráð- stefnunnar: www2.landspitali.is/mm2002/ -ÞH Announcement of 4 professorships in cancer research The Danish Medical Research Council is hereby announcing four research council professorships. The professorships are financed by the Danish Cancer Society, which has decided to establish a 5-year professorships in cancer research with special emphasis on the clinical aspects within each of the following 4 areas: Turnour immunology and immunotherapy Tumour pato-physiology and invasion Radiotherapy Surgical oncology The deadline for the application is 1. October 2002 at 12.00 a.m. Further information and a more detailed description of the research areas must be obtained on www.forsk.dk/ssvf/opslag/4_prof.htm 600 Læknablaðið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.