Læknablaðið - 15.07.2002, Blaðsíða 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐLEGT LÆKNAÞING
Fjölmennt þing um meinefna- og storkufræði
Molecular Medicine 2002 haldið í Reykjavík í ágúst
Merki þingsins Molecular
Medicine 2002.
Sumarið er vinsæll tími fyrir læknaþing, í það
minnsta hér á íslandi. Það færist í vöxt að haldin séu
alþjóðleg læknaþing hér á landi og má því til sönn-
unar benda á tvö fjölmenn þing á sviði taugalækninga
og bráðalækninga sem haldin voru í maí og júní. Og í
ágúst er röðin komin að meinefnafræðinni en dagana
10.-13 verður þingið Molecular Medicine 2002 haldið
í Borgarleikhúsinu í Reykjavík.
Það er Félag um lækningarannsóknir á íslandi sem
heldur utan um þetta þinghald en raunar er hér um
að ræða tvö norræn þing: 28. norræna þingið um
meinefnafræði og 35. norrænu ráðstefnuna um
storkufræði. Blaðamaður Læknablaðsins mætti á
fund undirbúningsnefndar þingsins á dögunum til
þess að forvitnast um þetta þinghald.
I nefndinni eiga sæti Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson sem er forseti þingsins, ísleifur Ólafsson,
Leifur Franzson, Elín Ólafsdóttir, Ingunn Þorsteins-
dóttir, Jón Jóhannes Jónsson og Ólöf Sigurðardóttir.
Leifur er formaður Félags um lækningarannsóknir á
Islandi sem í eru um 30 skráðir félagsmenn.
Þorvaldur Veigar upplýsir að þetta sé í þriðja sinn
sem þing af þessu tagi sé haldið hér á landi. Þau fyrri
voru haldin 1981 og 1992. Norrænu þingin í mein-
efnafræði eru haldin á vegum Nordisk Forening for
Klinisk Kemi annað hvort ár til skiptis á Norðurlönd-
um en félagið í hverju landi annast þinghaldið að öllu
leyti og bera alla ábyrgð á því. Storkufræðiráðstefna
er haldin árlega. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tvö
náskyldu svið sameina krafta sína í þinghaldi.
Að sögn nefndarmanna verður þetta þing fjöl-
mennt því um miðjan júní höfðu tæplega fimm
hundruð manns boðað þátttöku sína og þeim á vænt-
anlega eftir að fjölga. Þátttakendur koma frá 20 lönd-
um en flestir koma frá Norðurlöndum. Þeir sem
koma lengsta leið eru frá Ástralíu og Kína. Fyrirles-
ararnir koma frá ýmsum löndum Evrópu og Ameríku
en stærsti hlutinn er frá Norðurlöndum. Alls er 56
manns boðið að halda fyrirlestra og eru nokkrir
fslendingar meðal þeirra.
„Þetta er metnaðarfullt þing og við bjóðum upp á
fyrirlestra heimsþekktra vísindamanna á sviði storku-
og mcinefnafræði," segja nefndarmenn og nefna til
sögunnar athyglisverða fyrirlestra um erfðafræði
storkufræði og upplýsingatækni á rannsóknastofum.
Á ráðstefnunni er rætt bæði um grunnrannsóknir og
hagnýtar rannsóknir. Ráðstefnan fer fram í fyrirlestr-
um, málþingum og kynningu veggspjalda. Alls verða
yfir 100 veggspjöld kynnt. I tengslum við ráðstefnuna
er stór tækjasýning.
Líkt og á öðrum sviðum læknisfræði hafa orðið
verulegar framfarir í meinefna- og storkufræði á und-
anförnum árum. Ný mælitæki hafa komið til sögunn-
ar sem gera mönnum kleift að mæla ný efni og með
stóraukinni nákvæmni, auk þess sem nýjar rannsókn-
araðferðir hafa verið þróaðar, ekki síst í erfðafræði-
og prótínrannsóknum. „Það er mikið rætt um gen og
þá má ekki gleyma því að gen eru sameindir og sam-
eindir eru viðfangsefni klínískra rannsóknarstofa.
Þetta hefur í för með sér að það sem í dag kallast
grunnrannsóknir á sameindum eru viðfangsefni klín-
ískra rannsóknarstofa á morgun þar sem þekkingin
er nýtt til að greina sjúkdóma, meta árangur með-
ferðar og við áhættumat,“ segir Jón Jóhannes.
Að sjálfsögðu er reynt að gera vel við hina erlendu
gesti og standa þátttakendum og fylgdarliði þeirra til
boða ýmsar skoðunarferðir um landið, bæði meðan á
þinginu stendur og eftir að því lýkur. Félagið fékk
fyrirtækið Ráðstefnur og fundir í Kópavogi til að
annast skipulag og umgjörð þingsins en mikið starf
hefur lent á undirbúningsnefndinni sem ber ábyrgð á
öllu saman.
Sækja má einstök málþing á ráðstefnunni en dag-
skrá og aðrar upplýsingar er að finna á heimsíðu ráð-
stefnunnar: www2.landspitali.is/mm2002/
-ÞH
Announcement of 4 professorships in cancer research
The Danish Medical Research Council is hereby announcing
four research council professorships. The professorships are
financed by the Danish Cancer Society, which has decided to
establish a 5-year professorships in cancer research with special
emphasis on the clinical aspects within each of the following 4
areas:
Turnour immunology and immunotherapy
Tumour pato-physiology and invasion
Radiotherapy
Surgical oncology
The deadline for the application is 1. October 2002 at 12.00
a.m. Further information and a more detailed description of
the research areas must be obtained on
www.forsk.dk/ssvf/opslag/4_prof.htm
600 Læknablaðið 2002/88