Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2002, Síða 53

Læknablaðið - 15.07.2002, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ORLOFSMÁL / VERÐLAUN Þótt bústaðurinn sé glœsilegur á alla lund slœr hann ekki við útsýninu sem blasir við úr stofugluggunum. Hér er Hreðavatn í allri sinni dýrð. Myndir: Sigurjón Sigurðsson, Sigríður Haraldsdóttir og -ÞH. Verðlaunaveiting á lyflæknaþingi Á þingi Félags íslenskra lyflækna sem haldið er annað hvert ár hefur skapast sú hefð að veita verð- laun fyrir góða rannsóknarvinnu og framsetningu niðurstaðna. Tilgangurinn með þeim er að hvetja lyflækna til dáða og örva rannsóknir íslenskra lækna en slík verðlaun geta reynst aðstoðarlæknum og stúd- entum afar mikilvæg þegar þeir sækjast eftir fram- haldsnámi við bestu læknaskóla í útlöndum. Á 15. þinginu sem haldið var á Isafirði dagana 7,- 9. júní voru veitt þrenn verðlaun. Félag íslenskra lyflækna veitti verðlaun fyrir besta veggspjaldið en þau hlutu Brynja Gunnlaugsdóttir og Björn Rúnar Lúðvíksson. Veggspjaldið bar númerið VI8 og heitið Nœmi áðitr óþekkts forstigs CD4+/CD45RA+ T- fntmna fyrir bœliáhrifum TGF-þl. Þá veitti Vísindasjóður lyflækningadeildar Land- spítala tvenn verðlaun. Önnur eru fyrir besta framlag aðstoðarlæknis og hlaut þau Sædís Sævarsdóttir fyrir erindi E31 Framskyggn rannsókn á byrjandi iktsýki bendir til að sjúklingar með lágt mannósa bindilektín fái verri sjúkdóm. Hún var reyndar einnig höfundur að erindi E32. Hin verðlaunin voru veitt fyrir besta framlag stúd- ents en þau komu í hlut Steinunnar Þórðardóttur fyrir erindið E21 Áhrif þátta sem trufla eða viðhalda himnuspennu hvatbera á steraframleiðslu Leydig- frumrta. Steinunn átti einnig hiut að erindi E26. Dómnefnd þingsins var skipuð Rafni Benedikts- syni dósent sem var formaður og Guðmundi Þor- geirssyni prófessor. Við mat á verkefnunum höfðu þeir meðal annars eftirfarandi til hliðsjónar: - nýnæmi verkefnisins, - hversu vel væri leyst úr rannsóknarspurningunni, það er hversu vel rannsóknin væri byggð upp til þess að gera gefið svar sem væri bæði satt og rétt, - hlutverk og þáttur höfundar eða flytjanda í rann- sóknavinnunni sjálfri, - framsaga og framsetning verkefnisins á þinginu og hversu góða innsýn og vald á verkefninu flytjand- inn hefði, - mikilvægi spurningarinnar sem rannsóknin væri hönnuð til að svara og tengsl hennar við klíníska lyflæknisfræði - rannsóknarvirkni kandídatsins. Læknablaðið 2002/88 589

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.