Fréttatíminn - 05.09.2014, Qupperneq 12
Þ egar ég var að byrja í með-ferðinni var okkur ráðlagt að minnka sykurneysluna
jafnt og þétt yfir vikuna til að
trappa okkur niður. Ég hins vegar
fór strax að skipuleggja í huganum
hvernig ég gæti borðað sem allra
mest alla vikuna. Ég nánast setti
upp í Excel-skjal hvað ég ætlaði að
borða og hvenær,“ segir Ragnheið-
ur Sylvía Kjartansdóttir sem hefur
glímt við matarfíkn frá barnsaldri.
Í febrúar 2012 leitaði hún sér hjálp-
ar hjá MFM-miðstöðinni, Með-
ferðar- og fræðslumiðstöð vegna
matarfíknar og átraskana.
Fyrsta árið missti hún 35 kíló
og eftir meðferðina tileinkaði hún
sér 12-spora kerfi, vigtar allan
matinn sem hún borðar og sneiðir
hjá einföldum kolvetnum. „Þetta er
engin töfralausn. Ég er ekki komin
í kjörþyngd en ég er heilbrigðari,
mér líður miklu betur andlega og
ég er mun skemmtilegri en áður,“
segir hún.
„Ég hef lengi átt í óheilbrigðu
sambandi við mat. Ein af fyrstu
minningum mínum því tengdu
var þegar ég var átta ára og vin-
kona mín úr skólanum fékk að
kaupa sér snúð og kókómjólk eftir
skóla. Mér fannst stórmerkilegt að
þetta væri hægt. Þegar ég horfi til
baka sé ég að alltaf þegar ég hafði
tækifæri til þá valdi ég óhollari
valkostinn. Í skólanum vorum við
með matarmiða og ég valdi alltaf
frekar djús og kókómjólk í staðinn
fyrir mjólk, bara sem dæmi. Eftir
því sem ég varð eldri því meira
frelsi hafði ég til að borða það sem
ég vildi. Sumir borða óhollt eða í
óhóflegu magni. Ég gerði hvoru
tveggja.“
Ragnheiður Sylvía segir það
algengt einkenni matarfíknar að
fólk leitast við að borða einsam-
alt. „Þú sást mig aldrei í boði með
troðfullan disk, hvað þá að ég
fengi mér ábót. Að öllum líkindum
var ég hins vegar búin að borða
ein áður en ég fór í boðið og fékk
mér svo að borða aftur þegar ég
kom heim.“
Hún var komin í ofþyngd strax
sem unglingur og í gegnum árin
prófaði hún alla helstu kúra og
duft. Þremur árum áður en hún
hóf meðferð hjá MFM-miðstöðinni
fór hún þangað í viðtal. „Þar var
mér sýnt svart á hvítu að ég væri
matarfíkill. Ég fór hins vegar í
mikla vörn. Ég var 25 ára gömul,
klár og vel menntuð. Ég fékk gott
uppeldi og vissi hvað var rétt og
rangt í lífinu. Það bara passaði
ekki að ég væri matarfíkill.“ Hún
gekk út og hélt áfram rússíban-
areið matarfíkilsins. „Mér finnst
eiginlega lýsa því best að ég hafi
verið blind að aka bíl. Ég var gjör-
samlega stjórnlaus. Ég var búin
að ná algjörum botni og var mjög
þung – andlega og líkamlega –
þegar ég ákvað að viðurkenna
vandann og fara í meðferð hjá
MFM-miðstöðinni.“
Hún segir það hafa verið erfið
skref að horfast í augu við að vera
matarfíkill. „Það er innprentað í
okkur að hugsa í skyndilausnum.
Ég er búin að léttast mikið og mér
líður betur. Ég veit samt að ef ég
tek bita af súkkulaði eða breyti út
af vananum á annan hátt þá fer ég
á sama stað og áður en ég byrjaði.
Matarfíkn er ekkert öðruvísi en
alkóhólismi. Þetta er fíkn.“ Hún er
þakklát fyrir þá aðstoð sem hún
fékk hjá MFM-miðstöðinni, sem er
eina meðferðarstofnunni á Íslandi
sem veitir meðferð við matarfíkn,
og það er hluti af hennar daglega
lífi að tilheyra 12-spora samtökum.
„Kílóin eru aukaatriði þegar á
heildina er litið. Þetta er spurning
um allsherjar lífsstílsbreytingu.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Besti bíllinn.
Audi A3 hefur verið valinn besti bíll ársins
2014* af blaðamönnum frá 22 löndum.
Takk fyrir okkur!
*World Car Awards 2014, New York: www.wcoty.com
Afneitaði matarfíkninni
Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir var í tvöfaldri kjörþyngd sinni þegar hún leitaði sér hjálpar vegna
matarfíknar. Hún hafði frá barnsaldri átt í óheilbrigðu sambandi við mat. Ragnheiður Sylvía líkir
stjórnleysi sínu í áti við það að vera blind að aka bíl. Að meðferð lokinni gekk hún til liðs við 12
spora samtök og vigtar allan mat sem hún borðar.
Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir var búin að prófa alla helstu megrunarkúra og duft en ekkert virkaði þar til hún leitaði sér
meðferðar við matarfíkn. Ljósmynd/Hari
Ragnheiður Sylvía desember 2010. Um
ári áður hafði henni verið sagt að hún
væri matarfíkill en hún afneitaði því.
12 fréttaviðtal Helgin 5.-7. september 2014