Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 54
54 heilsa Helgin 5.-7. september 2014 Pana hrásúkkulaði er handgert í Ástralíu af mikilli alúð. Súkkulaðið inniheldur aðeins lífræn efni, eins og kókosolíu, hreint kakó, agave sýróp, goji ber, vanillubaunir og líf- rænar ilmkjarnaolíur. Hugsjónin að baki súkkulaðigerðinni hjá Pana Chocolate er að súkkulaði eigi að vera gott fyrir alla. Pana hrásúkkulaðið hentar vel fyrir fólk sem er annt um heilsuna því það er hrein, náttúruleg hollusta. Rannsóknir hafa sýnt að hrátt kakó er ofur- fæða. Lífrænu kakóbaunirnar sem notaðar eru í Pana hrásúkkulaðið koma frá Suður-Ameríku og innihalda mikið magn andoxunarefna, vítamína og steinefna. Súkk- ulaðið er gert við lágan hita því þannig tapast síður nær- ingarefni. Við framleiðslu á Pana hrásúkkulaði fer hitinn aldrei yfir 42°C. Á þann máta verður súkkul- aðið ekki aðeins bragð- betra, heldur mun auðugra af næringar- og andox- unarefn- um. Við súkkulaði- gerðina er sjálfbærni jarðarinnar í öndvegi og er ekki notast v ið neinar vélar. Allt súkkulað- ið er handgert og handpakkað. Pana hrásúkkulaðið fæst aðeins í Hagkaup og Heilsuhúsinu. Nánari upplýsingar má nálgast á vefnum www.icecare.is. Unnið í samvinnu við Icecare Lífrænt hrásúkkulaði Fyrir fólk sem vill sleppa sætindum, huga að heilsunni og dekra við sig. Pana hrásúkkulaðið er fáanlegt í ýmsum bragð- tegundum og fæst aðeins í Hagkaup og Heilsuhúsinu. Pana súkkulaði er  hráfæði  lífrænt  handgert  vegan  með lágum sykurstuðli  án allra mjólkurvara  án soya  án glútens  án aukaefna  án rotvarnaefna Birna Gísladóttir er sölu- og markaðsstjóri IceCare. Lyfja, Nýbýlavegi 4, sími 527 2755. Opið alla virka daga frá kl. 10–18:30 og laugardaga frá kl. 11–16. ÍS LE N SK A /S IA .IS / LY F 70 39 1 09 /1 4 www.lyfja.is Lyfja Nýbýlavegi á afmæli Verslun okkar á Nýbýlavegi er eins árs og af því tilefni verða ýmsar skemmtilegar uppákomur í verslun okkar dagana 3. – 6. september. 20% afsláttur af öllum snyrtivörum, ilmum og bætiefnum. Inga Kristjáns næringar­ þerapisti verður á staðnum í dag, föstudag, frá kl. 15 – 18 með góðar ráðleggingar varðandi bætiefni. Líttu við í Lyfju Nýbýlavegi. M jólkursamsalan safnar nú fyrir nýjum beinþéttnimæli á Landspítalann. Af því til- efni er D-vítamínbætt léttmjólk kom- in í sparifötin og er nú svört með krít- uðum stöfum. Átakið nefnist Mjólkin gefur styrk og munu 15 krónur af hverri fernu renna til söfnunarinnar. Markmiðið er að safna 15 milljónum króna. Beinþynning útbreidd Beinþynning er útbreiddur sjúkdóm- ur en algengt að fólk viti ekki að það sé með sjúkdóminn því hann er ein- kennalaus þar til bein brotna. Því er mikilvægt að mæla beinþéttni fólks í áhættuhópum ef takast á að draga úr líkum á beinbrotum. Nýi beinþéttn- imælirinn mun nýtast vel en mæla þarf um 6 til 7000 manns á ári hverju. Að sögn Rafns Benediktssonar, yfirlæknis innkirtlalækninga á Land- spítala og prófessors við Læknadeild Háskóla Íslands, nær fólk hámarks beinmassa um þrítugt en tapar eftir það að meðaltali einu prósenti á ári. „Á breytingaskeiðinu tapa konur allt að fimm prósentum á ári. Beinþynn- ingin veikir beinin án þess að fólk viti fyrr en það fær lágorkuáverka og brotnar. Oft þarf lítið til, til dæmis að fólk detti fram fyrir sig og setji fyrir sig hendurnar. Brot í framhandlegg eru þau algengustu. Þau alvarlegustu eru þó hrygg- og mjaðmarbrot,“ segir hann. Gamli mælirinn frá 1997 Beinþéttni er mögulegt að mæla á einfaldan hátt. Með því að bæta við öðrum áhættuþáttum úr heilsufari svo og ættar- og lyfjasögu er hægt að reikna út líkur á að fólk brotni við lítinn áverka á næstu 10 árum. Með lyfjagjöf í nokkur ár er hægt að minnka líkurnar á brotum um 40 til 70 prósent og því er mikilvægt að á Landspítalanum sé til gott tæki til mælinga. Einn beinþéttnimælir er til á Land- spítalanum og er hann nokkuð kom- inn til ára sinna. „Okkar mælir er frá því á síðustu öld, eða árinu 1997. Stýrikerfið í honum er Windows 98 og það er ekki hægt að uppfæra það né tengja niðurstöður beint við önnur gögn eins og sjúkraskrá. Þá eru hreyfanlegir hlutar tækisins orðnir slitnir. Við höfum beðið um nýtt tæki síðastliðin fimm ár eða svo en beiðnin hefur ekki komist ofarlega á innkaupalistann. Þekkt er að stjórn- málamenn hugsi í stökum kjörtíma- bilum og því hefur reynst erfitt að útskýra fyrir ráðamönnum að okkur vanti tæki til að nota sem forvörn og þannig spara pening til framtíðar,“ segir Rafn. Góð viðbrögð Söfnunarátakið hefur nú staðið í viku og að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, hafa viðtökur neytenda verið mjög góðar. „Það er virkilega gaman að sjá hve margir leggja átakinu lið. Sú leið að nota mjólkurfernu til að vekja athygli á söfnun af þessu tagi er algjörlega ný af nálinni og virkar vel enda er mjólkin á borðum landsmanna á degi hverjum.“ Útlit D-vítamínbættu léttmjólkur- innar er í anda mjólkurauglýsinga sem voru fyrr á árinu, með svörtum krítargrunni og hvítum krítuðum stöfum. Auglýsingastofan ENNEMM vann að verkefninu í samstarfi við bandarísku krítarlistakonuna Dana Tanamachi. Öll hönnunin er hand- gerð og unnin með krít og síðan skönnuð inn til að setja á umbúð- irnar. Safna fyrir nýjum beinþéttnimæli Mjólkursamsalan safnar nú fyrir nýjum beinþéttni- mæli á Landspítalann og er D-vítamínbætt léttmjólk því í breyttum umbúðum. Sá beinþéttni- mælir sem nú er notast við er frá árinu 1997 og orðinn úreltur. Bein- þynning er útbreiddur sjúkdómur sem algengt er að fólk viti ekki af fyrr en það beinbrotnar. Frá vinstri Baldur Jónsson, verkefnastjóri hjá Mjólkursamsölunni, Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri Mjólkursamsölunnar, Rafn Benediktsson, yfirlæknir á Landspítalanum og Benedikt Olgeirsson, aðstoðarforstjóri Landspítalans. Meðan átakið Mjólkin gefur styrk stendur yfir renna 15 krónur af hverri seldri fernu til söfn- unar á beinþéttnimæli fyrir Landspítala.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.