Fréttatíminn - 05.09.2014, Blaðsíða 34
að rífa svo mikinn kjaft lengi, að
ég sé kominn með meira svigrúm
en margir aðrir, fólk tekur mig
passlega alvarlega. Það er betra að
segja hlutina beint út, ég tala ekki
illa um nokkurn mann. Flest fólk
á sínar góðu hliðar, hvort sem það
eru dópsalar, handrukkarar, stjór-
nmálamenn eða útrásarvíkingar.
Ég held að allt þetta fólk vilji ekki
í raun særa neinn eða gera eitt-
hvað illt á hlut annarra. Ef ég segi
eitthvað um einhvern, þá er það á
hreinu að viðkomandi hafi heyrt
það fyrr, frá mér. Það vita allir mína
skoðun. Maður á alltaf að segja
satt og segja sína skoðun. Það er
heiðarlegt. Þess vegna hefur það
aldrei farið framhjá neinum þegar
Harmageddon hefur skoðun á hlut-
unum. Ég lít ekki það að rífa kjaft.
Bara heiðarleg samskipti.“
Hrokinn er gríma
Harmageddon er þáttur þar sem
þeir félagar fá fólk til sín, oftar en
ekki fólk sem er með aðrar skoð-
anir en þeir. Þátturinn gengur nán-
ast út á það að rífast við viðmæl-
endurna, en þó á léttum nótum.
„Við fáum fólk sem við rök-
ræðum við, og oft erum við ekki
sammála. Aftur á móti getur þetta
fólk yfirleitt fært góð rök fyrir sínu
máli. Fólk sem kemur illa út úr við-
tölum er fólk sem veit það er ekki
að segja satt eða er að verja mál-
stað sem það vill ekki verja. Það
hafa alveg aðilar komið í þáttinn
sem hafa fengið okkur til að skoða
málin öðru vísu og fengið mann
til að skipta um skoðun eða viljað
skoða málin betur.“
Er auðvelt að sannfæra ykkur?
„Nei ekki beint, en ég er alltaf
tilbúinn að skipta um skoðun. Það
er mér ekkert nauðsynlegt að hafa
rétt fyrir mér. Ég hef oft rangt
fyrir mér. Ég var til dæmi trúaður
þegar ég byrjaði í Harmageddon.
Endalaust blaður í Frosta sem á
endanum gaf mér bók í jólagjöf
sem dásamaði hugleiðslu á sama
tíma og hún tók niður trúarbrögð
varð til þess að ég kynnti mér mál-
ið betur og sannfræði mig um að
Biblían sé ekki efni sem við eigum
að bera á borð fyrir börnin okkar.
Ég hins vegar gæti alveg tekið upp
á því að reyna trúa á Guð bara til
þess að vera auðmjúkur gagnvart
þeim sem trúa á eitthvað æðra. En
Biblíuna get ég ekki.“
En það er ekki ætlun að særa?
„Oft hef ég sagt eitthvað í gríni
sem hefur móðgað og sært. Þá
verð ég alveg miður mín og ósjald-
an þurft að hringja í fólk til þess að
biðjast afsökunar á einhverjum fá-
vitaskap sem ég hef sagt um æfina.
Helmingurinn sem maður segir er
oft eitthvert bull og er ekkert að
spá í það. Ég þarf að einbeita mér
mikið að því að vera ekki fáviti,“
segir Máni.
Óttist þið að fólk hætti að taka
mark á ykkur?
„Það skiptir engu máli, ég
er ekki merkilegri en neinn og
enginn er merkilegri en ég. Þess
vegna á fólk ekkert að taka meira
á mark á mér en öðrum. Í lífinu
getur maður alltaf bara stólað á
eina manneskju og það er maður
sjálfur. Stjórnmálamenn, vinnu-
veitendur, Guð, maki þinn eða
nokkur annar geta ekki verið
ábyrgir fyrir velgengni þinni né
hamingju. Harmageddon verður
samt ekki okkar ævistarf og ég
kvíði því ekkert þegar að því kem-
ur að hætta. Ég kvíði því meira að
hætta að vinna með Frosta.“
Lífshamingja í fótbolta
Máni hefur starfað sem knatt-
spyrnuþjálfari og á síðasta ári var
hann aðstoðarþjálfari Keflavíkur í
Pepsideild karla. Máni er á því að
ákveðin lífshamingja felist í því að
horfa á knattspyrnu.
„Ég þjálfaði yngri flokka Hauka
og Fjölnis og var þjálfari meistara-
flokks kvenna í Stjörnunni í tvö
ár og gæti alveg hugsað mér að
gera meira af því einhvern tímann
í framtíðinni. Mér leiðast samt
æfingar en ég hef mikinn áhuga
á pælingunni. Ég elska fótbolta,
þetta er gullfalleg íþrótt alveg
sama hvað hver segir. Ég skil
ekki fólk sem skilur ekki fótbolta.
Það er að missa af miklu,“ segir
Máni. „Gleði lífsins getur verið í
kringum fótbolta. Margir af þeim
drengjum sem ég þjálfaði í yngri
flokkunum eru góðir vinir mínir
í dag og einnig þær stúlkur sem
voru í meistaraflokki Stjörnunnar.
Hvergi hefur mér þó liðið jafnvel
og með Keflavík og allt við þann
klúbb er stórkostlegt. Ég ætlaði
meira að segja að sækja um bæjar-
stjórastöðuna í Reykjanesbæ í
sumar, en umsóknarferlið varð
mér ofviða. Ég hef aldrei sótt um
vinnu,“ segir Máni hlæjandi.
Óþolandi í sambúð
Hvernig er að búa með þér?
„Ég er algerlega óþolandi í sam-
búð, og óska engum þess að búa
með mér,“ segir Máni glottandi.
„Ég get oft verið mjög einrænn,
og fastur í mínum eigin huga. Ég
þrífst best þegar það er brjálað
að gera, ég kann vel við það um-
hverfi. Það er ekki gaman að vera
í kringum svoleiðis mann til langs
tíma, ég get verið mjög leiðinlegur.
Ég er ekki leiðinlegur við við-
komandi, en það er ekki gaman að
eiga í samskiptum við mig og ekki
gaman að hafa mig inni á heimili.
Ég hef lært það með árunum. Verst
er að vera andlega fjarverandi með
börnunum sínum. Ég vil það ekki.
Mér fannst alltaf vera tími fyrir
mig og gleymdi öllum í kringum
mig. Í dag hef ég önnur viðmið
og önnur gildi í þessum efnum
og nota minn frítíma mikið með
sonum mínum.“
Ertu góður pabbi?
„Ég get ekki dæmt um það. Ég
veit samt ef strákarnir mínir sjá
mig sömu augum í framtíðinni og
ég sé foreldra mína í dag. Þá veit
ég að ég hef skilað góðu ævistarfi.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég var 14 ára
þegar mér fannst
Sjálfstæðis-
flokkurinn glataður
og það gengur
eiginlega ekki upp
í Garðabæ.
WWW.LEIKHUSID.IS
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KJÚKLINGAMÁLTÍÐ FYRIR 4
Grill
sumar!
Pantaðu á www.noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
GRILLVEISLUR
Gómsætar grillveislur tilbúnar
beint á grillið.
FYRIR HÓPA OG SAMKVÆMI
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar 34 viðtal Helgin 5.-7. september 2014